Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Qupperneq 5

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Qupperneq 5
SVEITARST J ÓRNARMÁL 3 JÓNAS GUÐMUNDSSON: r Bjargráðasjóður Islands fjörutíu ára. Hinn 10. nóvember 1913 voru lög urn Bjargráðasjóð íslands staðfest af konungi. Þótt þessi sjóður sé nú fertugur, hefur verið hljótt um hann frá fyrstu tíð og flestum nú- lifandi landsmönnum sennilega lítt kunnugt um sjóð þennan, tilgang lians og starfsemi. í tilefni af þessu afmæli Bjargráðasjóðs þvkir rétt að rekja hér tildrögin að stofnun hans, eða það sem nú verður um þau vitað, og helztu þætti úr sögu sjóðsins þau fjöru- tíu ár, sem hann hefur nú verið til. I. Hinn 30. júlí árið 1913, var lagt fram og tekið til umræðu í Efrideild Alþingis frum- varp til laga um hallærisvarnir. Frumvarpið er á þingskjali 191 og eru flutningsmenn þrír, þeir Guðjón Guðlaugsson, þm. Stranda- manna, Jósef J. Bjömsson, 2. þm. Skag- firðinga og Hákon Kristófersson, þm. Barð- strendinga. Væntanlega verður hægt að gera nánari grein fyrir málum þessum hér í ritinu fyrri hluta þessa árs. 5. Skrá yfir mannf/ölda o. fí. Skrifstofa sambandsins hefir að tilhlutan tekjustofnsnefndar safnað allmiklum upplýs- ingum sem nauðsvnlegar eru þegar endur- skoða skal tekjukerfi sveitarfélaganna. Á Höfuðatriði frumvarpsins voru þessi: 1. Stofna skyldi sérstakan sjóð, er nefnd- ist Hallærissjóður. 2. Tekna skyldi sjóðnum aflað með því að leggja persónugjald á hvern mann og konu í landinu, sem eldri væru en 20 ára, og skvldi gjaldið vera jafnt á alla — ein króna á mann. En auk þess skyldi ríkissjóður leggja fram 50 aura á hvem gjaldskyldan mann til sjóðs- ins. Var gert ráð fyrir að tekjur sjóðsins yrðu þegar á fyrsta ári um 60 þúsund krónur. Heimilisfeður og vinnuveitendur áttu að inna gjaldið af hendi en innheimta það síðan hjá heimilisfólki sínu og öðru starfsfólki. 3. Stjóm sjóðsins skyldu skipa: Forstjóri atvinnumálaskrifstofu stjómarráðsins og skyldi hann vera formaður, formaður Búnað- arfélags íslands, formaður Fiskifélags ís- lands og einn maður frá hvoru þessara félaga, kjörnir á Búnaðarþingi og Fiskiþingi. Stjóm- in skyldi heita hallærisvarnastjóm, og átti bls. 24 hér á eftir birtist skrá sem skrifstof- an hefir tekið saman er sýnir mannfjölda í hverju sveitarfélagi í árslokin 1952 og út- svör, tekju- og eignarskatt og gjald til al- manna trvgginganna einnig á því ári. Rétt þykir að birta þessa skýrslu því hún hefir að geyma mikinn fróðleik og má öllum þeim verða að miklu liði sem vilja hugsa sjálfstætt urn þessi efni og lausn þessa og jafnvel einn- ig annarra vandamála sveitarfélaganna.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.