Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Qupperneq 26

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Qupperneq 26
Fræðslurit um vinnuveitendahlutverk sveitarstjórna Sveitarfélögin eru jafnstór vinnuveitandi og ríkið Út er komið á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga Fræðslurit númer 20 og fjallar það um hlut- verk sveitarstjórna sem vinnuveitenda. Höfundur þess er Karl Björnsson, sviðsstjóri kjarasviðs sam- bandsins og fyrrum formaður launanefndar þess. Hlutverk sveitarstjórna sem vinnuveitenda hefur ekki verið mikið til umræðu miðað við hvert umfang þeirra er að þessu leyti. Sveitarfélögin eru í heild sinni einn stærsti vinnuveitandi hér á landi eða álíka stór og íslenska ríkið. Starfs- menn sveitarfélaga eru nú um 19 þúsund og starfa í um 15 þúsund stöðugild- um, sem þýðir að hvor aðili um sig, ríkið og sveitarfélögin bera ábyrgð á um 20% mannafla á vinnumarkaði. Þá fara allt að 65% af skatttekjum sveitarfélaga til greiðslu launa svo ekki verður um villst að launakostnaður er langstærsti einstaki út- gjaldaliðurinn í rekstri þeirra. Sveitarfélögin eru því í veigamiklu hlutverki sem vinnuveitendur. Hlutverki sem skiptir verulegu máli fyrir rekstur þeirra og afkomu en einnig þá þjónustu sem þau veita, auk þess að hafa á að skipa bæði hæfu og ánægðu starfs- fólki. Karl fjallar mjög ítarlega um þessa þætti og skýrir þá í fræðsluritinu. Framtíðarsýnin er óskiptur vinnumarkaður í upphafi rekur hann aðdraganda þess að sveitarfélög tóku að sam- mælast um gerð kjarasamninga og stofnun launanefndar þeirra. í rit- inu kemur greinilega fram hver þörfin var að þessu leyti og hversu samvinna er nauðsynleg undirstaða þess að unnt sé að miða kjör starfs- fólks sveitarfélaga við það sem ger- ist á hinum almenna vinnumarkaði og að jafna kjör þess frá einu sveitarfélagi og einum vinnu- stað til annars. Karl fjallar nokkuð um starfsmat og tilgang þess að leggja kerfisbundið mat á innihald og einkenni starfa. Hann skýrir út hvaða þættir liggja að baki því, hvernig það er sett saman með tilliti til þess að framfylgja jafn- rétti og hvernig reynt hefur verið að tryggja að starfsmenn fái sömu laun fyrir sams konar störf sem í raun er undirstaða alls starfs launanefnd- ar og kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfé- laga. í fræðsluritinu er einnig fjallað um sam- ræmingu kjarasamninga sem meðal annars á að stuðla að auknum hreyfanleika á vinnumarkaði og nálgast meira jafnræði á milli launamanna. Fram kemur sú framtíðarsýn launanefndar sveitarfélaga að horfa ekki á vinnumarkaðinn sem tvískiptan; hinn almenna vinnumarkað og þann opinbera. í ritinu kemur fram að með því að samræma ýmsa grunnþætti á vinnumarkaði, þætti á borð við veikindarétt, rétt til orlofs- og lífeyrisrétt, svo nokkuð sé nefnt, skapist eðlileg- ur grundvöllur til samanburðar hvað beinar launagreiðslur varðar þótt því markmiði verði ekki náð að fullu nema á löng- um tíma. Lágmarks- og há- markslaun Karl bendir í fræðsluriti sínu á að sveitarfélögin verði að keppa um gott fólk á vinnumarkaði. Kjarasamningar sveitarfé- laga séu í flestum tilvikum mjög gagnsæir og eftir þeim farið þannig að bæði sé um lágmarks- og há- markssamninga að ræða á sama tíma og hinn al- menni vinnumarkaður nýti kjarasamninga gjarnan sem lágmarkssamninga eða viðmiðun um lág- markskjör. Af þeim sökum séu kjarasamningar sveitarfélaganna ekki alltaf sambærilegir við kjarasamninga á hinum almenna markaði þar sem fyrirtæki bjóði eftirsóttum starfskröftum mun betri kjör en kjarasamningar sýna. Sveitar- félögin búi við þetta samkeppn- isumhverfi og því hafi verið ákveðið að bæta kjör ákveðinna stétta í síðustu kjarasamningum, einkum kjör kennara í leik- og grunnskólum þar sem þeir sem og annað starfsfólk með langskóla- menntun hafi eðlilega sótt í hærra launuð störf á hinum almenna vinnumarkaði þegar kjörin þar voru betri en hjá sveitarfélögunum. Aukin ábyrgð til stjórnenda Karl bendir á að auk þess að bregðast við sam- Starfsmenn sveitarfélaga eru nú um 19 þúsund og starfa í um 15 þúsund stöðugildum. „Þótt launin þurfi að vera samkeppnishæf þá vega einnig aðrir þættir þungt. í því sambandi má nefna starfsöryggi, starfsumhverfi og möguleika til endurmenntunar," segir Karl Björnsson í fræðsluriti sínu. 26

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.