Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Side 26
24
SVEITARSTJ ÓRNARMÁL
Magnús Sigurðsson banfcast/óri,
foTmaður Bvggingars/óðs verkarnanna 1935—1947.
lúta forsjá og fyrirhyggju þessa dugmikla og
mikilhæfa fjármálamanns. Magnús hafði og
einlægan áhuga á vexti sjóðsins og við-
fangsefnum hans, enda þótti félagsstjómun-
um gott til hans að sækja.
Stjórn Bvggingarsjóðs verkamanna hafa
skipað þessir menn:
Magnús Sigurðsson, bankastjóri, formaður
frá 1935 til 1947.
Stefán Jóh. Stefánsson, forsætisráðherra,
frá 1935.
Jakob Möller, sendiherra, frá 1935 til 1944.
Jóhann Ólafsson, forstjóri, frá 1935 til
1945 og árið 1945.
Þorlákur Ottesen, verkstjóri, frá 1935 til
!938-
Guðlaugur Rósenkranz, þjóðleikhússtjóri,
frá 1939.
Arnfinnur Jónsson, skólastjóri, frá 1943 til
x945-
Sveinbjörn Hannesson, verkam., frá 1946.
Haukur Þorleifsson, bókari, frá 1946.
Jón G. Maríasson, bankastjóri, formaður
frá 1948.
Svo sem sjá má af skrá þessari, hefur
Stefán Jóh. Stefánsson forsætisráðherra einn
manna átt sæti í stjóminni frá stofnun
hennar.
í Byggingarsjóði verkamanna eru nú 24
sjóðdeildir, stofnaðar á árunum 1930—1948,
i eftirgreindum kauptúnum og kaupstöðum,
og sýna ártöhn stofnár hinna ýmsu bygg-
ingarsjóða:
Akurevri.................... 1929
Borgarnes .................. 1946
Bolungarvík ................ 1945
Dalvík ..................... 1946
Djúpivogur ................. 1945
ísafjörður ................. 1934
Hólmavík ................... 1947
Hafnarfjörður............... 1934
Búðahreppur ................ 1945
Húsavík..................... 1945
Akranes .................... 1943
Keflavík.................... 1943
Neskaupstaður .............. 1940
Ólafsfjörður ............... 1945
Ólafsvík.................... 1946
Patreksfjörður.............. 1934
Reykjavík .................. 1930
Sandgerði .................. 1947
Sauðárkrókur ............... 1945
Siglufjörður ............... 1930
Skagaströnd ................ 1947
Seyðisfjörður .............. 1940
Vestmannaeyjar.............. 1940
Flateyri ................... 1940
Hér á eftir fylgir skrá um þá staði, þar
sem verkamannabústaðir hafa verið byggðir,
og sýnir einnig framlög þeina til byggingar-
sjóðs og lán, sem hver staður hefir fengið
úr honum: