Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Qupperneq 14

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Qupperneq 14
Sameining sveitarfélaga Þarf að byggjast á vilja íbúanna „Landið er líkami þjóðarinnar og sveitarstjórnir eru í raun sérhæfð líffæri innan þess líkama. Þess vegna er ekki sama hvernig líffærin starfa eftir því hvar í líkamanum þau eru staðsett." Jóhann Cuðni Reynisson, sveitarstjóri í Þingeyj- arsveit, gerði þessi orð að eins konar útgangs- punkti í erindi sínu á ráðstefnu RHA og Eyþings á Húsavík um sameiningu sveitarfélaga. Hann benti á að mikill munur væri á þörfum og kröf- um íbúa í dreifbýli annars vegar og þéttbýli hins vegar. Finna þurfi leiðir til þess að standa vörð um slíka hagsmuni og það verði varla gert með því að taka frelsi og frumkvæði til samein- ingar frá íbúunum sjálfum. Hann lagði áherslu á að meginviðfangsefni sveitarfélagins byggðust á þjónustu við íbúana. Sveitarfélag væri í raun heimili fólks og átthagar íbúanna sem þeir væru bundnir tilfinningalegum böndum. Sameiningin gekk ágætlega Þingeyjarsveit er eitt þeirra sveitarfélaga sem orðið hafa til að undanförnu vegna sameiningar dreifbýlishreppa. Jóhann Guðni sagði samein- inguna hafa gengið ágætlega en enn væri unn- ið að ýmsum málum vegna hennar. Sameining- in hafi haft jákvæð fjárhagsleg áhrif auk þess sem mikill árangur hafi fengist af sameiginlegri yfirsýn og sameiginlegri stefnumótun. Hann fjallaði nokkuð um ýmis verkefni Þingeyjar- sveitar, bæði stærri og smærri, sem sveitarfélag- ið annast eða á aðild að. Hann sagði meðal annars frá því að lögð væri áhersla á að upp- lýsa íbúana um að hverju væri verið að vinna, bæði með upplýsingagjöf á Netinu en einnig með ítarlegum bókunum í fundagerðum sem sendar eru inn á hvert heimili í sveitarfélaginu og birtar á heimasíðu sveitarfélagsins, www.thingeyjar- sveit.is. Varla frumkvæði að sameiningu Jóhann Guðni sagði að sjónarmið um frekari sameiningu væru nokkuð skipt í sveitarfélaginu. í síð- ustu sveitarstjórna- kosningum hafi verið lóhann Guöni Reyn/sson, , „ . , ... sveitarstjóri Þineeyjar- boðmr fram tveir list- sveitar. ar. Annar þeirra, J-listi, hafi haft frekari sameiningu á stefnuskrá, til dæmis við Aðaldælahrepp og Skútustað- hrepp, en E-listi hafi ekki sett frekari samein- ingu á dagskrá. E-listinn hafi hlotið fjóra menn í sveitarstjórn en J-listinn þrjá. Meirihluti sveitar- stjórnar sé því skipaður fólki sem ekki hyggi á ferkari sameiningu að svo komnu máli. Því muni Þingeyjarsveit tæpast hafa frumkvæði að sameiningu en verði aftur á móti eflaust talin aðlaðandi sameiningarkostur fyrir önnur sveit- arfélög. Jóhann Guðni sagði að sameining sveitarfélaga byggist á ferli sem oft sé viðkvæmt fyrir íbúana. Sameining eigi að sínu mati að byggjast á frumkvæði þeirra sjálfra og að þeir verði að fá tíma til þess að vinna að þeim mál- um. Hann kvaðst setja spurningarmerki við endanleg tímamörk í þessu efni, tímamörk á borð við árið 2006 og varpaði þeirri spurningu fram hvaðan þau væru komin, ekki síst með hliðsjón af því ferli sem nýsameinuð sveitarfé- lög eru að ganga í gegnum. Hann sagði að virða yrði vilja fólksins. Sameining ætti ekki einvörðungu að miðast við fjölda íbúa í sveitar- félögunum heldur ýmsa samfélagslega þætti og landfræðilega nálægð við þéttbýla þjónustu- kjarna. í því sambandi yrðu menn að gera sér grein fyrir og skilgreina hvað fælist í hugtökum eins og heildstæðu atvinnu- og þjónustusvæði vegna þess að hefðbundin sjónarmið um fjölda og hagkvæmni ættu ekki alltaf við. Þvingun ekki af hinu góða Nokkrar þversagnir felast að dómi Jóhanns Guðna í hugmyndunum um sameiningu sveit- arfélaga. Hann nefndi sem dæmi að á sama tíma og verkefni væru færð frá ríkinu til sveitar- félaganna vegna þekkingar á innviðum og þörf- um væru sveitarfélögin stækkuð og fjarlægð stjórnvalds frá íbúunum þar með aukin. Önnur þversögn fælist í því að efla eigi lýðræðið með því að færa ákvarðanatöku nær íbúunum en samt að kippa lýðræðisákvæðum sveitarstjórn- arlaga úr sambandi þannig að minnstu sveitar- félögin geti misst sjálfdæmi sitt. Þriðja þver- sögnin, sem Jóhann Guðni nefndi, er að sveit- arfélögin megi veita íbúum sínum ýmsa nær- þjónustu með þjónustusamningum við ríkið þannig að fólk eigi ekki að þurfa að leita út fyrir sveitarfélagið eftir þjónustu en hins vegar telji menn að sveitarfélögin eigi að vera þannig úr garði gerð að þau eigi ekki að þurfa að leysa sín mál með þjónustusamningum. Skuldsett sveitarfélag með miklar en óöruggar tekjur Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði, segir aðstæður krefjast þess að menn setjist niður að ræði sameiningarmál sveitarfélaga af alvöru; vegi og meti kosti sameiningar. Annars vegar við nágrannasveitarfélögin á Tröllaskaga en hins vegar á Eyjafjarðarsvæðinu öllu. Stefanía er fæddur Ólafsfirðingur en hafði ekki búið þar frá barnsaldri þegar hún réðst þangað sem bæjarstjóri fyrir tæpu ári. Hún kvaðst hafa þurft að kynnast Ólafsfirði upp á nýtt og frá allt öðru sjónarhorni. Hún hafi komist að því að sveitafélagið er með skuldsettustu sveitarfélög- um landsins en einnig á meðal þeirra tekju- hæstu miðað við skatttekjur. Skýringin á háum skatttekjum liggi í launum sjómanna á frystitog- urum sem landa í Ólafsfirði og eiga þar lög- heimili og allir viti hversu örugg tekjulind það sé. Hún kvaðst hafa komist að því að þótt mik- ill kvóti sé skráður á Ólafsfjörð sé landvinnslan lítil og treysti að mestu á smábátaútgerð. Á undaförnum árum hafi Ólafsfirðingar mátt horfa upp á að öflugum sjávarútvegsfyrirtækjum hefur verið lokað og að eitt stærsta fyrirtækið í Ólafs- firði, byggingarfyrirtæki sem veitti mörgum iðn- 14

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.