Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2007, Side 27
Syngjandi
sálarmenn
Samuel L. Jackson hefur nú skrifað
undir samning og Bernie Mac er í
samningaviðræðum um að leika í
grínmyndinni Soul Men. Myndin
fjallar um tvo fyrrverandi bakradda-
söngvara í frægri soul-grúppu sem
hafa ekki talast við í tuttugu ár en
ákveða að ferðast saman og halda
tónleika til að heiðra minningu
fyrrverandi forsprakka hljómsveitar-
innar sem þeir félagar sungu með.
Bæði Jackson og Mac koma þá til
með að dansa og syngja í myndinni
en áætlað er að tökur hefjist um
miðjan janúar á næsta ári.
Peter Greenaway kemur um helgina til að taka við heiðursverðlaunum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar:
Peter Greenaway heiðraður á RIFF
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík hefst á fimmtudaginn
en á hátíðinni mun leikstjórinn og
listamaðurinn Peter Greenaway
hljóta heiðursverðlaun fyrir ævi-
starf í þágu kvikmyndaleikstjórnar.
Peter er fæddur í Wales árið 1942
en ákvað snemma að leggja fyr-
ir sig málaralist. Fjórum árum eftir
að hann hóf nám við listaháskóla
í Wales hóf hann að leikstýra eigin
verkum og næstu tvo áratugi gerði
hann fjöldann allan af tilrauna-
kenndum myndum.
Árið 1980 leikstýrði hann sinni
fyrstu kvikmynd í fullri lengd en
það var myndin The Falls. Á ní-
unda áratugnum sendi Peter frá
sér mörg af sínum þekktustu verk-
um, svo sem: The Draughtsman‘s
Contract (1982), A Zed & Two
Noughts (1985), Drowning by
Numbers (1988) og síðast en ekki
síst hina frægu The Cook, The Thi-
ef, His Wife and Her Lover (1989).
Á tíunda áratugnum gerði hann
svo meðal annars sjónræna meist-
araverkið Prospero‘s Books (1991)
auk hinnar umdeildu myndar The
Baby of Macon (1993) og hina gríð-
arlega eftirminnilegu mynd The
Pillow Book (1996).
Nýjasta verk meistarans er svo
myndin Nightwatching sem kom
út fyrr á árinu en hana byggir Pet-
er á samnefndu málverki eftir lista-
manninn Rembrandt. Myndin var
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Feneyjum í ár en kvikmyndir leik-
stjórans taka reglulega þátt í stórum
keppnum á borð við kvikmynda-
hátíðirnar í Cannes, Feneyjum og
Berlín. Peter hefur leikstýrt tólf
myndum í fullri lengd auk fimm-
tíu stuttmynda og heimildamynda.
Fyrir utan framlag sitt til kvik-
myndaheimsins hefur Peter einn-
ig skrifað bækur, unnið við leikhús,
óperur, skrif, myndlist og sýningar-
stjórn svo eitthvað sé nefnt. Peter
er mikilsvirtur listamaður um heim
allan og því mikill heiður fyrir að-
standendur kvikmyndahátíðarinn-
ar í Reykjavík að fá slíkan heiðurs-
gest á hátíðina.
krista@dv.is
Leikur
fyrrverandi
forsetafrú
Sally Field hefur nú bæst í leikara-
hópinn í myndinni Abraham Lincoln
í leikstjórn Stevens Spielberg. Nú
þegar hefur Liam Neeson verið
ráðinn til að fara með hlutverk
Lincolns en Fields kemur til með að
leika eiginkonu hans, Mary Todd.
Myndin er byggð á ævisögu
fyrrverandi forseta Bandaríkjanna
sem skrifuð var af Doris Kearns
Goodwin og er áætlað að myndin
komi út í febrúar árið 2009 á tvö
hundruð ára afmæli Lincolns.
Stelpukraftar
á toppnum
Fyrirsætan og leikkonan Milla
Jovovich, söngkonan Ashanti og
Heroes-leikkonan Ali Larter hafa nú
sameinað krafta
sína í þriðju
Resident Evil-
myndinni en
myndin er komin
á toppinn á
bandaríska
vinsældarlistan-
um. Myndin
skaut öllum
öðrum myndum,
sem frumsýndar
voru um helgina, ref fyrir rass og þén-
aði um 24 milljónir bandaríkjadala.
Það er met í Resident Evil-þrennunni
en hin ólétta Milla Jovovich hefur
farið með hlutverk í öllum myndun-
um.
þriðjudagur 25. september 2007DV Bíó 27
Leikstjórinn Peter Greeneway tekur við
heiðursverðlaunum á riFF.
FURÐAR SIG
Á HUGLEYSI
ÍSLENSKRA
ÚTGEFENDA
Lagið VTG með rapparanum Poetrix og Bubba
Morthens hefur vakið athygli undanfarið. Bubbi
segir íslensk útgáfufyrirtæki huglaus en umboðs-
maður hans mun gefa út plötu með Poetrix.
H
ann er einn af þeim
listamönnum á Íslandi
sem hefur hvað sterk-
ustu skírskotunina í
samtímann,“ segir Bubbi Morth-
ens um rapparann Sævar Daníel
Kolandavelu sem gengur undir
nafninu Poetrix. Lagið VTG með
Poetrix þar sem Bubbi syngur
viðlagið hefur vakið athygli und-
anfarið en textinn í því er kröftug
ádeila á íslenskt þjóðfélag.
Íslenskur tónlistarbransi
runksamkoma
„Hann er beinskeyttur, póli-
tískur, hnitmiðaður og flottur,“
heldur Bubbi áfram um Sævar
sem hann telur vera einn af afar
fáum íslenskum listamönnum
sem semji tónlist um eitthvað
sem skiptir máli. „Því miður er ís-
lenskur tónlistarbransi meira eða
minna ein stór runksamkoma þar
sem menn syngja um eitthvað
sem skiptir ekki máli og allt snýst
um útlit og minnst um innihald,“
segir Bubbi um íslensku tónlistar-
flóruna og segir menn forðast að
syngja á eigin tungumáli. „Runkið
hljómar betur á ensku.“
Froðusnakk í stað alvöru
„Það er alveg magnað að það
finnist svona hæfileikaríkur strák-
ur sem er að rappa og gera flotta
tónlist á íslenskri tungu,“ og seg-
ir Bubbi það ótrúlegt að íslensk
útgáfufyrirtæki séu ekki búin að
gefa tónlist Poetrix út. „Það er
merkilegt að útgáfufyrirtæki eins
og Sena skuli ekki kveikja á því að
það sé til önnur tónlist en þetta
froðusnakk sem þeir eru meira
eða minna að gefa út,“ og segist
Bubbi vita til þess að tónlist Sæv-
ars hafi legið inni á borði hjá Senu
í lengri tíma. „Það segir nú allt
sem segja þarf um sljóleika þeirra
og blindu að telja þetta ekki út-
gáfuhæft.“
Aðspurður um þann mögu-
leika að Bubbi gefi sjálfur út plötu
Poetrix segir hann þann mögu-
leika hafa verið ræddan og vera
fyrir hendi.
Þekkt nöfn á plötunni
Sjálfur segir Sævar að málin séu
frágengin og að Páll Eyjólfsson um-
boðsmaður Bubba muni gefa plöt-
una út. „Platan heitir Fyrir lengra
komna og má segja að Bubbi sé
eins konar verndari hennar,“ en
tónlist Sævars er mjög pólitísk
eins og Bubbi hefur lýst. „Ég er
meðal annars að taka á pólitíkinni
hér heima og svo eru ýmsar aðrar
ádeilur á samfélagið,“ en eitt lagið
af þeim 14 sem á plötunni eru seg-
ir meðal annars sögu 12 ára stelpu
frá Afríku sem er nauðgað.
Sævar segir að samstarf hans
og Bubba hafi komið til þegar
hann var að sampla gamalt lag frá
Bubba fyrir plötuna og leyfði hon-
um að hlusta á það. „Í kjölfarið
stakk Bubbi upp á því að við gerð-
um lag saman og svo leiddi eitt
af öðru.“ Fjölmargir aðrir þekkt-
ir tónlistarmenn úr öllum áttum
vinna með Sævari á plötunni. „Á
henni eru einnig Smári tarfur,
Gaukur Úlfars, Einar Ágúst, Maxie
úr Subterranean, Matti MAT, Seth
Sharp, Rósa úr Sometime og
margir fleiri.“
Besta rapplata Íslands
Þetta er fyrsta platan sem Sæv-
ar gefur út og hann efast ekki um
ágæti hennar. „Þetta er besta ís-
lenska rappplata sem hefur ver-
ið gerð,“ segir Sævar um plötuna
Fyrir lengra komna. „Þetta er
nokkuð sem hefur ekki verið gert
áður og til dæmis andstæðan við
XXX Rottweiler,“ og segir Sævar
plötuna sýna að ungir listamenn
séu ekki krúttprinsessur eða fávit-
ar eins og ímynd þeirra hafi gefið
til kynna í lengri tíma.
„Platan kemur út í lok október
eða byrjun nóvember,“ segir Sæv-
ar að lokum en hægt er að hlusta á
lagið með honum og Bubba á vef-
síðunni myspace.com/68375945.
asgeir@dv.is
Sævar Daníel Kolandavelu,
eða Poetrix segir væntan-
lega plötu sína þá bestu í
íslensku rappi hingað til.
Bubbi Morthens segir íslenska
útgefendur of huglausa í
tónlistarvali.