Sveitarstjórnarmál - 01.06.1945, Blaðsíða 34
30
SVEITÁRST.TORNAUMAL
nöfn starfsmanna, sem taka kaup hjá lieim, stöðu þeirra, fæðingardag og ár,
heimilisfang, launakjör, upphæð kaups, hvernig kaup er greitt, gjalddaga og
önnur atriði, sem sveitarstjórn óskar að fá vitneskju um vegna innheimtu út-
svara af kaupi.
Sveitarstjórn getur krafið um framangreindar skýrslur með munnlegri
kröfu eða skriflegri svo og með alménnri auglýsingu, og setur sveitarstjórn
kaupgreiðendum frest til að skila skýrslum.
h. Allir, sem hafa með höndum atvinnurekstur með aðkeyptu vinnuafli verka-
fólks, skulu að kröfu sveitarstjórnar skvldir lil að senda henni kaupskrár sínar
eða afrit af þeim það snemma, að unnt sé að gera kröfu uni útsvarsgreiðslur
þeirra, er við kaupi eiga að taka, áður en til útborgunar kemur.
i. Kaupgreiðandi, sem skyldur er að hakla eftir af kaupi samkvæmt því, er í
grein þessari segir, skal við hverja útborgun, þar með taldar hvers konar
greiðslur upp í kaup, draga af kaupi útsvarsgjaldanda fjárhæð, er nægir tii
greiðslu samkvæmt a-Iið og hcimilt er að draga al' kaupi samkvæmt e- og f-
liðum, svo og 10% af kaupi daglaunafólks, þó ekki af lægri kaupupphæð en
100 krónum, og skila sveitarstjórn því, sem þannig er haldið eftir, innan sex
virkra daga frá úlborgunardegi, og er sú greiðsla bindandi fyrir útsvarsgjald-
andann. Nú er kaup greilt að einhverju leyti i öðru en peningum, svo sem með
fæði, liúsnæði eða öðrmn hlunnindum, og skulu ])á þessi hlunnindi talin með
kaupgreiðslu á því verði, sem þau eru almennt metin lil skatt á hverjum
stað
j. Nú hættir útsvarsgjaldandi að taka kaup hjá kaupgreiðanda, er krafinn hefur
verið um greiðslu upp í útsvar hans, áður en umkrafin útsvarsskuld er að fullu
greidd, og skal kaupgreiðandi þá lafarlaust tilkynna sveitarstjórn brottför út-
svarsgreiðanda.
k. Úlsvarsg'jaldandi og kaupgreiðandi mega ekki slita vinnusamningi fyrir það
eitt, að krafizt hefur verið útsvarsgreiðslu af kaupi gjaldanda.
l. Ef kaupgreiðandi
1. vanrækir að láta sveitarstjórn i té umkrafðar skýrslur og upplýsingar um
útsvarsgjaldendur innan tiltekins l'rests,
2. greiðir úlsvarsgjaldanda kaup án þess að lialda eftir þeirri fjárhæð, sem
skylt var samkv. þessari grein,
3. skilar eigi til sveitarstjórnar eða umboðsmanna hennar, svo sem hér segir i
i- og j-Iiðum,
4. tilkynnir ekki brottför úlsvarsgreiðánda, svo sem segir í j-lið,
þá ábyrgist hann sem geymslufé ]>á fjárhæð, sem var haldið cftir hjá útsvars-
gjaldanda upp í skuld hans, en sem eigin útsvarsskuld það, sem halda hefði
mátt eftir, ef kaupgreiðandi hcfði ekki vanrækt skyldur þær, sem honum bar
að rækja samkvæmt þessari grein.
Má gera lögtak hjá kauþgreiðanda lil tryggingar þessuin skuldum eftir
sömu reglum og gera hefði mátt lögtak hjá útsvarsgjaldanda sjálfum.
m. Útsvarsgjaldandi, sem ofgreilt hefur úlsvar lil kaupgreiðanda samkv. þessari
grein, á rétt lil endurgreiðslu beint úr sveitarsjóði, hvort sem kaupgreiðandi
hefur greilt sveitarsjóðnum útsvarið eða ekki.
n. Sveitarstjórn sctur nánari reglur um innheimtu úlsvara eftir þessari grein.
3°. gr.
Á sama hátt og með sörnu viðurlögum og í 29. gr. segir getur svéitarstjórn eða
innheimtumaður, er hún setur fvrir sig, krafizt utsvarsgreiðslu al kaupi gjald-