Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 16

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 16
Samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Áfengis- og vímuvarnaráðs Vertu tiI! Vertu til! er samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Áfengis- og vímuvarnaráðs til að efla áfengis- og fíkniefnaforvarnir sveitarfélaga. Verkefnið er til fimm ára. Sigríður Hulda Jónsdóttir, verkefnisstjóri og varaformaður, og Svandís Nína Jónsdóttir verkefnisstjóri skrifa. Megininntak verkefnisins er fólgið í ráðgjöf og upplýsingamiðlun um skipulag og framkvæmd forvarnastarfs gagnvart ungu fólki. Nafngift verkefnisins, Veríu lil, endurspeglar áhersluna á hið góða og jákvæða í lífinu; á nauðsyn þess að ungt fólk njóti lífsins án vímugjafa. Lífið er svo skemmtilegt eins og það er - því segjum við: Verlu til! Stjórn og starfsáherslur í því skyni að styrkja tengsl milli sveitarfélag- anna innbyrðis var ákveðið að stjórn verkefnis- ins yrði skipuð fólki úr dreifbýli og þéttbýli. Valdssvið verkefnisins dreifist því á eftirfarandi sveitarfélög og svæði: Þingeyjarsýslu, Reykja- vík, Carðabæ, Isafjörð og Akureyri. Formennska verkefnisins fór til sveitarfélaga Þingeyjarsýslna en Soffía Gísladóttir, félagsmálastjóri svæðisins, er handhafi þess. Varaformennskan er í hönd- um Sigríðar Huldu Jónsdóttur, náms- og starfs- ráðgjafa í Garðabæ. Þeim til fulltingis eru Hall- dór Halldórsson, bæjarstjóri ísfirðinga, Soffía Pálsdóttir, verkefnisstjóri hjá íþrótta- og tóm- stundaráði Reykjavíkur, Bryndís Arnarsdóttir, forvarnafulltrúi Akureyrarbæjar, og Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík. Verkefnisstýrur eru Svandís Nína Jónsdóttir og Sigríður Hulda Jónsdóttir sem jafnframt er vara- formaður verkefnisins. Verkefnið leggur áherslu á • Ráðgjöf til sveitarfélaga við uppbyggingu forvarnastarfs. • Upplýsingamiðlun með heimasíðu, póst- lista og fleiru. • Að efla samvinnu aðila sem vinna að for- vörnum. Hugmyndafraeði Verkefnið byggir meðal annars á kenningum Harvey Milkmans, prófessor í sálfræði við há- skóla í Denver. Milkman hefur um árabil unnið athyglisvert starf í þágu forvarna og hafa kenn- ingar hans verið lesnar víða um heim. Megin- inntak bókar hans „Pathways to Pleasure" fjallar um það hvernig ungt fólk getur byggt upp sjálfsvitund sína og sjálfstraust án vímuefna. Vellíðan án vímuefna Milkman telur að það sé hægt að kenna ung- lingum að finna þetta „sælu"ástand (natural- highs) sem þeir sækjast eftir með neyslu vímu- efna á annan hátt og þá án vímuefna. Árið 1990 setti hann á fót námskeið með unglingum sem töldust í áhættuhópi fíkniefnaneytenda. Námskeiðið nefnist „Uppgötvaðu sjálfan þig" eða „Self-Discovery" á ensku og hefur það að markmiði að kenna ungu fólki að finna vellíðan eða „natural-highs" eins og hann nefnir það, á eigin forsendum og án aðstoðar vímugjafa. Þessi áhersla er ein af mörgum í verkefninu Vertu til! Með því að efla einstaklinginn sjálf- an og leggja áherslu á að skapa honum tæki- færi til heilbrigðs lífs erum við að sinna for- varnastarfi í sinni tærustu mynd. Markmið og áherslur • Forvarnir gegn sjálfseyðandi hegðun ungs fólks verði viðurkenndur og sýnilegur málaflokkur í sveitarfélögum landsins. • Sveitarfélögin setji sér skriflega forvarna- áætlun. • Sveitarfélög ráði forvarnafulltrúa sem hef- ur umsjón með stefnumörkun og fram- kvæmd. • Forvarnir verði fastur liður í starfi sveitar- félaganna og samþættur öðrum viðfangs- efnum í stað þess að setja upp tímabund- in átaksverkefni. • Forvarnir taki mið af aðstæðum á hverj- um stað og þróist í takt við starfsemi sveitarfélagsins. • Litið sé á forvarnir sem langtímaverkefni eins og önnur viðfangsefni sveitarfélags- ins. • Efla samvinnu milli aðila sem vinna að forvarnamálum. Það er Ijóst að mörg sveitarfélög sinna þess- um málaflokki vel. Það er ánægjulegt. Önnur sveitarfélög eru með ómótaðri stefnu. Því miðar starf okkar að því að mæta hverju sveitarfélagi þar sem það er statt og aðstoða við að efla for- varnastarfsemi á forsendum heimamanna sem þekkja best allra umhverfi sitt. Við leggjum áherslu á að efla grasrótina og styðja það sem þegar er vel gert. Sveitarfélögin eru mjög mis- munandi og því er nauðsynlegt að taka tillit til þess. í þessu skyni leggur Vertu til megin- áherslu á ráðgjöf og upplýsingamiðlun um þær margvíslegu aðferðir sem hafa gagnast í forvarnastarfi. Við komum til ykkar Verkefnið verður kynnt á aðalfundum Lands- hlutasamtaka sveitarfélaganna í haust. Á kynn- inguna verða sérstaklega boðaðir þeir aðilar innan hvers sveitarfélags sem unnið hafa að forvarnastörfum eða hafa áhuga á að gera það. Þannig vonumst við til að ná til þeirra sem mest koma að forvarnastarfi í sínu sveitarfélagi. Það er engin þörf á að neyta vímuefna ti! þess að upplifa góðar stundir, skemmta sér með vinum sínum eða njóta þess að vera ástfangin(n). Þannig eru skilaboð okkar til ungs fólks og foreldra þeirra. íslendingar þurfa að fjárfesta betur í æsku landsins en verið hefur. Ungmenni þurfa hvatningu og stuðning samfé- lagsins alls ef þau eiga að ná fullum þroska og komast til manns. 16

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.