Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Blaðsíða 20
Akraneskaupstaður
Snorri var Skagamaður
Skagamenn hafa á undanförnum árum unnið að uppbyggingu fjölbreytts Safnasvæðis á Görðum við
Akranes. Þar er að finna Byggðasafn Akraness og nærsveita, íþróttasafn íslands, Steinaríki fslands,
sem er veglegt steinasafn, og ætlunin er að opna safn Landmælinga (slands nú í haust. Þá er starf-
rækt listasafn í Kirkjuhvoli, veglegt Ijósmyndasafn, stórt bókasafn og héraðsskjalasafn, svo eitthvað sé
nefnt.
Upphaf Safnasvæðisins á Akra-
nesi má rekja til Byggðasafnsins í
Cörðum sem stofnað var 1959 og
er sjálfseignarstofnun í eigu Akra-
neskaupstaðar og sveitarfélag-
anna sunnan Skarðsheiðar. Garð-
ar eru fornt höfuðból og kirkju-
staður en rekja má búsetu þar allt
aftur til landnáms. Á Byggðasafn-
inu er meðal annars varðveitt
heildstætt safn muna frá fyrri tíð
er sýnir lífsbaráttu og búskapar-
hætti í gegnum aldir. Sérstaka at-
hygli vekur sjóminjadeild safnsins
sem skartar Kútter Sigurfara, 86
smálesta eikarskipi frá 1885.
Skipinu var haldið til handfæra-
veiða við strendur íslands til
1919 en síðan frá Færeyjum allt
til ársins 1970. Sigurfari hefur
verið færður í upprunalegt horf
þótt enn sé mikið verk óunnið
vegna framtíðarviðhalds hans.
Nokkur af eldri húsum á Akranesi
hafa verið flutt á safnasvæðið á
Görðum og endurbyggð þar en
frægast þeirra er Garðahúsið,
elsta steinsteypta hús landsins.
Einstakt steinasafn
í Steinaríki íslands er að finna
margar gerðir steina og steingervinga og er
safnið stærsta safn sinnar tegundar
sem varðveitt er innanhúss hér á
landi. Hluti safnsins er tileinkaður
gerð Hvalfjarðarganganna en við
gröft þeirra komu margvíslegar
myndanir úr bergi upp á yfirborð-
ið. Fyrsti vísir steinasafnsins varð
til áVegamótum á Snæfellsnesi
fyrir um áratug en var fluttur á
Akranes árið 1997. Upphaf steina-
safnsins og tilurð þess má rekja til Jóns Dags-
sonar, steinasafnara af Guðs náð, en mágur
hans er Þorsteinn Þorleifsson.forstöðumaður og
Kútter Sigurfari. Mynd: Ingólfur Júlfusson.
eigandi Steinaríkis íslands. Systir Jóns, Snjólaug
María, annast rekstur Safnaskálans og Maíru-
Hluti Steinaríkis íslands er tileinkaður gerð Hval-
Stökk Vilhjálms og
landmælingasagan
Sérstaka athygli vekja spor með
nokkuð löngu millibili þegar
komið er á svæði íþróttasafns ís-
lands í Safnaskálanum. Þegar
betur er að gætt þá reynist þetta
vera bronsverðlaunaþrístökk Vil-
hjálms Einarssonar frá Ólympfu-
leikunum í Melbourne í Ástralíu
1956. Safnið er það eina sinnar
tegundar á landinu og er lögð
áhersla á að kynna allar viður-
kenndar íþróttagreinar og segja
sögu þeirra. Hluti safnsins er til-
einkaður íþróttaiðkun á Akranesi
en Skagamenn hafa löngum ver-
ið í fararbroddi í knattspyrnu,
sundi og fleiri íþróttagreinum.
Með opnun safns Landmæl-
inga íslands nú í haust skapast
möguleikar til þess að fræðast
um íslenska náttúru og sögu
landmælinga hér á landi. Þegar hefur verið sett
upp sérstök forsýning í Safnaskálanum á Görð-
um þar sem sýndir eru ýmsir munir
í eigu Landmælinga.
fjarðarganganna en við gröft þeirra var haldið til
haga ýmsum steintegundum, borkjörnum og öðru
sem tengdist gerð fyrstu jarðganga hér á landi
undir sjó.
kaffis, sem er kaffihúss safnasvæðisins. Á svæð-
inu er einnig rekin upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn, safnabúð og nýlega var opnuð
Ljósmyndasafn á vefinn
Ljósmyndasafn Akraness var form-
lega stofnað um síðustu áramót.
Fyrsta framlag til stofnunar þess var
________ frá feðgunum Helga Dan og Frið-
þjófi Helgasyni sem afhentu Akra-
neskaupstað hluta af Ijósmyndaverkum sínum
auk þess sem undirritað var samkomulag um
að þeir afhentu Ljósmyndasafninu allar Ijós-
vinnustofa listafólks í Fróðá, einu
af uppgerðu húsunum á staðn-
um. Mikil og vaxandi starfsemi
fer þannig fram á Safnasvæðinu
á Görðum enda gera áætlanir
ráð fyrir að gestir þar verði á
þriðja tug þúsunda á þessu ári.
20