Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Qupperneq 8

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Qupperneq 8
Um 400 íbúa sveitarfélög á dögum Jónsbókar „Það er nauðsynlegt að velta því fyrir sér hversu stór sveitarfélögin eiga að verða. Ég hef í sjálfu sér ekki myndað mér end- anlega skoðun á því. Það er hins vegar merkilegt að þegar farið er að lesa Jóns- bók er þar talað um að sveitarfélög skuli ekki telja færri íbúa en um 400. Viðmið- unin var um 20 stórbændur og um 20 heimilismenn á bæ að meðaltali. Mér finnst merkilegt að á þeim tíma skuli menn hafa litið á það sem lágmarksstærð sveitarfélaga að þar væru allt að 400 íbú- ar. í dag erum við að upplifa allt önnur viðhorf í mun fjölmennara og fjölbreyttara þjóðfélagi." Árni segir að rekja megi núverandi ástand að hluta til þess tíma þegar bænda- samfélagið tók að leysast upp og þéttbýli að myndast. Við það hafi ákveðin sam- heldni gliðnað og fólk ekki séð bænda- byggðir og þéttbýli eiga nægilega samleið innan sveitarfélaga. í dag séu allt aðrar aðstæður í landinu og við þeim verði að bregðast. „Ég tel að ekki verði um marga sterka byggðakjarna að ræða í framtíðinni. Þá er ég jafnvel að tala um einn sterkan byggðakjarna f hverjum landshluta. Akur- eyri og Eyjafjarðarsvæðið á Norðurlandi. Austurland með Egilsstaði og byggðirnar sem mynda Fjarðabyggð í dag, neðri hluta Borgarfjarðar á Vesturlandi, Ölfus, Hvera- gerði og Árborgarsvæðið á Suðurlandi og væntanlega ísafjarðarsvæðið áVestfjörð- um. Ég tel að þessir kjarnar muni styrkjast. Akureyri hefur að undanförnu verið að styrkjast sem háskólasamfélag og sömu sögu má segja úr Borgarfirði þar sem er um 500 manna háskólasamfélag í Bifröst og einnig háskólasamfélag á Hvanneyri. Þetta hefur gríðarleg áhrif og við sjáum líka hvað áhrif fjölbrautaskólarnir geta haft, til dæmis á Selfossi, Egilsstöðum og Akranesi." Öflugur byggðakjarni í hverjum landshluta „Við verðum að horfast í augu við að besta leiðin tii þess að viðhalda öflugri og gefandi byggð í landinu er sú að þessir byggðakjarnar geti þjónað öðrum byggð- um. Þar á ég við þjónustu á mennta- og heilbrigðissviði og einnig menningarsvið- inu þótt þeir sogi til sín fólk af nærliggj- andi svæðum. Þjónustan verður ekki alls- staðar eins. Það á líka við um höfuðborg- arsvæðið. Sveitarfélögin eru misjafnlega gefandi við íbúa sína þótt gengið sé út frá sömu grunnforsendum um þjónustustig. Það breytir því þó ekki að við verðum að leggja áherslu á öfluga byggðakjarna í hverjum landshluta," segir Árni Magnús- son félagsmálaráðherra. Nýr gagnagrunnur auðveldar upplýsingastreymi Hag- og upplýsingasvið Sambands ís- lenskra sveitarfélaga kynnti á blaða- mannafundi þann 19. júní nýjan gagna- grunn fyrir upplýsingar varðandi sveitarfé- lögin. Cagnagrunnurinn er unninn í sam- starfi við ráðgjafa- og endurskoðunarfyrir- tækið KPMG. Jafnframt voru kynntar bráðabirgðaniðurstöður úr ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2002. gera það að verkum að meiri og nákvæm- ari upplýsingar liggja fyrir um afkomu og rekstur sveitarfélaganna en verið hefur til þessa. Nánar verður fjallað um afkomu sveitarfélaganna á liðnu ári í blaðinu síðar. Nýi gagnagrunnurinn hefur þegar verið tekinn í notkun en hann gerir alla úr- vinnslu úr ársreikningum sveitarfélaganna auðveldari og markvissari. Auk þess eykur hann möguleika á fjölþættum samanburði milli sveitarfélaga á einstökum rekstrar- þáttum í starfsemi þeirra. Þá hefur upp- bygging hans gert það að verkum að bráðabirgðaniðurstöður úr ársreikningum sveitarfélaga liggja fyrir mun fyrr en verið hefur undanfarin ár. Ársreikningar sveitar- félaganna fyrir árið 2002 eru nú gerðir upp eftir nýjum reikningsskilareglum sem Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri, Halldór Hróarr Sigurösson, endurskoðandi hjá KPMG, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands fslenskra sveitarfélaga, og Hermann Sæmundsson, ráðuneytisstjóri ! fé- lagsmálaráðuneytinu. Mynd: Ingibjörg Hinriksdóttir. 8

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.