Sendiboðinn - 19.04.1939, Qupperneq 11
SENDIBOÐINN
9
FRIÐRIK H3ARTAR
Vinnubækur.
Hinar svonefndu »Vinnubækur« eru ekki
gamlar í íslenzkum skólum. Segja má að
vísu, að stilabækur og »glósu«bækur séu
einskonar vinnubækur, en notkun þeirra
var miklu einhæfari en vinnubókanna.
Hugsun skólamanna þeirra, er hófu að
nota vinnubækur, var m. a. sú, að auka
sjálfstarf nemenda, og skapa meiri fjöl-
breytni í námið.
Annars hefir hver kennari um það frjáls-
ar hendur á hvern hátt hann notar vinnu-
bókina í kennslu sinni, því að þar getur verið
um ýmsar leiðir að velja og fjölbreytni
furðuleg. Má t. d. leysa sama verkefni á
fleiri en einn hátt, láta börnin gera línurit,
teikna myndir, leita að ýmsum fróðleikog
skrifa hann í vinnubókina, búa til landa-
bréf o. fl. o. fl. —
Og það reynsla margra kennara, bæði
erlendra og innlendra, að börnum þykir
vænt um vinnubækurnar sínar og sýna
bæði dugnað og vandvirkni, hugkvæmni
og smekkvísi um samningu þeirra og
frágang.
En auðvitað má misnota vinnubækur
eins og flesta góða hluti, en ekki er hægt
að kalla góða hluti slæma af þeim á-
stæðum.
Til skýringar (og athugunar) set eg hér
vinnubókarverkefni (úr landafræði).
í S L A N D.
1. Litið kortið þannig að hver sýsla hafi
ákveðinn lit. Gætið þess að engar
samliggjandi sýslur hafi sama lit.
2. Skrifið (eða prentið) á kortið sýslutak-
mörk, helztu sveitir hverrar sýslu, helztu
merkisstaðiog helztu kauptún.
3. Skrifið (eða prentið) á kortið helztu
firði og flóa á íslandi.
4. Skrifið (eða prentið) á kortið helztu nes
á íslandi, helztu eyjar og alla kaup-
staði landsins.
5. Litið annað kort með hæðalitum. Skrif-
ið eða prentið á það kort helztu jökla,
helztu eldfjöll, helztu hraun, helztu
hveri og laugar, helztu heiðar og fjalla-
skörð, helztu stöðuvötn, helztu ár, (litið
árnar bláar, einnig stöðuvötnin).
6. Gerið línurit af hæð helztu fjalla á
íslandi.
7. Teiknið íslenzkan sveitabæ og skrifið
stutta lýslngu á honum.
8. Teiknið íbúðarhús í kaupstað og skrifið
stutta lýsingu á því, takið fram úr hvaða
efni venjulega er byggt, herbergja-
skipun o. fl.
9. Sýnið með teikningum hve margar kýr,
kindur og hestar koma á hvern mann
á íslandi.
10. Semjið skrá yfir öll áhöld, sem notuð
eru við landbúnað hér á landi. Teiknið
það af áhöldunum, sem þið getið.
ll.Semjið skrá yfir allar tegundir skipa,
sem notaðar eru hér við land. Teikning-
ar fylgi.
12. Semjið skrá yfir allar veiðiaðferðir ís-
lendinga á sjó.
13. Semjið skrá yfir öll áhöld, sem notuð
eru hér í sambandi við sjávarútveg
íslendinga. Teikningar fylgi.
14. Semjið skrá yfir allar tegundir verk-
smiðja hér á landi. Teljið upp allar
tegundir handiðnaðar á íslandi.
15. Nefnið 6 aðalinnflutnings-vöruflokka
okkar og 6 aðalútflutningsvöruflokka
okkar.
16. Teiknið íslenzka fánann og skrifið ís-
lenzka þjóðsönginn.
Aukaverkefni: Upphleypt kort af íslandi.
Vona eg, að það sé Ijóst af verkefni
þessu, hvilik fjölbreytni getur fylgt vinnu-
bókinni, og hve hún eykur sjálfstarf barns-
ins. Munu flestir sammála um, að hvort-
tveggja stefna í rétta átt.
F. H.