Stormur - 01.05.1938, Side 1
STORMUR
Ritstjóri Magnús Magnússon.
XIV. árg. Sunnudaginn 1. maí 1938. 12.—13. tölublað.
IN MEMORIAM.
Þú dóst frá hugsjónum þínum, eða öllu heldur þú fórst
frá þeim, því þú lifir eiliflega, þótt þú hafir skift um bústað.
Við, sem horfum á eftir þér, vonum að í hinum nýja bú-
stað þínum sé hátt til lofts og vítt til vegg’ja, svo að þú unir
þér þar vel og þráir engin vistaskifti.
Við vonum líka, að þú fyrirgefir, eins og æðarkollan, og
skiljir, að maðurinn vissi ekki hvað hann gerði, þegar hann
sveik þig.
Við höfum beðið séra Briem að minnast þín og til virð-
ingar við þig hefir séra Sveinbjörn lofað okkur að segja ekk-
ert vísvitandi ósatt í heilan dag.
Pétur Jakobsson og Una í Vestmannaeyjum hafa ort um
þig minningarljóð, sem verða sungin, þar sem þú varst í
þennan heim borinn fyrir fimtíu og þremur árum, og þar
mun einnig Arnór Sigurjónsson, sem þú gafst nokkurn hluta
launa þinna, tala nokur orð.
Þegar hið nýja skip Pálma Loftssonar er tilbúið, mun
það flytja líkan þitt norður og verður það sett upp á blettin-
um sem þú ræktaðir í Hriflu, en Kaupfélag Suður-Þingey-
inga tekur nokkurn hluta af varasjóði sínum til þess að
kaupa fótstall undir það.
Valhöll á Þingvöllum verður gerð að hæli fyrir þreytta
og uppgefna alþingismenn svo að uppfylt verði þín síðasta
hugsjón.
Svo kveðjum við þig Jónas, og óskum þess og biðjum, að
hin „milda hönd“ eilífðarinnar strjúki þér jafnblíðlega um
vanga og þú straukst öðrum í þínu sæla hérvistarlífi. Friður -
sé með þér. Nokkrir sem þú mettaðir.