Sendiboðinn - 19.04.1939, Page 12
10
SENDIBOÐINN
RAGNAR GUÐ3ÓNSSON.
Heilsuvernd.
Ekkert er manninum eins dýrmætt og
hreysti. Það er því ekki svo litið atriði
að vel sé gætt heilsu barnanna í skólan-
um, því einmitt þar er heilsu barnanna
kannske mest hætta búin. En ekki verð-
ur þó annað með sanni sagt, en að skólinn
geri sitt til að vernda heilsu barnanna.
Lýsi hefur verið gefið í skólanum í allan
vetur og mjólk þeim börnum, sem að dómi
læknis hafa þurft þess með. En einn stærsti
þátturinn í þessu starfi skólans mun þó
vera leikfimin og böðin. Leikfimin er nú
skyldunámsgrein í skólanum, eldri börnin
2 klst. í viku og yngri börnin einn tíma.
Alltaf vill nú verða dálítill misbrestur á
því að leikfimi sé sótt sem skyldi, og á
það ef til vill rót sína að rekja til þess að
einhverju leyti, að þessir tímar eru sér-
stakir, ekki beint áframhald af öðrum
kennslustundum dagsins. Nokkuð mun þó
lika vera það, að mörgum foreldrum er
það ekki svo mikið áhugamál að börnin
sæki leikfimi, — »þau læri ekkert áþessu
hoppi*. Einkennilegast er þó kannske
það, að ekki líður sá dagur, að ekki komi
fleiri og færri börn með þau skilaboð að
heiman að þau séu kvefuð og megi ekki
fara í bað og allra sízt kalt, en að þau
megi fara í leikfimi. Auðvitað er rétt að
taka það fram, að þessi skilaboð eru oft
ekki rétt en þó mun mestur hluti þeirra
vera boð heimilanna. Þetta stafar af mis-
skilningi og vanþekkingu. Nú skulum við
segja að barn sé kvefað og fari í leikfimi.
Það svitnar og að loknum tímanum fer
það strax í fötin og út í kuldann. Ekkert
er nú líklegra, en að kvefið versni að
miklum mun, því ekkert gera menn verra,
þegar þeir eru kvefaðir, en að fara heitir
út í kulda. Auk þess eru það óþrif að
fara svitastorkin í fötin, því auðvitað lenda
óhreinindin af líkamanum þá hvergi ann-
arsstaðar en í nærfötunum. Það á ekki að
láta börn fara í leikfimi ef þau eru mikið
kvefuð, en það eina sem vegið getur upp
á móti því, er að láta börnin fara í heitt
og síðan í kalt bað að afloknum tímanum,
en ekki eingöngu heitt, eins og svo
margir vilja, því að á eftir heitu baði
kolnar manni, en á eftir köldu baði
hitnar manni. Búningsherbergi skólans
eru alltaf ágætlega heit, svo engin hætta
er á ofkælingu þar.
Foreldrar! Hvetjið börnin til þess að
sækja leikfimi reglulega og fara í bað!
R. G.
Hafið þér reynt
Heilhveitibrauðin
°g
Heilhveitikexið
frá Hertervig?
NÝ3A-BÍÓ —_
Sumardaginn fyrsta kl. 8,40:
„GOTT LAHÐ"
Þetta er allra síðasta tækifærið til
að sjá þessa heimsfrægu og ágætu
mynd. Höfundur sögunnar, Pearl S.
Buck, fékk nýlega Nóbelsverðlaun-
in, og það sérstaklega fyrir þessa
sögu, »Gott Iand«, sem sýnd verð-
urí síðasta sinn sumardaginn fyrsta
kl. 8,40. Sýningin stendur yfir á
þriðja tima.