Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttir þriðjudagur 25. september 2007 7
FORELDRAR GEFA BÖRNUM SVEFNLYF
OG FARA SVO ÚT
Mál Madeleine McCann hefur beint athyglinni að því að
foreldrar gefi börnum sínum svefnlyf með það fyrir augum
að þeir geti sjálfir farið út að skemmta sér. Ekki nýtt af
nálinni, segir norskur réttarlæknir:
SVEFNLYF Í
SUMARFRÍINU
Í kjölfar hvarfs Madeleine McCann hefur hafist
viðamikil umræða um hvort foreldrar gefi börnum
sínum svefnlyf til að njóta næðis. Foreldrarnir hafa
verið sakaðir um að gefa Madeleine svefnlyf svo
þeir gætu farið út að borða, skammturinn hafi hins
vegar verið of stór og Madeleine látist. Þessu hafa
foreldrarnir neitað alfarið.
Spurningin snýst ekki lengur um hvort lyfjagjöf í
þessu samhengi sé stunduð, heldur í hve miklum mæli.
Í umfjöllun norska dagblaðsins Verdens Gang fyrir
skemmstu um málið er sagt að norskir foreldrar gefi
börnum sínum svefnlyf til að geta stundað næturlífið
í sólarlandaferðum. Þar sagði Finn Abrahamsen,
fyrrverandi yfirlögregluþjónn, að mál Madeleine
McCann ætti að vera alvarleg áminning í þessu tilliti.
Að hans mati væri um alvarlega vanrækslu að ræða
ef foreldrar beittu slíkum aðferðum og þótt McCann-
málið væri engan veginn til lykta leitt væru þau sek
um þá vanrækslu að hafa skilið börnin eftir, undir
áhrifum svefnlyfja, varnarlaus, á meðan þau sátu með
vinum á veitingastað í Praia da Luz í Portúgal.
Foreldrar láta sig ganga fyrir
Torleiv Ole Rognum, réttarlæknir í Osló, sagði
að það væri ekkert nýtt vandamál að foreldrar gæfu
börnum sínum svefnlyf án samráðs við lækni. Að
hans sögn hefði þetta sennilega verið stundað til
margra ára og hann vissi um mörg tilfelli í Nor-
egi þar sem fundist hefðu leifar svefnlyfja í látn-
um ungabörnum. Að hans sögn hefði þó ekki verið
hægt að segja með fullvissu hvort það hefði verið
dánarorsökin.
Forstjóri ferðamálaráðs Noregs, Rolf Forsdahl,
staðfesti við Verdens Gang að inn á borð til þeirra
kæmu reglulega umkvartanir vegna óábyrgrar
hegðunar foreldra í sólarlandaferðum og greinilegt
væri að til væru foreldrar sem legðu meiri áherslu
á að skemmta sér en velferð barna sinna. Í ein-
hverjum tilvikum þyrftu fararstjórar að grípa inn í
og taka að sér barnavöktun. Forsdahl sagði að því
miður væri merkjanlegt að ferðamenning Norður-
landabúa færi versnandi og erfitt væri að samræma
fjölskylduferð og fullorðinsskemmtun. Hann taldi
þó að flestir norskir foreldrar sýndu ábyrgð gagn-
vart börnum sínum í sumarleyfisferðum á suðlæg-
ar slóðir.
Ekki vitað um umfang
Ekki eru fyrirliggjandi neinar áreiðanlegar töl-
ur sem sýnt geta fram á umfang notkunar svefn-
lyfja til handa börnum í þessum tilgangi, að sögn
Karitu Bekkemellem, ráðherra í norska barna- og
jafnréttisráðuneytinu. Að sama skapi býr ráðu-
neytið ekki að neinum upplýsingum um hve al-
gengt það er að foreldrar skilji börn sín eftir ein á
meðan þeir fara út að skemmta sér. Engu að síð-
ur sagði hún að það væri óásættanlegt ef foreldrar
notuðu svefnlyf í þessu samhengi, börn ættu ský-
lausa kröfu á öryggi og umhyggju. Ef þessu tvennu
væri ekki til að dreifa gripi löggjafinn og barna-
verndarnefnd inn í með það fyrir augum að veita
viðkomandi barni skjól, umhyggju og öryggi.
Foreldrar Madeleine McCann eiga, samkvæmt
portúgölskum lögum, yfir höfði sér allt að tíu ára
fangelsi fyrir að hafa skilið Madeleine varnarlausa
eftir að kvöldi hins 3. maí, þótt þau verði ekki sek
fundin um aðild að hvarfi Madeleine.
kolbeinn@dv.is
Í einhverjum tilvikum þyrftu
fararstjórar a�� �r��a inn � �� taka
a�� sér barnavöktun.
Madeleine McCann
Ásakanir í garð foreldra
ungu stúlkunnar um að
hafa gefið henni svefnlyf
hafa vakið upp umræðu
um hversu algeng slík
lyfjagjöf sé. algengt mun
vera að norskir
Ísland standi vel að vígi hvað þetta
varðar.“
Matthías segir að það sé
auðvelt fyrir Landækn-
isembættið að
skoða svefnlyfja-
gjöf til barna.
Það getur samt
ruglað menn í
ríminu því sum
svefnlyf eru einn-
ig gefin flogaveikum
einstaklingum. Matthí-
as tekur undir orð Hall-
dóru um að sönnunarbyrð-
in í slíkum málum sé erfið og
það sé ekki hægt nema að láta
barnið gangast undir blóðprufu.
Fólk meðvitaðra
„Ég tel að svefnlyfjagjöf til
barna hafi minnkað á undanförn-
um árum,“ segir Geir Friðgeirsson,
barnalæknir í Domus Medica. Geir
er einn reynslumesti barnalækn-
ir landsins en hann hefur starfað
í faginu í um 30 ár. Hann segir að
foreldrar hafi gefið börnum sín-
um Phenergan og Vallergan en slík
lyfjagjöf hafi minnkað. Fólk er far-
ið að leita annarra leiða til að svæfa
börnin sín. „Svefnráðgjöf til foreldra
barna hefur aukist mikið á undan-
förnum árum. Fólk virðist vera orð-
ið meðvitaðra um að þetta sé til að
brjóta upp einhvern vítahring. Það
er ráðlegast að gefa barninu lyfið
ekki lengur en í eina til tvær vikur í
senn.“
Geir segir að Phenergan og Val-
lergan séu notuð töluvert nú til
dags en þau eru talin vera tiltölu-
lega þægileg í notkun og hafa ekki
hættulegar aukaverkanir í för með
sér. Bæði lyfin eru gömul lyfseðils-
skyld ofnæmislyf sem höfðu þær
aukaverkanir að fólk varð syfjað af
inntöku þeirra. Geir segir að mjög
margir íslenskir foreldrar hafi not-
að lyfin með ágætum árangri fyrir
yngstu börnin.
Geir segist ekki þekkja dæmi
þess að börnum hér á landi hafi ver-
ið gefinn of stór skammtur af svefn-
lyfjum. „Nei, ég hef starfað í þessu í
30 ár og man ekki eftir að slíkt dæmi
hafi komið upp. Það er hins vegar
langt síðan ég hætti að vinna á spít-
ölum og það er ekki hægt að útiloka
að slíkt dæmi hafi komið upp.“
Átak hjá Evrópusambandinu
„Lyf hafa ekki verið rannsökuð
neitt sérstaklega í börnum og það
er átak í gangi hjá Evrópusamband-
inu og í Bandaríkjunum sem miðar
að því að auka rannsóknir á lyfja-
gjöfum hjá börnum,“ segir Rann-
veig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfja-
stofnunar. Hún segir að lyf virki allt
öðruvísi á börn heldur en fullorðna
og nefnir hún í því samhengi Rítal-
ín sem hefur þveröfug áhrif á börn
en fullorðna. Lyfjagjafir til barna
hafa ekki verið rannsakaðar nægj-
anlega að hennar mati. Hún seg-
ir að ekki séu til nein svefnlyf sem
eru eingöngu ætluð fyrir börn.
„Þetta eru yfirleitt �runsemdir ætt-
in�ja e��a vina sem þekkja vel til
barnanna. Stundum fáum vi�� einn-
i� tilkynnin�ar úr skólum barnanna
þar sem �runsemdir hafa vakna��.“