Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Qupperneq 13
verklag og vinnubrögð úrslitum og hér skulu
nefnd nokkur atriði. í orðræðu forystumanna
Sambands íslenskra sveitarfélaga og margra
sveitarstjórnarmanna fer mikið fyrir hugmynd-
um að flutningi verkefna frá ríkisvaldinu til
sveitarfélaganna. Þessi verkefni þarf að skil-
greina mun betur en gert er og staðfesting á
vilja Alþingis í þessum efnum þarf að liggja fyr-
ir í formi verkáætlunar til fleiri ára. Það ber að
hafna verktakahlutverki sveitarfélaganna í til-
færslu verkefna en þess í stað byggja á breyt-
ingum á tekjustofnakerfinu. í ályktun fulltrúa-
ráðsfundarins er lagt til að skipuð verði undir-
búningsstjórn með fulltrúum ríkis og sveitarfé-
laga sem geri tillögu að breyttri sveitarfélaga-
skipan. Ég tel mikla hættu á að sjónarmið og
viðhorf minni sveitarfélaga verði þar ofurliði
borin. Þeim, sem að samþykkt tillögunnar
stóðu, ber að gera grein fyrir því hvernig sam-
skiptum við sveitarstjórnir í landinu um þetta
mikilvæga verkefni verður háttað. Án slíks sam-
ráðs er því miður hætta á að minni sátt verði
um tillögur verkefnisstjórnarinnar þegar þær líta
dagsins Ijós. Miðað við þær forsendur sem fyrir
liggja er eðlilegt að gefa sér það að róttækar
breytingar á sveitarfélagaskipaninni séu
framundan."
Hverfaráð verði skilyrði
„Sveitarstjórnir við Eyjafjörð ættu því nú þegar
að taka upp viðræður og velta fyrir sér samein-
ingarvalkostum. Það væri mikill styrkur ef þær
gætu komið sér saman um tillögu áður en þær
hafa verið fullmótaðar af öðrum. Þær viðræður
þurfa fljótt í upphafi að leiða til niðurstöðu um
það hvernig stjórnsýslan pigi að líta út í nýju
sveitarfélagi, einu eða fleirum. Hvernig tryggja
skuli valddreifingu og jafna möguleika þeirra
sem búa á tilteknum svæðum til að hafa áhrif á
ákvarðanatöku þegar hún snertir hagsmuni þess
sama svæðis eða byggðarlags. Þar koma hverf-
isnefndir eða hverfisráð ekki bara til greina
heldur eiga þau að vera skilyrði. Tryggja þarf að
menningarleg og félagsleg þjónusta og upp-
bygging sé ekki bara miðlæg heldur líka út-
sækin. Það þarf að gera ráð fyrir þjónustumið-
stöðvum eða útibúum frá hinni miðlægu stjórn-
sýslu. Þýðing íbúaþinga fær nýja merkingu og
aukið vægi. Frá þessu skipulagi má síðan hverfa
eða styrkja það enn frekar allt eftir þvf hvað
reynslan segir til um. Ég tel að sveitarfélögin
ættu skiiyrðislaust að ráða sér utanaðkomandi
fagaðila eða stjórnanda til að undirbúa og stýra
viðræðum um sameiningarmálin. Kostnaður
fengist að mestu greiddur úr Jöfnunarsjóði,"
sagði Bjarni Kristjánsson.
Sandföng
Brunnar og framlengingar
Vatnstankar
Olíu- og fituskiljur
Pósthólf 50, 620 Dalvík, Sími 460 5000, Fax 460 5001, Netfang saeplast@saeplast.is, Heimasíða www.saeplast.com