Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Blaðsíða 8

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Blaðsíða 8
6 SVEITARST J ÓRNARMÁL árferði. Hér hefur verið leidd í lög almenn ellittygging. En oss kernur saman um, að þessi trygging — atvinnutrygging — sé enn nauðsynlegri.“ Nefndin gerir nokkrar breytingartillögur við frumvarpið og eru þær helztar að lækka tillag kvenfólks úr 1 kónu í 60 aura og að gjaldið skuli greiðast úr sveitarsjóðum, en þeir aftur eiga tilkall til endurgreiðslu hjá þeim, sem gjaldskyldir voru. Málið kom til annarrar umræðu í Efri- deild 2. ág. 1913 og var Guðmundur Bjöms- son framsögumaður. Flutti hann mál þetta skörulega sem hans var venja, og er auðséð að þaðan er hugmyndin urn 'hallærissjóðinn runnin. Guðmundur Bjömsson, landlæknir, var einn helzti og fyrsti brautrj'ðjandi hér- lendis um alls konar tryggingar og er hall- ærissjóðurinn frá hans hendi hugsaður sem ein slík tn'ggingastofnun. Flestir þingmenn í Efri-deild fylgdu mál- inu en tveir rísa þó gegn því, Júlíus Havsteen, fyrrv. amtmaður og Sigurður Eggerz, sýslu- maður, þingmaður Vestur-Skaftfellinga. Telja þeir þetta mikinn og þungan skatt á lands- menn og væri fénu betur varið á annan veg. Sigurður Eggerz telur fjáröflunarleiðina — nefskattinn — með öllu óhæfa og taka ýmsir af stuðningsmönnum frv. undir það og vilja að fundin verði heppilegri leið. Milli 2. og 3. urnræðu hefur nefndin mál- ið enn til meðferðar og gerir þá enn nokkrar breytingatillögur við það, en þó engar stór- vægilegar, og er það samþykkt út úr deildinni með 10 atkvæðum gegn 2 og fer nú til Neðri- deildar. II. Frumvarpið kemur til 1. umræðu í Neðri- deild 15. ág. 1913. Ólafur Briem reifar málið aðeins með því að óska eftir að sérstök nefnd verði kjörin til að athuga það og er það sam- þykkt. í nefndina voru kjörnir Jón Ólafsson 1. þm. Sunnmýlinga, Ólafur Briern 1. þm. Skagfirðinga, Matthías Ólafsson þm. Vestur- ísfirðinga, Pétur Jónsson á Gautlöndum Jrin. Suður-Þingeyinga og séra Kristinn Daníels- son þm. Gullbringusýslu. Áliti skilar nefndin 28. ágúst 1913. í því segir meðal annars á þessa leið: (Þskj. 625 bls. 1214). „Mál þetta hefur verið borið upp í Efri deild og fengið þar rækilegan undirbúning. Nefnd sú, er þar hafði málið til meðferðar, hefur skýrt það til fullnustu í tveim álits- skjölum (þingskj. 263 og 423). Við fram- sögu málsins voru ennfremur færð ítarleg rök fyrir því, enda mun því hafa aukizt fylgi eftir því sem það skýrðist betur. í nefndaráliti Efri deildar er glögglega sýnt frarn á, hver nauðsyn það sé, að tryggja at- vinnuvegi landsmanna gegn áföllum af illu árferði eða óhöppum af náttúruvöldum. Og er þetta frumvarp einn liður í lagasetning urn það efni. Frumkvöðlum þess hefur verið það ljóst, að til þess að nokkru verulegu yrði ágengt í þessu rnikla nauðsynjamáli, væri óhjákvæmilegt að hafa ráð á fé til fram- kværnda, og er því í frumvarpinu bent á leið til að afla þess. Auk fjárframlags úr lands- sjóði, er það lagt til grundvallar, að allir landsmenn, þeir sem komnir eru á þroskaald- ur, leggi fram lítinn skerf árlega, þó svo, að sveitarstjórn sé heimilt að létta gjaldinu af hinum efnaminni gegn auknu tillagi frá þeirn, sem betur mega. Sjóður sá, er þannig myndast, á svo að ávaxtast, en vera til taks, ef óáran ber að höndum. Eftir ákvæðum frumvarpsins eru árstekjur sjóðsins auk vaxta fullar 50 Jrúsundir króna. II\ernig fé þessu verði varið samkvæmt að- altilgangi sjóðsins, er ekki bundið föstum skorðum í frum\’arpinu, en svo er til ætlazt, að nánari ákvæði þar að lútandi verði sett í samþykktum þeim, er 15. gr. mælir fyrir um. Ennfremur er það kornið undir atvikum,

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.