Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 7
Árni Magnússon félagsmálaráðherra tekur fyrstu skóflustungu að nýjum nemendagörðum Félagsstofnunar
stúdenta við Háskólann á Akureyri.
Sambands íslenskra sveitarfélaga um
áherslur í sveitarstjórnarmálum á næst-
unni. „Sameining sveitarfélaga er helsta
áhersluatriðið og mikilvægt að hefja nú
þegar undirbúning að slíkri vinnu og sam-
hliða að endurskoða tekjustofna sveitarfé-
laga. Ég sé fyrir mér að næsta ár verði tími
undirbúnings. Við eigum að gefa okkur
nokkurn tíma til þess að undirbúa næstu
skref í þessum málum og vanda mjög til
þeirra. En ég sé líka fyrir mér að árið 2005
geti orðið ár uppskeru og að þá förum við
að sjá einhvern árangur af því starfi sem
ég vil koma af stað á næstunni."
Fjölbreyttari verkefni
Árni kveðst telja að einkum tvennt muni
efla sveitarfélögin. Annars vegar að þau
haldi áfram að stækka en hins vegar að
þau taki að sér aukin verkefni og þjón-
ustu. „Stöðugt erfiðara verður fyrir fá-
mennari sveitarfélög að mæta kröfum íbú-
anna um aukna og betri þjónustu og lífs-
gæði. Til að mæta kröfum nútímans er
mikilvægt að stækka sveitarfélögin, efla
þjónustuna og í kjölfar þess að auka fjöl-
breytni viðfangsefnanna, þannig að sveit-
arfélögin taki til sín þá þjónustu sem eðli-
legt er að rekin sé á ábyrgð þeirra. Ég er
þeirrar skoðunar að það verði mjög erfitt
fyrir minni sveitarfélögin að taka málefni
fatlaðra að sér þótt sú þjónusta eigi ekki
síður heima hjá sveitarfélögunum en rík-
inu. Þar sem gerðar hafa verið tilraunir
með að færa málefni fatlaðra til sveitarfé-
laganna hafa þær verið gerðar á forsend-
um byggðasamlaga þar sem sveitarfélög
hafa sameinast um þjónustuna. Þetta er
málaflokkur sem mörg núverandi sveitar-
félög er mynda stærri svæði þurfa að sam-
einast um." Árni segir að óformlegar um-
ræður hafi farið fram á sínu gamla sveitar-
stjórnarsvæði á Suðurlandi um yfirtöku
málefna fatlaðra. I því efni telji menn
nauðsynlegt að sveitarfélög á stærra svæði
nái höndum saman um málið. Ef vel eigi
að takast til þurfi öll sveitarfélögin í Árnes-
sýslu að sameinast um málaflokkinn.
Hvernig er prentmálum
háttað í þínu sveitarfélagi?
Getum vió orðió aó liöi?
VISTVÆN RRENTSM IÐJ A
www.gudjono.is
Sími 511 1234
Prontað ofni