Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Blaðsíða 16
þriðjudagur 25. september 200716 Sport DV
Gunnar Nelson æfir þessa dagana á Írlandi og berst sinn fyrsta bardaga á næstunni:
Stefnir hraðbyri á atvinnumennSku
Bardagakappinn Gunnar Nel-
son er þessa dagana við æfingar á
Írlandi. Þar æfir hann brasilískt jiu-
jitsu tvisvar á dag, sex daga vikunn-
ar. Gunnar æfir undir leiðsögn Johns
Kavanagh sem er vel þekktur þjálfari
í heimi bardagaíþrótta.
Gunnar vinnur að því að kom-
ast í Cagerage-keppnina í blönduð-
um bardagalistum og á laugardag-
inn mætir hann Frakkanum Driss El
Bakara. Gunnar sagði í samtali við
DV að Bakara væri svipaður að styrk-
leika og hann sjálfur.
„Ég er í raun bara að vinna mig
upp stigann. Ég er hér algjörlega á
mínum eigin vegum og er að reyna að
koma mér upp í atvinnumennskuna.
Þetta verður fyrsti bardagi minn síð-
an ég kom út. Hann er mjög svipað-
ur og ég. Þetta er enginn svakatappi.
Ég sá síðasta bardaga hans. Þetta er
svona kikk-boxari,“ sagði Gunnar.
Gunnar verður við æfingar og
keppni á Írlandi í rúman mánuð í
viðbót. Eftir dvöl sína á Írlandi fer
Gunnar til Manchester og mun æfa
þar undir leiðsögn Karls Tanswell
sem einnig er þekktur í bardaga-
heiminum.
„Ég verð hér og í Manchester í um
fjóra mánuði, kem svo heim um jól
og áramót og fer örugglega út aftur.
Það er vonandi að maður fái ein-
hvern með sér út,“ sagði Gunnar.
Gunnar sagði að það væru ekki
fleiri bardagar fyrirhugaðir hjá sér í
náinni framtíð. „Það er yfirleitt allt-
af bara einn bardagi í einu. Nema þú
sért á fjögurra bardaga samningi, þá
er samt alltaf bara skipulagður einn
bardagi í einu.
Þú veist aldrei hvernig fer og það
er í raun ekki hægt að skipuleggja
fleiri en einn bardaga í einu. Það fer
eftir því hvort þú vinnur eða tapar
við hvern þú keppir næst. Ef ég vinn
á laugardaginn fæ ég sigur á ferilskrá
mína og erfiðari bardaga næst. Síðan
bíður maður bara eftir því að einhver
taki eftir manni,“ sagði Gunnar.
Gunnar er með fjólublátt belti í
brasilísku jiu-jitsu. Það vann hann
sér inn í sumar þegar hann barðist
við 23 óþreytta andstæðinga sleitu-
laust. dagur@dv.is
Gunnar Nelson
mætir Frakkanum driss
el bakara á laugardag-
inn í sínum fyrsta
bardaga frá því hann
fór út til Írlands.
Owen meiddur
Sam Allardyce, stjóri Newcastle, hefur
viðurkennt að framherjinn michael
Owen þurfi
líklega að
gangast undir
aðgerð vegna
nárameiðsla og
það kemur til
með að kosta
hann sæti í
enska
landsliðinu fyrir
næstu verkefni í
undankeppni em. Owen var tekinn af
velli gegn West Ham um helgina. „Ég er
áhyggjufullur eftir að hann bað um
skiptingu og ef hann þarf í aðgerð mun
hann fara í hana strax. það kom ekkert
áberandi í ljós í myndatökunni sem
hann fór í en hann mun fara til
sérfræðings til að láta meta meiðslin,“
sagði allardyce.
Kanu fær nýjan samning
Framherjinn Kanu, sem leikur með
portsmouth, hefur loks fengið
viðurkenningu
verka sinna og
fær nýjan
tveggja ára
samning. Hann
fór ekki með
liðinu til asíu í
sumar eftir að
hafa verið boðið
aðeins eins árs
samningur sem
hann var ósáttur við. „Ég vildi alltaf
halda honum. Hann hefur frábæra
hæfileika, einstaka hæfileika. maður
horfir á hann gera hluti með boltann
sem eru ótrúlegir. en það er ekki hægt
að spila fyrir ajax, inter og arsenal ef
maður er ekki góður leikmaður.“
defOe fær sitt tæKifæri
Jermain Defoe var enn á ný látinn
horfa á leiki tottenham úr stúkunni um
helgina. Framherjinn hefur ekki fengið
mörg tækifæri á
þessu tímabili
þrátt fyrir að hafa
skorað tvisvar í
ueFa-bikarnum í
síðustu viku.
„stjórinn þarf að
taka erfiðar
ákvarðanir.
maður getur
aðeins haft fjóra
útileikmenn á skýrslu þannig að þar
þarftu varnarmann, miðjumann,
tengilið og sóknarmann. robbie Keane
hefur skorað fjöldann allan af mörkum
á útivöllum og gerði það um helgina.
defoe skoraði í vikunni og hann er að
setja pressu á hina framherjana. það er
mjög gott og hann á eftir að fá sitt
tækifæri.“
Kjánalegt
tal blaðamanna
Sami Hyypia hefur komið stjóra
sínum til varnar eftir að blöðin á
englandi létu nokkrar sprengjur falla í
umfjöllun um liðið. Liverpool hefur
gert þrjú jafntefli í röð og skilur
iðulega stjörnur sínar eftir í stúkunni
eða á bekknum. Og Hyypia er ekki
sáttur við skrifin. „allir vita að hann vill
hringla í liðinu og hann er ekkert að
fara að breyta því. það sagði enginn
neitt í upphafi móts þegar við vorum
að vinna svo þegar við lentum í smá
erfiðum kafla varð allt vitlaust. þetta
er bara kjánatal,“ sagði Hyypia sem er
33 ára og telur að með aðferð benitez
sé hann að lengja feril sinn. „stjórinn
ræður hvort ég spila eða ekki. Ég er
ekkert tvítugur lengur og þarf meiri
tíma til að jafna mig eftir leiki.“
ensKi bOltinn
Golftímabilið er senn á enda hjá Birgi
Leifi Hafþórssyni. Hann ætlar sér að
enda tímabilið vel og æfir nú stíft fyrir
lokaátökin.
„Ég verð næstu tvær vikurnar í æf-
ingum og síðan er mót eftir það annað
hvort í Madrid eða á Challenge-túrn-
um sem ég skráði mig á. Þá heldur
maður spilaforminu í gangi ef maður
dettur í Qualifying School á ný. Eins
og staðan er núna fer ég á annað stigið
en ef ég bæti mig núna upp fyrir 115.
sæti á listanum held ég minni stöðu.
Það eru ekki nema 3 til 4 mót eftir og
ég er á biðlista á þeim og maður bíð-
ur nú bara rólegur og sér hvort mað-
ur kemst inn á þau. Í rauninni veit ég
ekkert frekar um það hvernig það fer,“
segir Birgir Leifur
Tók of mikla áhættu
Birgir segist ósáttur við útkomuna
á undanförnum mótum en segir spila-
mennskuna vera ágæta engu að síð-
ur. Birgir er í 189. sæti á peningalista
Evrópumótaraðarinnar en aðeins 115
efstu á þeim lista í lok keppnistíma-
bilsins fá keppnisrétt á mótaröðinni á
næsta tímabili. Þeir sem eru fyrir neð-
an 115. sæti þurfa að leika á úrtök-
umótum Evrópumótaraðarinnar. „Í
undanförnum mótum hef ég ætlað
mér of mikið en það hefur ekki alveg
gengið eftir. Ég spilaði vel fyrri hluta
sumars en svo kom stórt hlé hjá mér
í júlí og ágúst. Þegar ég byrjaði á ný
ætlaði ég aldeilis að standa mig en tók
kannski of mikla áhættu í stað þess að
halda mig við þá leikáætlun að spila
öruggt golf. Hugarfarið skiptir öllu
máli og stundum fer maður aðeins
fram úr sjálfum sér og reynir að vera
of ákveðinn að reyna alltaf að hitta á
pinnann,“ segir Birgir Leifur
Stefnir á toppbaráttuna
„Núna þarf ég að fá góð úrslit en
það má ekki einblína of mikið á það.
Það skiptir mestu máli að taka æfinga-
hring, gera svo leikáætlun og vera já-
kvæður án þess að setja einhverja aðra
pressu á sig. Ef maður nær því og allt
gengur upp er ég alveg nógu góður til
þess að vera í toppbaráttunni.
Þegar ég geri plön fyrir mótin er ég
með þjálfarana mína Andrés Davíðs-
son og Staffan Johanson, sem hefur
gríðarlega reynslu á þessum vettvangi,
og samstarfið við þá er gott. Það eina
sem hefur vantað er fleiri mót, ég bjóst
við að spila á fleiri mótum og fyrir mér
er þetta bara spurning um það hve-
nær ég stimpla mig almennilega inn
á mótaröðina. Það er náttúrlega erfið-
ast að ná því til að byrja með, sérstak-
lega þar sem maður fær ekki velja þau
mót sem maður vill spila á, stórmótin
og slíkt.
Maður þarf að vera þolinmóður og
bíta í það súra og reyna þá að standa
sig betur á þeim mótum sem maður
fær á annað borð. Þetta er ferli sem
tekur sinn tíma og núna er bara best
fyrir mig að vera þolinmóður. Ég tel
ljóst að ég sé alveg nógu góður til að
vera þarna, fyrst var maður ekki viss
um að maður hefði það sem til þurfti
en ég veit núna að ég er nógu góð-
ur til að vera á Evróputúrnum. Ég slæ
alveg jafn vel og aðrir og ef ég næ að
bæta stutta spilið er ég í fínum málum.
Þetta snýst samt langmest um andlega
þáttinn því ég veit að ég er nógu góður
golfari.“
Líkamsþjálfun er golfurum
mikilvæg
Birgir segist eiga mikið inni og bíða
eftir því að ná að ná að sýna sitt besta.
Enn eigi hann eftir að ná mjög góðu
móti en það styttist í það.
„Núna æfi ég yfirleitt fimm daga
vikunnar bæði í líkamsþjálfun og svo
fer ég út á golfvöll og æfi mig í þeim
hlutum sem ég þarf að bæta á golfvelli.
Líkamsþjálfunin er gríðarmikilvæg-
ur þáttur af golfi. Ef þú ert ekki í formi
bitnar það alltaf á spilamennskunni á
lokaholunum. Þú sérð Tiger Woods,
aðrir eru alveg jafn góðir golfarar en
hann hefur bæði þennan líkamlega og
andlega þátt og þar liggur munurinn á
honum og öðrum.
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur undirbýr sig fyrir lokaátökin á Evrópu-
mótaröðinni í golfi. Hann segist nógu góður til þess að vera í toppbaráttu á mótaröð-
inni en hafa ekki fengið nægilega mörg mót til þess að sýna sitt besta.
VEIT ViðAr GuðJóNSSoNblaðamaður skrifar: vidar@dv.is
AÐ ÉG ER
NÓGU GÓÐUR
Í miðri sveiflu birgir
Leifur slær vel á evrópsku
mótaröðinni.