Stormur - 01.05.1937, Side 1
STORMU R
XIII. árg.
Reykjavík, laugardaginn 1. maí 1937 13. tölublað
f\ lOOO-s-948 afmælisdegi Hriflu-Jónasar
er þetta blað af Stormi gefið út og
helgað minningu hans.
Skilnaðarkv eðj a
frá
þjóðinni.
Nú kueður þjóðin þig í dag
og þakkar fyrir unnin störf,
því alt þú vanst í hennar hag
þín hugsun var svo djörf
að rœgja saman lýð vors lands
með lipri tungu hrœsnarans.
Og rauðir fánar blakta um borg
þeir benda skýrt á verkin þín
á örbirgð fólksins, eymd og sorg
en yfir þessa sólin skín
hún gyllir alla órœkt lands
og eins þess djöfla fans.
í kvöld þá glitra gullbrydd ský
og gleymist dagsins strit,
fer. gömul lýgi, gerð sem ný
í gegnum alt þitt rit.
A morgun er hún út um bygð
— og afkoman er trygð.
Enn vorblœr dagsins vermir þig
og vangann strýkur þinn,
því náttúran er söm við sig
hún sér ei mismuninn,
því hún er grimm, og góð, en blind
á glaprœði og synd.
En allir dagar eiga kvöld,
og eins er það með rógburðinn
hann missir siðast mátt og völd
ef að minkar nœringin.
— Það breytti eflaust ýmsra hag
vœri engin lýgi; — heilan dag. —