Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2007, Blaðsíða 18
Þótt Sigyn sé komin vel á full-orðinsaldur hefur hún aldrei farið á útihátíð. Hana hefur
aldrei langað það. Það sem hún
hefur heyrt um útihátíðar bendir til
þess að þær séu mestu sóðastaðir
sem hægt er að komast á. Í mörgum
skilningi þess orð. Vinur Sigynar,
sem hafði farið á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum eitt árið, kallaði Herj-
ólfsdal „stærsta útiklósett landsins“
og þarf ekki að hafa fleiri orð um þá
skilmerkilegu lýsingu.
En sóðaskapurinn er líka af öðrum toga - mun alvarlegri - nauðganir, líkamsárás-
ir, hópslagsmál og þaðan af verra.
Óhófsdrykkjuna og fíkniefnaneysl-
una sem margir telja tilheyra versl-
unarmannahelginni má einnig
flokka sem sóðaskap - andlegan
sem líkamlegan.
Sigyn hefur engan skilning á því að fólk - jafnvel á öllum aldri - hafi yfirleitt löngun
til þess að verða vitni að hvílík-
um sóðaskap sem um er að ræða,
hvað þá að það finni hjá sér þörf
til að taka þátt í honum. Hún
hefur nákvæmlega ekkert
umburðarlyndi gagn-
vart foreldrum sem leyfa
börnum sínum að fara á
útihátíðar - jafnvel eft-
irlitslaus. Sigyn stendur
í þeirri bjargföstu trú að
það sé einfaldlega ekki hægt
að vera of strangur við börnin sín.
Það er hægt að vera strangur án
þess að vera vondur og það er
hægt að beita aga án þess að
kúga eða beygja. Auðvitað
verða börn - sérstaklega
þegar þau eru komin
á unglingsaldur - að fá
að láta í ljós vilja sinn.
Vitaskuld verða foreldrar
að taka tillit til langana og
þarfa barna sinna. En það er ekki
þar með sagt að foreldrar eigi
að láta eftir börnum sínum
það sem þau langar „svo
rosalega“ - eins og til
dæmis að fara með vin-
unum til Eyja. Því hlut-
verk foreldra er ekki síst
það að setja hömlur. Að
búa til ramma. Að kenna
börnum sínum hvað má og
hvað ekki má, hvað er æskileg
hegðun og hvað ekki. Auðvit-
að er það óæskileg hegðun
16 til 18 ára unglinga að
hella sig dauðadrukkna
við aðstæður sem þeir
fá jafnvel ekki ráðið við.
Að sjálfsögðu er ábyrgð-
in foreldranna. Þeir verða
að kunna að segja nei - og
standa við það.
fimmtudagur 2. ágúst 200718 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins.
Dreifing: árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðalnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
áskriftarsími 512 7005, auglýsingar 512 70 40.
Að kunnA Að segjA nei
sigyn
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. ... líti ekki glaðan dag eftir verslunarmannahelgina.
Virðingarleysi
Leiðari
Makalaust er hvað sumt fólk ber litla virðingu fyrir öðru fólki. Þess sér stað í svo mörgu. Ofsaakstur, líkamsmeiðingar, ólæti og margs
konar fantaskapur setur sífellt meiri og meiri
svip á samfélagið. Harkan eykst og fleiri verða
fyrir henni en áður. Verslunarmannahelgin er
hættustund. Um þær helgar hafa orðið alvar-
leg slys og ódæðismenn hafa framið alvarlega
glæpi. Varnir saklausra eru oft veikari þessa helgi en almennt er
þar sem drykkjuskapur þykir sjálfsagðari þessa helgi en oftast.
Í þessu tölublaði DV segir frá ofsóknum á hendur konum og
hversu ömurlegar afleiðingar þær geta haft í för með sér. Segja
má að þjóðfélagið sé meira og minna ofsótt af ökuníðingum,
sem verða hættulegri núna en oftast þar sem umferðin er meiri
og þess vegna verður fleira fólk í hættu af þeim sökum. Lögregl-
an þarf að vinna vandasamt verk, stöðva ofsaakstur, ölvaða öku-
menn og reka þá áfram sem keyra langt undir leyfilegum hraða-
mörkum. Þeir eru líka hættulegir.
Nauðganir og önnur ofbeldisverk fylgja drykkjusamkomunum.
Þangað leita óvandaðir menn vitandi að þar er fórnarlömb að
finna. Mótsgestir eiga oft erfitt með að verjast ofbeldismönn-
unum, stundum sökum ölvunar og stundum vegna aflsmunar.
Verslunarmannahelgin er kjörin fyrir skríl
og glæpahyski. Þess vegna reynir meira á
annað fólk og mikils vert ef fólk getur stað-
ið sem mest saman til að verjast ágengni
þeirra vondu.
Auðvitað er það að bjóða hættunni heim
að kalla saman fólk í þúsunda tali þar sem
aðstæður eru oft erfiðaðar. Hreinlæti tak-
markað, lýsing lítil og ef veður verður vont
verður aðbúnaðurinn því verri.
Þeir sem boða til mannsafnaðanna gera það í gróðavon. Þeir
verða að bera ábyrgð á því að skaðinn af samkomunum verði
sem minnstur og ekki verði við það unað að ofbeldismenn komi
fram vilja sínum. Þess vegna er nöturlegt að heyra hversu treg-
lega ábyrgðarmenn Þjóðhátíðarinnar í Eyjum taka þeim sjálf-
boðaliðum sem vilja berjast gegn nauðgunum og vilja aðstoða
þær stúlkur sem verða skotmörk ofbeldismannanna. Ekki má
vera sama hvernig peninganna er aflað og þeir sem velja þessa
leið verða að vera ábyrgir og gera allt, allt sem hægt er til að kom-
ast hjá því að einstaklingar líti ekki glaðan dag eftir verslunar-
mannahelgina. Að sama skapi má kæruleysi í umferðinni ekki
verða til þess að eyðileggja eða taka líf. Þar er ábyrgðin okkar
allra.
DómstóLL götunnar
Hvert ferð þú um verslunarmannaHelgina:
„Ég verð heima. Ég fíla ekki að fara í
tjaldútilegu og að auki er spáð rigninu
um helgina. annars fer ég á fiskidag-
inn mikla á dalvík og svo er ég að fara
að ferðast út um allt land.“
Arndís Björgvinsdóttir, 37 ára
þjónustufulltrúi
„Ég er að fara á unglingalandsmótið á
Höfn. Þar mun ég keppa í fótbolta með
Hk. Við ætlum að fara þangað til þess
að vinna en ég er ekki viss hvort ég
verði í tjaldi eða öðru. Það verður fullt
af liðum þar og ég hlakka til.“
Harpa Ósk Björnsdóttir, nemi
„Ég á heima á ísafirði. Ég verð þar líka,
annars veit ég það ekki. Ég veit ekki
hvort mig langar á útihátíð. Við förum
sjaldan í tjaldútilegur, við förum frekar í
sumarbústað.“
Samúel Jóhann Guðnason, 11 ára
nemi
„Ég held ég fari bara til ísafjarðar. Ég fer
oft með foreldrum mínum þangað. Það
er mjög gaman á ísafirði. stundum er
hátíð þar en mér finnst alltaf gaman
þar.“
Benóný Helgason, 10 ára nemi
sanDkorn
n Innan veggja fréttastofu
Stöðvar 2 og ritstjórnar Íslands
í dags virðast flestir ganga
út frá því
sem vísu að
Svanhildur
Hólm Vals-
dóttir taki
við ritstjórn
Íslands í dag
nú þegar
Steingrím-
ur Sævarr
Ólafsson er tekinn við starfi
fréttastjóra Stöðvar 2. Nú á að-
eins eftir að koma í ljós hvort
stjórnendur fyrirtækisins verði
á sömu skoðun og starfsmenn-
irnir. Svanhildur verður þá
þriðji ritstjóri þáttarins á inn-
an við ári.
n Meira af fjölmiðlum. Nú
þurfa leiðaraþyrstir fréttahákar
ekki lengur
að lesa leið-
ara Ólafs
Stephen-
sen í Blað-
inu. Þeir
geta fengið
hann í pod-
casti eða
hlaðvarpi
á mbl.is. Ólafur er farinn að
lesa upp leiðara sína og geta
áhugasamir hlaðið þeim niður
til að hlusta á þá, hvort sem
viðkomandi vilja hlusta á Ólaf
lesa leiðarana í tölvunni sinni
eða hlaða í iPodinn sinn til að
hlusta á þá á skokkinu.
n Ekki er allt sem Mogg-
inn skrifar Moggalygi í aug-
um vinstrimanna. Allavega
virðist Ögmundur Jónasson,
þingflokksformaður vinstri
grænna, sáttari við Moggann
en Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra þessa dag-
ana. Þetta
er vegna
andstöðu
samfylk-
ingarfólks,
fyrir hönd
íslenskra
stjórnvalda,
við að taka
upp við-
ræður við Hamas sem sigruðu
í palestínsku kosningunum.
Mogginn er á öndverðri skoð-
un og virðist Ögmundur því
eiga meiri samleið með hon-
um en hinum vinstriflokknum.
n Árásin sem Eiður Smári
Guðjohnsen, landsliðsfyrir-
liði og leikmaður Barcelona,
varð fyrir í miðbæ Reykjavíkur
um síðustu helgi hefur vakið
athygli. Eiður slasaðist víst ekki
að ráði og ákvað að kæra ekki.
Velta nú sumir fyrir sér hvort
þetta sé rétt
ákvörðun
hjá kappan-
um, allavega
telja sumir
að hann
hefði átt að
vera öðrum
fyrirmynd
með því að
kæra og láta
árásarmanninn ekki komast
upp með ódæðið. Aðrir benda
á að fótboltakappar eigi nú ekki
endilega að vera fyrirmyndir,
nema ef til vill á vellinum.