Sveitarstjórnarmál - 01.12.1953, Síða 24
22
SVEITARST J ÓRNARMÁL
sínum. Þessu verður að hrinda í framkvæmd
sem allra fyrst. Jafnframt þarf að auka bryggj-
ur að miklum mun.
Hafnargerð í Eyjum hefir nú staðið lát-
laust um 40 ára skeið. Eðlilega sér þar rnest
eftir nú síðari árin. Þar um veldur aukin
tækni, stórvirkari tæki og aukið fjármagn.
AUKINN ÞRIFNAÐUR,
AUKIN ÞÆGINDI.
Fólksstraumurinn til bæjarins á vetrarver-
tíð veldur nokkurri sérstöðu, svo að ýmsum
þörfum þarf að fullnægja í því sambandi.
Fram til síðustu ára báru heimilin, og þá
sérstaklega húsmæðurnar, veg og vanda, erfiði
og umstang af þeim mikla fjölda sjómanna
og annars verkafólks, sem til Evja streymir
hvem vetur í atvinnuleit. Heimilin hýstu sem
sé allt þetta fólk, sjómenn, aðgerðarmenn,
beitningamrenn. Heimilisstörf húsmóður-
innar margfölduðust við matargerð, þjónustu-
brögð, ræstingu o. s. frv. Nú er þetta allt að
breytast í Evjum. Útgerðarmenn í samein-
ingu eða samvinnu og svo fiskvinnslustöðv-
arnar reka sérstakar matstofur handa að-
komnu verkafólki. Verbúðir rísa af grunni, þar
sem aðkomnir vertíðarmenn matast og sofa.
Einnig leigja margir einstaklingar aðkomu-
mönnum herbergi. Hinir stóru og rúmgóðu
bátar verða einnig vistawerur aðkomusjó-
manna.
Þá er eftir að geta veitt aðkomufólkinu að-
stöðu til þrifnaðar og umhirðu. Nokkur
þáttur í þeirri viðleitni er þvottahús bæjar-
ins. Það hefir verið byggt á undanfömum 5
árum og búið fullkomnustu vélum. Það kost-
ar um 250 þúsundir króna. Þama er fyrst og
fremst þveginn þvottur frá stofnunum bæj-
arins, svo sem sjúkrahúsi og elliheimili. Að
öðru leyti er reynt að fullnægja þörfum og
beiðnum bæjarbúa í heild og aðkomumanna
á vertíð. Stofnunin er mikilvægt þrifafyrir-
tæki og til mikilla þæginda í bænum.
ELLIHEIMILIÐ.
Mörg ár eru nú liðin, síðan sú hugsjón
vaknaði með Eyjabúum, að bærinn eignaðist
elliheimili, þar sem garnla fólkið gæti notið
hvíldar og friðsældar á ævikvöldinu. Þessi
hugsjón Eyjabúa hefir nú orðið að veruleika.
Bærinn keypti stórt og vandað íbúðarhús
byggt úr steinsteypu. Lét hann breyta því og
betrumbæta það. Nú er það elliheimili
kaupstaðarins. Þar er rúm fyrir 23 vistmenn.
Það er nálega fullsetið. Kostnaður við við-
gerð hússins og útbúnað allan nemur nú
um hálfri milljón. Ekki liefir það fé ein-
vörðungu verið lagt fram úr bæjarsjóði. Kven-
félagið Líkn mun þar hafa lagt fram nokkra
peningaupphæð, svo og sjómannadagsráðið í
kaupstaðnum. Nerna þær upphæðir um 40
þúsundum króna.
FLESTIR BÚA í EIGIN FlUSNÆÐI.
Um 80% af Eyjabúum búa í eigin hús-
næði. Óvíða á landinu hefir meira verið bvggt
af íbúðarhúsum en í Eyjurn undanfarin 6—8
ár. Kunnugt er, að íbúðarhús í Eyjum verða
öllum almenningi ótrúlega ódýr. Þar veldur
mestu um samhjálp rnanna í bvggingar-
framkvæmdunum. Hún mun einstæð. Ná-
granni minn bvggir hús. 14 menn steypa
upp kjallarahæðina sunnudagsmorgun. Ég
hefi orð á því við hann, að rnikið hljóti þessi
sunnudagsvinna að kosta hann. Ónei, ekki
mikið. Hann átti hana inni hjá þeim flest-
um. Hafði hjálpað þeim áður. Þegar hæðin
sjálf er steypt, hjálpa honum 20 menn og
nokkrir hurfu aftur, komust ekki að. Mest
alla þá vinnu hafði nágranninn átt hjá þess-
um mönnum, hjálpað þeim áður. Þannig
koma fátækir menn í Evjum upp góðum
íbúðarhúsum fvrir ótrúlega litla peninga.
Sparisjóður Vestmannaevja og Útvegs-
bankinn þar lána mörgum byggjandanum
nokkra peningaupphæð til byggingarfram-