Stormur


Stormur - 01.05.1937, Blaðsíða 7

Stormur - 01.05.1937, Blaðsíða 7
stormur 7 mér er ekki örgrant um, að broddskitan verði þeim hættu- leg, þegar fer að líða á júnímánuðinn, og að þá verði það ft'áfæringarnir, se’ spjari sig betur. — Eg vildi vona, að Þetta reyndist ekki svo, en erfiðlega hafa mér draumar | ^engið eftir að þessi hornahlaup og bægslagangur komu í i skepnurnai*. Eg og afmælisbarnið erum nú báðir komnir úr barn- e%n, ef svo mætti að orði kveða, það mætti því máske Se8'ja, að öxin og jörðin geymdu okkur best, og sjálfsagt Vjldi viðbjóðurinn þarna að norðan það helst, og ekki mundi standa á Akranessklerkinum að kasta á okkur rekunum. '— En mönnum verður ekki altaf að ósk sinni, eins og eg hefi fengið að reyna um dagana, og raunar afmælisbarnið líka. — Við höfum báðir orðið fyrir vonbrigðum, máske sárari en nokkur ykkar getur gert sér í hugarlund. Eg hefi nú ákveðið að draga mig út úr bardaganum, og eg vildi ráðleggja hinum gamla og trygga vini mínum að gera það líka. — Hann er orðinn gamall eins og eg, sálarfjörið er íarið að dofna, og þá getur vankinn, sem varð Viðvíkur- r°llunni að fjörlesti, komið á hverri stundu. — Það er gott Þeilum vagni heim að aka, en að detta aftur af vagninum, ?etur orðið hættulegt, þegar beinin eru farin að feyskjast. Skál! gamli, einlægi vinur minn! Þættir úr sögu Hriflunga Síðustu þrjú ár Hriflu-aldar stjórnuðu þeir Hermann, Eysteinn og Haraldur landinu í umboði Danakonungs, og •frömdu mörg spellvirki. Þjökuðu þeir mjög landslýðnum með sköttum og álög- Uríb enda var þá hin mesta úáran. Gekk fjöldi manna at- Vlnnulaus, en þjófnaðir og ýmiskonar illvirki fóru mjög í vöxt, einkum í kauptúnum. Lauslæti var þá mikið og hirtu giftir menn lítt um eiginkonur sínar, en ef um var vandað prestum, vitnaði almúginn til valdhafanna og kvaðst ^ara að þeirra dæmi. Dýrtíð var þá mikil í landi og vörur bæði vondar og t°rfengnar. Lagðist það orð á íslendinga erlendis, að þeir Vaeru vanskilamenn miklir, og vildu engir lána þeim. Áttu Jarlar konungs alla sök á þessu, því að þeir lögðu hald á ^Jaldeyri manna, svo að skilvísir menn fengu eigi staðið Vlð loforð sín og skuldbindingar. Mjög voru menn þá ójafnir fyrir lögunum. Voru sum- 11 dæmdir til sekta fyrir litlar sakir eða engar, en aðrir ^uPpu, þótt stórþjófar væru og hinir mestu misindismenn. 0r það eftir stjórnmálaskoðunum. Ýmiskonar ójöfnuði var ^á einnig beitt við suma menn og jafnvel heilar stéttir. — ar Mjög þrengt að kosti kaupmanna og stórútgerðar, og hugðust jarlar að uppræta þá með öllu, sem þó tókst ekki. Lítt fóru jarlar þessir að lögum og virtu þingræðið og tjórnarskrá landsins að engu. Mjög reyndu þeir að sölsa ^dir sig völdin, og mátti svo heita, að enginn mætti um Jalst höfuð strjúka. Voru bændur þá sviftir umráðarétti 11 afurðum sínum og hald lagt á, en stórsektir lagðar á út af brugðu. Hafði slík áþján ekki fyr þekst á Is- di, og urðu búendur því versta, sem von var. Svo átti að heita, sem Hermann væri æðstur þeirra jarlanna. Hann var lágur maður vexti, en þrekinn, ódjarflegur í framgöngu, svipséyrður og leit aldrei beint framan í menn. Lítill var hann talinn vitsmunamaður og ósnjall í máli. Hann var hinn ágjarnasti maður og mjög ófyrirleitinn. Eysteinn var rindill að vexti og ekki talinn kvensterk- ur. Einn var þó sá hlutur á líkama hans, er hafði fullan vöxt, og voru það eyrun. Voru þau geysistór, og líktust mjög eyrum á skepnu þeirri, sem asni er kallaður. Ekki voru augu í honum sem í flestum öðrum mönnum, og sá hann best þá, er til hliðar honum stóðu. Ekki voru honum vitsmunir svo naumt skamtaðir sem Hermanni, en mjög voru honum þó mislagðar hendur um alt, sem að fjármál- um laut. Hann var hinn mesti ójafnaðarmaður, og dró mjög fram hlut sinna manna á kostnað annara og þjóð- arinnar. •— Haraldur var lítill maður vexti. Munnumbúnaði hans svipaði mjög til þess, sem er á öpum þeim, er Górillur nefn- ast. Steigurlætismaður var hann m,estur þeirra jarlanna, og hinn drýldnasti. Lítt sinti hann stjórnarstörfum og svaf um daga, en sat á gildaskálum á síðkvöldum og saug bréf- snuddur þær, er kvenmenn reykja. Hann talaði sæmilega á þingum, en var þó kokmæltur. Hér segir frá nokkrum Hriflungum. Brandur er maður nefndur. Hann var bruggari þeirra Hriflunga. Lítt þótti hann vandur að bruggi sínu, og var drukkurinn bæði göróttur og dýr, en þess meira, sem hann drýgði blönduna og sveik, því betur guldu jarlar honum, en allur var sá peningur tekinn úr sjóði landsmanna. Ekki nýttist þó Brandi að fé þessu, því að jarlar 'tóku það aftur af honum og notuðu til eigin þarfa og herkostnaðar. — Höfðu jarlar alment þá aðferð við fjárdrátt sinn, að gjalda málaliði sínu hátt af fé þjóðarinnar, en tóku síðan fjórð- ung og þriðjung aftur. Er þetta síðan nefndur Hriflunga- þjófnaður og þykir allra þjófnaða vesælastur. Pálmi var einn þeirra Hriflunganna. Hann létu jarlar stjórna skipum þeim, er þeir höfðu í snatt fyrir sig og lið sitt. Bar þjóðin kostnaðinn af siglingum skipanna, og var rekstrarhalli mikill. Það hafði Pálma orðið á einu sinni, að bregða trúnaði sínum við Hriflunga. Lá þá við, að hann léti líf sitt, en jörlum var þá mjög févant, og því þótti þeim meiri slægur í að leggja á hann fégjöld mikil. — Óþokkasæll var Pálmi af mönnum þeim, er hann átti yfir að segja, og hafði fárra trúnað. Jónas er maður nefndur. Hann stýrði áður blaði þeirra Hriflunga og laug þá miklu. Til launa fyrir það aðlaði Hriflu-Jónas hann og gerði að útvarpsstjóra. Hann var ófyrirleitinn maður og fremur úvandur að virðingu sinni. Vinnukonu hafði hann, sem var draumspök og óraði fyrir óorðnum hlutum. Hún sagði honum, að svo segði sér hug- ur um, að þeir jarlar myndu brátt hröklast frá völdum og myndi honum því ráðlegast, að láta sem minst bera á trún- aði sínum við þá. Fór Jónas að ráði nennar og tók sér dæmi Sigvalda jarls í Svaldarorustu til fyrirmyndar. Þótti öll- um honum lítilmannlega farast, og hlaut hann af van- sæmd mikla, og var nefndur Jónas hinn ragi. Sumarfataefni Mest úrval í bænum. G. Bjarnason & Fjelsteð. ■A:: ý'" .

x

Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.