Sendiboðinn - 19.04.1939, Blaðsíða 3
VORSKÓLINN.
Bráðum hefst vorskólinn, — skóli litlu
barnanna.
Þá eru 7, 8, 9 og 10 ára börnin ein í
skólanum 4 kennslustundir (40 m.) á dag,
frá 8.50—12.
Þau eiga að lesa, skrifa, reikna og
teikna og auk þess að fá að leika sér úti,
þegar veður leyfir. Það er mjög nauð-
synlegt, að litlu börnin sæki vorskólann
vel og reglulega og komi strax og skólinn
tekur til starfa. Með því standa þau öll
jafnt að vígi, hægra að flokka þau í sem
jafnasta hópa og betri árangur af kennsl-
unni tryggður.
Þeim börnum er í rauninni gert rangt
til, sem ekki fá að koma strax í vorskól-
ann, því að þau eiga erfiðara með að
grípa inn í, og verða að leggja mikið að
sér til að ná hinum, sem byrjuðu strax.
Og foreldrar allir skyldu vera minnugir
þess, að það er sameiginlegt álit fróðustu
manna, enda stutt af rannsóknum og
reynslu, að bezti tíminn til lestrarnáms er
innan 10 ára aldurs — (5—9 ára eftir
þroska).
Hafa rannsóknir þessar leitt í ljós, að
lesstöðin í heilanum er næmust á þessu
árabili, en dofnar eftir það. Þessvegna
á að Ieggja hina mestu áherzlu á, að sem
allra flest börn verði allæs innan 10 ára
aldurs. — Og það er víst, að vorskólinn
vinnur mikið gagn einmitt í þessurn efn-
um, og þau börn, sem ekki eru þegar
orðin aliæs mega ekki vera án hans. —
Eg vil ráðleggja öllum foreldrum, (og
forráðamönnum), sem senda börn sín í
vorskólann, að láta þau hafa með sér 1—2
brauðsneiðar. Vel getur verið, að mörg
börn séu lystarlaus nývöknuð, og þá er
oflangt fyrir þau að vera matarlaus frá
8.50—12.
Sumir foreldrar gefa börnum sinum aura,
til þess að þau geti keypt sér sælgæti
(»gott«) fyrir þá. — Eg vil vinsamlegast
mælast til þess, að þetta sé aldrei gert,
þegar um skólabörn er að ræða. Enginn
skóli leyfir skólabörnum sælgætisát innan
skólans, enda mun flestum ljóst, að börn-
um stafar engin hollusta, né heill að slíku.
— En víða erlendis er það mjög algengt,