Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Síða 33

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2003, Síða 33
klukkustund. Tómas segir að áhersla sé lögð á fjölbreytni fræðsluefnis og leikja og nefndi til gamans að sérstakur kosningaleikur hafi verið settur saman og fólki boðið að taka þátt í hon- um á kosningadaginn nú í vor. Sumum hafi fundist óviðfelldið að efna til kosningaleiks og jafnvel heyrst raddir um að verið væri að við- hafa áróður á kjördag. Þegar fólk hafi hins veg- ar tekið þátt í leiknum hafi það komist að raun um að hann snérist alls ekki um þá stjórnmála- flokka eða stjórnmálamenn sem athyglin beind- ist að í kjörklefunum heldur eitt og annað sem tengdist garðinum sjálfum, til dæmis voru spurningar a borð við hvort kýrin kjósi fremur að drekka mjólk en vatn. í sérstöku leikjatjaldi í garðinum hefur meðal annars verið komið upp vog sem sýnir þunga þess sem stígur á vogar- pallinn miðað við að hann væri staddur á fimm mismunandi plánetum sólkerfis okkar. Fyrirtæk- ið Marel útbjó tölvuvogina og reikniforritið, sem byggjast á því hvert aðdráttaraflið er á hverri plánetu fyrir sig. Tölvan er síðan útbúin með fimm skjám þar sem menn geta borið þyng sína saman eftir aðdráttarafli viðkomandi plánetu. Til gaman má geta þess að manneskja sem vegur um 70 kíló á Jörðinni vegur aðeins um 5 kíló á Plútó en nokkru meira á Tunglinu. Þarna má einnig sjá hljóðmæli sem mælir há- Kiðlingarnir vekja athygli barna og eru vinsælir. vaða í desebilum ásamt samanburði við nokkra þekkta hávaðavalda á borð við rokkhljómsveitir og þotuhreyfla. Þetta er nokkuð sem börnum finnst gaman að reyna raddstyrk sinn við. Þá má nefna töfraspegla og margt fleira. Sérstakur þjónustusamningur Sérstakur þjónustusamningur var gerður á milli Reykjavíkurborgar, rekstrarstjórnar og starfsfólks Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í febrúar árið 2000. Tómas segir þann samning hafa breytt miklu um starfsemi garðsins. Með honum sé Storkurinn Styrmir heíur búið í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum frá því á síðastliðnum vetri að hann var „handtekinn" austur á landi og fluttur þangað á vegum umhverfisráðuneytisins. stefnt að því að gera rekstur hans sjálfstæðari frá borgarkerfinu. Rekstur garðsins er annars vegar kostaður af föstu framlagi borgarsjóðs en hins vegar tekjum garðsins sjálfs. Framlag borg- arinnar er nú um 60 milljónir króna á ári en fer lækkandi um 5% á ári í fimm ár samkvæmt þjónustusamningnum. Tómas segir að unnt hafi verið að hagræða í rekstrinum og einnig að auka tekjur til þess að mæta þessari breytingu. En þrátt fyrir hagræðingu og aukningu tekna verði stofnun á borð við Fjölskyldu- og hús- Mikill fjöldi barna sækir Fjölskyldu- og húsdýra- garðinn heim. Þennan rigningarmorgun voru þrjár rútur við innganginn þegar tíðindamann bar að garði. dýragarðinn aldrei rekin af eigin tekjum einum saman heldur verði samfélagið að koma að rekstrinum að einhverju leyti. Útivistarsvæði og náttúrugripasafn Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn og Crasagarð- urinn liggja saman í Laugardalnum og mynda samfellt útivistarsvæði með tengsl við íþrótta- svæðið fyrir vestan það. Tómas segir það sína persónulegu skoðun að svæðið á milli Suður- landsbrautar og Laugardalsins eigi að vera eitt samfellt útivistarsvæði. Ýmis sjónarmið hafi komið fram á meðal stjórnmálamanna um nýt- ingu þess í gegnum tíðina en endanlegar ákvarðanir liggi ekki fyrir. Tómas segir vera til umræðu að koma upp náttúrugripasafni í tengslum við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og Grasagarðinn. Slíkt safn skorti tilfinnanlega á höfuðborgarsvæðinu en með uppbyggingu þess í tengslum við garðana og útivistarsvæðið í Laugardalnum yrði enn aukið við aðdráttarafl þess. 33

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.