Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 24

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Page 24
Viðtal mánaðarins Grunnskólinn er hluti af ímynd sveitarfélaga Árni Einarsson, uppeldis- og menntunarfræðingur og bæjarfulltrúi í Seltjarnarneskaupstað, segir að auðveldara eigi að vera að fást við fíkniefnavandann hér á landi en í samfélögum þar sem vandinn er í ríkari mæli samofinn bakhlið velferðarinnar og hefur náð að festa félagslegar rætur. Hann segir einnig að grunnskólarnir séu hluti af samkeppnisstöðu sveitarfélaganna og því byggðamál í vissum skilningi. Árni Einarsson hefur unnið að vímu- vörnum um langt skeið. Hann segir að vímuefnavandi barna og ungmenna hafi stöðugt farið vaxandi hér á landi frá því á áttunda áratugnum. Vímuefn- in taki sífellt hærri toll og höggvi stærri skörð í raðir ungs fólks í formi dauðsfalla og einnig fjölda fólks sem geti ekki tekið þátt í eðlilegum samfé- lagsháttum né séð sér farborða sökum neyslu sinnar, auk þess að leggja þungar byrðar á herðar sinna nánustu. „Það er sorglegt að í samfélagi sem býr við hagsæld og velsæld á flestum sviðum og hefur nær allt til alls skuli vera nokkuð stór hópur af fólki sem lendir inn á þessa braut. Þetta er þó ekki sérstakt fyrirbæri hér á landi held- ur er þessi vandi til staðar hvarvetna á Vesturlöndum og virðist fylgja vaxandi velferð að einhverju marki," segir Árni. Skóli og æskulýðsstarf gegnir mikilvægu hlutverki í vímu- vörnum „Maður trúir því að hægt sé að halda í heiðri þá grein grunnskólalaganna sem kveður á um að veita skuli hverju barni menntun við hæfi og mæta þörfum þeirra eins og kostur er. Að því vil ég stuðia," segir Árni Einarsson bæjarfulltrúi f Seltjarnarneskaupstað. komin fram kynslóð fólks sem hefur fæðst inn í þetta lífsform og tekur við því sem félagslegum arfi sem erfitt getur reynst að koma sér út úr." Árni segir að í vímuvörnum skipti skólinn og annað uppeldisstarf ákaflega miklu til viðbótar við uppeldi heimilanna, hvort sem það fer fram af háifu skóla, íþrótta- og æskulýðsfélaga eða félags- miðstöðva. „í skólastarfinu er lagður grunnur að svo mörgu sem ræður miklu um hvernig börnunum reiðir af síðar á ævinni. Því þurfa viðfangsefn- in í skólunum að fanga huga barna og ungmenna, vera sem mest í samræmi við getu þeirra og áhuga og veita þeim útrás fyrir hreyfingu og félags- þörf. Forvarnastarf er samfélagslegt viðfangsefni þar sem ákveðin stefna þarf að liggja fyrir. Við þurfum að hafa einhverja hugmynd um hvaða ástand við viljum hafa varðandi fíkniefna- neyslu og hafa vilja og getu til þess að fylgja stefnunni eftir og beita þeim tækjum sem við höfum - bæði form- legum og óformlegum." „í þessu efni má segja að allt samfé- lagið sé undir vegna þess að miklu skiptir hvaða umhverfi börnum og ungmennum er búið. Hvernig þörfum þeirra er mætt varðandi menntun, félagstörf eða annað sem þau þurfa á að halda. Við getum velt því fyrir okkur hvort við gefum okkur nægan tíma til þess að vera með börnunum okkar eða hvort þau séu orðin af- gangsstærð í efnislegu lífsgæðakapp- hlaupi sem við rekum okkur síðan á að skiptir harla litlu máli þegar eitt- hvað bjátar á. Vímuefnavandinn hér á landi tengist ekki bakhlið velferð- arinnar í eins ríkum mæli og þekkist víða er- lendis þar sem hann er samofinn viðvarandi at- vinnuleysi, stéttaskiptingu og vonleysi og hefur náð að festa félagslegar rætur. Þegar svo er komið er neysla vímuefna bæði orðin flóttaleið frá ömurlegum aðstæðum og fjárhagsleg bjarg- ráð fólks, þar sem flóttinn felst í að hverfa á náðir vímunnar en bjargráðin í tekjuöflun með sölu og viðskiptum með vímuefni. Þessi hlið virðist samt því miður einnig vera að taka á sig mynd hér á landi. í sumum tilfellum er jafnvel Félagsmál fyrir austan Árni hefur setið í bæjarstjórn Seltjarnarneskaup- staðar um eins árs skeið eftir að hafa starfað að bæjarmálum á vegum Neslistans kjörtímabilið á undan. Auk setunnar í bæjar- stjórn situr hann í skólanefnd og æskulýðs- og íþróttaráði. Hann segir að félagsmálaáhugi hafi fylgt sér frá unga aldri. Hann hafi snemma farið að starfa með ungmennafélagshreyfingunni þar sem samfélagsáhuginn hafi vakn- að. „Það var mikið rætt um þjóðmál á bernskuheimili mínu í Breiðdal. Þar var gestkvæmt og stjórnmálamenn á meðal gesta þegar þeir áttu leið um Austurland og „Grunnskólarnir eru þannig orðnir hluti af sam- keppnisstöðu sveitarfélaganna og byggðamál í þeim skilningi, þar sem gott skólastarf úti um land er hluti af byggðabaráttunni og getur haft áhrif á hvar fólk vill búa." 24

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.