Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Blaðsíða 6
þriðjudagur 25. september 20076 Fréttir DV
FORELDRAR GEFA BÖRNUM SVEFNLYF
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur fær nokkrar tilkynningar á ári hverju um að foreldrar gefi börnum sínum
svefnlyf og skilji þau síðan eftir. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndarnefndar,
segir að sönnunarbyrði í slíkum málum sé erfið. Nefndin fær einnig nokkrar tilkynningar árlega um að for-
eldrar selji ofvirknilyf barna sinna eða neyti þeirra sjálfir. Geir Friðgeirsson barnalæknir segir að fólk sé
orðið meðvitaðra um svefnlyfjagjöf til barna og beiti henni ekki nema í neyðarúrræðum.
„Á undanförnum árum hafa komið
nokkrar tilkynningar um að börn-
um séu gefin svefnlyf og jafnvel skil-
in eftir ein,“ segir Halldóra Dröfn
Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
Barnaverndarnefndar Reykjavíkur.
Halldóra segir að tilkynningarn-
ar séu ekki margar en tilkynningar
þess efnis berist nefndinni tvisvar
til þrisvar sinnum á ári. Hún segir
það öllu algengara að börnum sé
gefinn of stór skammtur af lyfjum
sem eiga að halda þeim rólegum
og nefnir hún í því samhengi Rítal-
ín.
„Þá erum við að tala um of-
virk börn sem eiga að vera á lyfj-
um vegna hegðunarvandamála.
Slík tilvik koma upp um það bil tíu
sinnum á ári. Síðan eru það hin til-
fellin þar sem foreldrar hafa gef-
ið börnum deyfilyf, svefnlyf eða
verkjalyf að óþörfu til að hafa þau
róleg eða til að láta þau sofa betur.
Þau eru mikið sjaldgæfari.“
Halldóra segir að nokkur dæmi
hafi komið upp þar sem foreldrar
selji lyf barna sinna eða noti þau
sjálfir. Ofvirknilyfið Rítalín virk-
ar róandi á börn en hefur þver-
öfug áhrif á fullorðna einstaklinga.
„Alltaf er þetta grunur sem er erfitt
að sanna nema að lögreglan komi
hreinlega að málinu. Við fáum
samt alltaf nokkrar tilkynningar
á ári um sölu eða neyslu á lyfjum
ætluðum börnum.“
Ættingjar tilkynna
Aðspurð hvort þau tilfelli, sem
upp hafa komið um svefnlyfjagjöf
til barna, hafi haft alvarlegar af-
leiðingar í för með sér, segir Hall-
dóra að það sé ekki þannig að börn
hafi verið í yfirvofandi lífshættu.
„Við höfum ekki fengið neinar til-
kynningar frá spítölum um að barn
hafi verið í bráðri hættu. Þetta eru
yfirleitt grunsemdir ættingja eða
vina sem þekkja vel til barnanna.
Stundum fáum við einnig tilkynn-
ingar úr skólum barnanna þar sem
grunsemdir hafa vaknað.“
Halldóra segir að þegar farið er
að rannsaka þær tilkynningar sem
koma sé sönnunarbyrðin í slíkum
málum erfið. Hún segist ekki muna
til þess að einstök mál hafi haft
einhverjar afleiðingar í för með
sér fyrir foreldra eða forráðamenn
barnanna. „Það hefur þá ekki verið
nema í samhengi við stærra barna-
verndarmál og snýr þá að fleiri þátt-
um heldur en þessu eina. Þá eru
aðstæðurnar þannig að það þarf
að skoða líðan og hegðun foreldris-
ins sjálfs og að-
stæður barnsins
að öðru leyti. Sjaldn-
ast er ein báran stök í
þessum efnum og það kem-
ur yfirleitt í ljós að það er meira
en einn þáttur sem er að á heimili
barnsins,“ segir Halldóra og bætir
við að slík mál geti haft afleiðingar
í för með sér fyrir foreldra eða for-
ráðamenn.
Halldóra segir að stundum sé
þekkingarleysi foreldra um að
kenna og lyfjagjöfin til barnanna
sé tilraun til að láta börnunum líða
betur. „Stundum þurfa
foreldrar leiðbeining-
ar og aðstoð til að
taka á vandamál-
um barnsins.
Oftast er það
þannig að það er
hægt að aðstoða
fólk. Ég útiloka
samt ekki að
stundum þarf að
grípa til róttækra
aðgerða.“
Ekkert dæmi á
Íslandi
Matthías Hall-
dórsson landlækn-
ir kannast ekki við
að íslenskum börnum
hafi verið gef-
inn of stór
skammtur
af svefnlyfj-
um. „Ég held að
ég geti nánast fullyrt
að ekkert slíkt dæmi sé
til á Íslandi. Hins vegar erum
við, í samráði við Lyfjastofnun,
þátttakendur í evrópsku verkefni
um lyfjagjöf til barna. Svo er ann-
að verkefni að fara af stað hjá okk-
ur en það fjallar um geðlyfjanotk-
un og Rítalínnotkun hjá börnum.
Síðar verður svo farið í að athuga
svefnlyfjanotkun hjá börnum og lyf
gegn þunglyndi.“
Matthías segir að það komi ákaf-
lega sjaldan fyrir að barnalæknar
skrifi upp á svefnlyf fyrir börn. Al-
gengara sé að skrifað sé upp á til
dæmis Phenergan sem hefur þá
aukaverkun að valda þreytu.
„Það hefur ekki neitt verið kvart-
að undan svefnlyfjanotkun og ég
held að það sé farið varlega í slíka
gjöf til barna. Ég man að svefnlyfja-
notkunin var rædd á danska þing-
inu fyrir nokkrum árum og þá kom
það mönnum á óvart hversu mikið
var um slíkar lyfjagjafir. Ég held að
Einar þór siGurðsson
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
Landlæknir matthías
Halldórsson segir að engin
staðfest dæmi séu til á Íslandi
um að börnum hafi verið
gefinn of stór skammtur af
svefnlyfjum.
Halldóra Dröfn
barnaverndarnefnd
reykjavíkur berast nokkrar
tilkynningar á ári um að
börnum sé gefið óeðlilega
mikið af svefnlyfjum.
Börn að leik dæmi eru
um að börnum séu gefin
svefnlyf og þau jafnvel
skilin eftir ein. myndin er
ekki af íslenskum börnum.