Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Blaðsíða 6

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Blaðsíða 6
4 SVEITARSTJÓRNARMÁL hún að „hafa vakandi auga á öllum hallæris- hættum og veita landsstjórninni lið til allra framkvæmda, sem miða að því að afstýra hallæri.“ 4. Hver sýsla og kaupstaður skyldi gera hallærissamþykkt og í þeirri samþykkt skyldi ákveða, hvernig verja mætti séreign sýslu og kaupstaðar í sjóðnum, því að það fé, sem byggðarlögin greiddu, átti að renna í sér- eignarsjóð þeirra, en ríkisframlagið að vera sameign allra landsmanna og vera eins konar varasjóður, sem grípa mátti til, þegar sér- eignarsjóðina þryti. 5. Fé sjóðsins skyldi geyma í Landsbank- anunr í tveim aðgreindum deildum. Ýmiss fleiri ákvæði voru í frv. urn rekstur sjóðsins og starfssvið en óþarft að telja þau hér. Frumvarpið kom til 1. umræðu í Efri-deild 30. júlí 1913 eins og fyrr segir. Framsögu- maður var fyrsti flutningsmaður þess, Guð- jón Guðlaugsson frá Ljúfustöðum, þingm. Strandasýslu. Af framsöguræðu Guðjón Guðlaugssonar verður ekki séð, að neitt sérstakt tilefni hafi legið til þess, að frumvarpið var flutt. Hann telur, að það sé nauðsynlegt að þjóðin revni að tryggja sig senr bezt gegn öllum aðsteðj- andi hættum, og þá einnig gegn hallærum, senr orsakist aðallega af hafís, eldgosum, jarð- skjálftum og öðrum náttúruhanrförum, sem mönnum séu ekki viðráðanlegar. Er ræða framsögumanns stutt og í rauninni ekki þess leg, að hann sé hinn sanni upphafsmaður málsins. Málinu er vel tekið við fyrstu umræðu af deildinni, en þó leggst 1. konungskjörinn þingmaður, Júlíus Havsteen, fyrrv. amtrnað- ur, þá þegar gegn því og telur það með öllu óþarft og að litlu gagni muni koma að safna í sjóði til að mæta hallærum. Málið fór svo til sérstakrar nefndar. í nefndina voru kjömir: Guðjón Guðlaugsson, Guðmundur Björnsson landlæknir, 6. kon- ungskjörinn þingmaður, séra Björn Þorláks- son í Dvergasteini, konungkjörinn þingm., Jón Jónatansson, þingm. Árnessýslu og Þórar- inn Jónsson á Hjaltabakka, þingrn. Húnvetn- inga. Nefndin skilaði áliti 4. ágúst 1913 og er það hið itarlegasta. Segir þar rneðal annars (bls. 614): „Það er einróma álit nefndarinnar, að þetta sé eitt hið þarfasta mál, sem upp hefur verið borið á þessu þingi. Fyrir því höfum vér at- hugað það svo vandlega, sem vér bezt gátum, enda lengi áður um það hugsað, og ráðum vér eindregið til þess, að þingdeildin aðhyllist frumvarpið. Að vísu berunr vér upp allmargar breytingatillögur, en þær raska ekki að neinu leyti meginefni frumvarpsins, og miða eingöngu að því að gera málið sem aðgengi- legast fyrir þing og þjóð.“ Ennfremur segir í áliti nefndarinnar (bls. 617—618): „En vér viljum nú víkja að því, hver ráð muni vænlegust til þess að trygg/a atvinnu- vegi þjóðarinnar gegn þessum hættum, sem /afnan hljóta yfii þeim að vofa. Það hefur lengi verið talinn einn \rersti þjóðarlösturinn hér á landi, að menn séu óforsjálir og fyrirhygg/ulausir; því verður ekki neitað. Bændum liefur jafnan hætt við að setja of djarft á heyforða sinn, treysta á útibeitina; fyrir þá sök hefur oft orðið mikill fjárfellir, ef jarðbann hefur haldizt á vetr- um mun lengur en venja er til. Að vísu er búskaparlagið nú víðast orðið miklu betra en áður; en þó er ófyrirsjálnin enn á m/og háu stigi. Er auðvelt að færa sönnur á það, að mjög víða gefa ýmsir bænd- ur upp öll hey sín í hverjum meðalvetri; og enn í dag eru þess dæmi, og Jiau mörg, að horfellir verður, og sums staðar eigi alllítill, ef nokkuð ber út af, má þar vitna í ritgerðir Torfa Bjamasonar í Ólafsdal, sem nýlega hafa birzt í Búnaðarritinu. Komi nú mjög strang-

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.