Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Síða 15

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Síða 15
aðarmönnum vinnu, sé farið á hausinn. Áhuga- verð sprotafyrirtæki, sem nokkrir einstaklingar hafa barist fyrir og lagt allt undir, þurfi enn að róa lífróður þrátt fyrir fögur fyrirheit um stuðn- ing við nýsköpun. Kröfufrekt fjármagn geti kippt fótunum undan vonum manna um starf- semi öflugra nýsköpunarfyrirtækja sem byggja að miklu leyti á nýjustu tækni í tölvusamskipt- um og þurfi ekki að vera á höfuðborgarsvæðinu eða í útlöndum. Stefanía benti einnig á að eng- inn byggingafu11trúi eða bæjartæknifræðingur starfi í Ólafsfjarðarbæ og atvinnu- og ferða- málafulltrúi bæjarfélagsins sé hættur störfum og ekki tök á að ráða annan í hans stað á þessu ári. Allar framkvæmdir séu einnig í lágmarki í bæjarfélaginu. Góð þjónusta gegn fækkun íbúa Þrátt fyrir allt benti Stefanía þó á að mjög margt jákvætt sé að finna í bæjarfélaginu. Þar á meðal góðan grunnskóla og skóla- og félagsþjónustu, sem rekin er í samvinnu við Dalvíkurbyggð og Hríseyjarhrepp, en með því að sameina kraft- ana hafi verið hægt að ráða hóp fagfólks sem skipt hafi sköpum um að veita góða þjónustu á þessu sviði. í Ólafsfirði er góður leikskóli, tón- listarskóli, heilsugæsla og góð þjónusta við aldraða. Stefanía segir að þrátt fyrir allt hafi íbúatala staðið nokkuð í stað sem sýni að Ólafsfirðing- ar hafi þrjóskast við. Þar hljóti sú þjón- usta sem er veitt að eiga mikinn þátt. Vantar vinnu fyrir karlmenn Stefánía kveðst smám saman hafa verið að gera sér grein fyrir því að það vanti frekar vinnu fyrir karlmenn, þó svo að konur séu líka á atvinnuleysiskrá. Fleiri kar- menn séu í Ólafsfirði en konur eins og annars staðar á landsbyggðinni. Karlar eru hreyfanlegra vinnuafl en konur og það er hefð fyrir því í sjávarplássi eins og Ólafsfirði að karlar sæki vinnu langt frá heimilinu og séu dögum og vik- um saman í burtu. En tímarnir eru breyttir og fjarvera er ekki lengur eins sjálfsögð og hér áður fyrr. Ungt fjölskyldufólk sættir sig ekki við það lengur. „Ég velti því fyrir mér hvort samein- ing sveitarfélaga geti haft jákvæð áhrif í því efni. Hvort hún skili meiru en auknu samstarfi. Það þarf ekki að ræða að samstarf eða samein- ing getur gert alla þjónustu, sem sveitarfélögum er skylt að veita íbúum sínum, mun betri og hagkvæmari í alla staði. Það verður auðveldara að ráða fagfólk til starfa og þá um leið stígur menntunar- og launastig á landsbyggðinni og verður samkeppnishæft við Akureyri og höfuð- borgarsvæðið." Láta af hreppapólitík Stefanía kveðst telja að ekki þurfi sameiningu til að stækka eða víkka atvinnusvæðin. Menn þurfi aðeins að láta af hreppapólitík í ráðninga- málum. „Vandinn er að atvinna er takmörkuð gæði á því sem telst sameiginlegt atvinnusvæði út frá til dæmis staðsetningu okkar í Ólafsfirði. Spurningin er því hvort sameining, stór eða smá, efli almennt atvinnulíf á svæðinu og þá einkum atvinnulíf fyrir karla því að ég gef mér að það geti eflt atvinnulíf fyrir konur að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum. Við vitum öll að möguleikar sveitarfélaga til beinna afskipta af atvinnulífinu eru takmarkaðir. Það er sagt að sveitarfélögin geti skapað eftirsóknarverð skil- yrði. Gert viðkomandi svæði eftirsóknarvert til búsetu þannig að framkvæmdaaðilar kjósi að koma þangað og setjast að. En spurningin er hvort það er nóg," segir Stefanía Traustadóttir. Stefanía Traustadóttir, bæj- arstjóri Ólafsfjarðarbæjar. DÆLUR TIL ALLRA VERKA ilJUNG EVpumpen Þýskar brunndælur, grunnvatnsdælur, skólpdælur og brunnar fyrir sumarhús, einbýlishús.fjölbýli, kaupstaði og sveitafélög. Bæjarlind 1-3 | 201 Kópavogur | Sími: 5 400 600 | Fax: 5 400 610 | www.daelur.is G« PUMPS "High and Dry” Bandarískar fjöinota miðflóttaaflsdælur/ dælustöðvar fyrir skólp, sjó og vatn. Tilvaldar lausnir fyrir minni sveitafélög. Dæíur ehf. ZZZZZZZZZZIZZI 15

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.