Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 10
Sameining sveitarfélaga
Hægfara breytingar farsælastar
Hægfara breytingar eftir sameiningu sveitarfélaga virðast reynast vel til að halda samstöðu.
Huga þarf að hinu smáa, virða venjur og hefðir í einstökum hlutum sameinaðs sveitarfélags.
Smærri mál geta undið upp á sig og valdið óánægju sem er yfirfærð yfir á önnur málefni eða
sameininguna sem slíka.
Þetta kemur fram í erindi þeirra Grétars Þórs
Eyþórssonar og Hjalta Jóhannessonar hjá Rann-
sóknastofnun Háskólans á Akureyri (RHA) um
sameiningu sveitarfélaga á Eyþingssvæðinu.
Þeir kynntu efni sitt á ráðstefnu sem Rann-
sóknastofnunin gekkst fyrir ásamt Eyþingi um
Ólikar kröfur í sameinuðu
sveitarfélagi
Grétar Þór bendir á að Eyjafjarðarsvæðið bygg-
ist upp á einu stóru sveitarfélagi, nokkuð minni
kaupstöðum og síðan nokkuð ólíkum jaðar-
byggðum. Hann segir að þetta mynstur bjóði
komi til heildarsameiningar, ekki síst Grímseyj-
ar. Hann segir líklegt að ef af heildarsamein-
ingu verði muni þéttbýlisstaðirnir gera kröfu um
einhvern hluta stjórnsýslunnar og því verði að
aðlaga hana breyttu hlutverki þar sem ný og
áður óþekkt viðfangsefni skjóti upp kollinum.
Ef svæðinu er skipt í tvö sveitarfélög, það er
kaupstaðina utanvert að vestan og síðan önnur
sveitarfélög með Akureyri, eru meginkjarnarnir
tveir og við það myndu líkurnar á að minni
byggðarlögin geri kröfur um dreifingu stjórn-
sýslunnar minnka.
Stjórnsýsla á Húsavík
Grétar Þór segir að í Suður-Þingeyjarsýslu sé
einnig um mismunandi jaðarbyggðir að ræða
þar sem Laugar og Mývatn hafa ákveðna sér-
stöðu. Hann telur að kröfur um hlutdeild í
stjórnsýslu myndu koma fram frá þeim byggð-
arlögum í sameinuðu sveitarfélagi. Trúlega
næðust samningar um staðsetningu allrar
meginstjórnsýslu á Húsavík, þó að því gefnu að
svæðisbundið lýðræði yrði á einhvern hátt
tryggt, til dæmis með þjónustuskrifstofum að
Laugum og við Mývatn.
Grétar Þór Eyþórsson, framkvæmdastjóri Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri (t.h.), og Hjalti Jó-
hannesson, sérfræðingur við sömu stofnun, hafa um árabil varið miklum tfma f rannsóknir á sameiningu
sveitarfélaga.
sameiningarmál sveitarfélaga, sem haldin var á
Húsavík í lok apríl. Þeir þættir sem athugun
Rannsóknastofnunarinnar beindist að voru áhrif
sameiningar sveitarfélaga á svæð-
inu á rekstur, fjármál, þjónustu og
stjórnsýslu sveitarfélaganna auk
áhrifa á búsetu- og byggðaþróun
og lýðræði. Grétar Þór segir nauð-
synlegt að huga að lýðræðislegri
stöðu byggða utan stóru þjónustu-
og stjórnsýslukjarnanna. Til dæmis
slíka stöðu annarra byggðarlaga á
Eyjafjarðarsvæðinu gagnvart Akur-
eyri og eins stöðu Húsavíkurbæjar gagnvart
öðrum byggðum í Suður-Þingeyjarsýslu.
upp á ólíkar kröfur í sameinuðu sveitarfélagi.
Við sameiningu verði meðal annars að gera ráð
fyrir kröfum um hverfastjórnir eða nefndir í
kaupstöðunum og jafnvel einhverjum dreifbýl-
isbyggðanna. Tvær eyjar tilheyri einnig svæðinu
og huga verði að lýðræðislegri stöðu þeirra
Þrír jafngildir staðir
Þegar rætt er um Norður-Þingeyjarsýslu blasir
flóknara dæmi við, að sögn Grétars Þórs. Þar er
um þrjá nokkuð jafngilda byggðakjarna að
ræða með svipað vægi. Hann segir að erfiðara
sé að segja fyrir um hvernig mál myndu þróast
þar og spurningar séu um hvort
Þórshöfn yrði sterkust á meðal
jafningja. Þar gæti hugsanlega
þróast þriggja kjarna módel líkt og
í Fjarðabyggð, þar sem þrír bæir
deila með sér stjórnsýslu sveitarfé-
lagsins.
Miðlægni eykst en nálægð
minnkar
í rannsókn RHA kemur fram að almennt þjón-
ustustig sé hátt og gæði þjónustunnar mikil á
Eyjafjarðarsvæðinu og í Suður-Þingeyjarsýslu.
Grétar Þór segir líklegt að ef af heildarsameiningu
verði á Eyjafjarðarsvæðinu muni þéttbýlisstaðirnir
gera kröfu um hluta stjórnsýslunnar og því verði
að aðlaga hana breyttu hlutverki þar sem ný og
áður óþekkt viðfangsefni skjóti upp kollinum.
10 ------