Mosfellsblaðið - 01.09.1998, Qupperneq 5
Verkefiii á Iríimlaæiml-
arsilðl hjá Mosfellsbæ
Blaðið hafði samband við Tryggva Jónsson bæjarverkfræðing; og innti hann
frétta um hvað væri helst á döfinni hjá Mosfellsbæ á framkvæmdasviði:
• Viðbyggingu við Varmárskóla og end-
urbótum á vesturálmu eldra húsnæð-
is með það að markmiði að nýtast bet-
ur fyrir einsetin skóla og er áætlað að
þeim framkvæmdum með frágangi að
utan ljúki á næsta ári. Alls fjölgar við
þessar framkvæmdir um átta skóla-
stofur auk þess sem sérgreinastofur
færst inn í skólann.
• Lóðagerð við leikskólann Hlaðhamra
og er gert ráð fyrir því að framkvæmd-
unt ljúki á næsta ári.
• Nýtt íþróttahús við Varmá og verður
það tekið i notkun í október á þessu
ári. Lóðarfrágangur bíður.
• Færsla Vesturlandsvegar með tillieyr-
andi breytingum á innanbæjar tengin-
um sem verða þess valdandi að Há-
holtið í núverandi rnynd leggst af og
breyting verður á vegtenginu að tón-
listarskólanum.
• Öðrum áfanga Borgarholtsskóla í
Strikaður út
í síðustu bæjarstjórnarkosningum
var nokkuð um útstrikanir á fram-
bjóðendum. í oddaaðstöðu þar mun
hafa verið Þrösttir Karlsson, oddviti
B-lista með flestar útstrikanir, þannig
að margir bæjarbúar virðast ekki
hafa traust á þeim manni.
Grafarvogi en hlutur Mosfellsbæjar í
honum er 12%.
• Gatna- og lagnaframkvæmdir við
Hulduhlíð og í Höfðahverfi á Vestur-
svæði. Verið er að útlfiuta lóðum í því
hverfi á næstu vikum og verður það
byggingarhæft í áföngum á næstu
ámm. í surnar hefur verið unnið við
malbikun gatna og eldri götur yfir-
lagðar eins og undanfarinn ár. Varmá
og Kaldakvísl hafa verið þveraðar
þannig að nú er komin heilsárs
göngu- og reiðstígur að Tungubökk-
um frá hesthúsahverfinu.
• Hitaveita Reykjavíkur vinnur að lagn-
ingu Mosfellsbæjaræðar sem tekur við
af gamla stokknum sem aðalæð Hita-
veitu Mosfellsbæjar og verður þeim
framkvæmdum lokið nú í haust.
Gamli stokkurinn verður fjarðlægður
á næsta ári.
• Einnig vinnur Hitaveita Reykjavíkur
að því að leggja nýja aðalæð frá dælu-
stöðinni við Reyki að hitaveitutönk-
unum í Grafarvogi um Skarhólabraut.
• Rafmagnsveita Reykjavíkur vinnur að
því að leggja Nesjavallalínu og streng
frá Nesjavöllum í tengivirki við
Korpu. Verklok em áætluð í nóvem-
ber nú í haust. Þessum framkvæmd-
um hefur fylgt vemlegt rask og nokk-
ur óþægindi fýrir íbúana en þessar
framkvæmdir eru þó til langs tíma
íbúunum til hagsbóta og mun frá-
gangur verða eins og best er á kosið
að verki loknu. Þannig mun í fvllingu
tímans koma göngu- og hjólastígur til
Reykjavíkur í tengslum við aðalæð HR
frá Reykjum svo og með Þingvallaveg-
inum.
Hér mrí sjrí torgið í Kjarna, sem erfyrirhngað markaðssvœðú
Markaður
í Iijama
Fyrstu vikuna í september vom haldnir haust-dagar
í Kjarna og vom íjölmargir aðilar á markaðssvæðinu á
1. hæðinni með sölubása sína og vömr. Má þar nefna
grænmeti frá Reykjum,fatnað frá Spori í rétta átt,hand-
verk og listmuni frá Halldóri Sigurðssyni, Gréta Berg
með andlitsmyndir, Lára Haraldsdóttir með handmálað
postulín og handprjónavömr, Svava og Sigtryggur frá
Víðigerði í Mosfellsdal prjónuðu á staðnum og driipu
tímann, eldri borgarar með sitt handverk, ung stúlka
með skartgripi, íþróttastarfsemi bæjarins kynnt, krakk-
ar koniu með föndrið sitt og föndmðu á staðnum o.fl.
o.fl.
Hildur Einarsdóttir er framkvæmdastjóri rekstrarfé-
lags Kjarna og bar hún hitann og þungann af þessari
tilraun, sem tókst mjög vel. Hiklur sagði að torgið í
Kjarna væri opið alla daga þeirn sem vildu selja varn-
ing sinn þar, nánast hverju nafni sem hann nefndist,
ennfremur stæði fólki til boða að halda námskeið þar
að kvöldlagi. - Framvegis er ákveðið að hafá markað á
löngum laugardegi þriðju hverja viku að sögn Ilildar,
og verður það auglýst nánar. Þar má segja að sé kont-
ið stórt tækifæri til að upplifa skemmtilega torg-versl-
unarmenningu eins og gerist víða erlendis og reyndar
hérlendis að einhverju ntarki. Vonandi nýta bæði fólk
og fyrirtæki sér þennan möguleika nú á komandi vetri
og er vinsamlega bent á að hafa samband við Hildi Ein-
arsdóttur í síma 8997852 fyrir þá sem vilja tryggja sér
aðstöðu í tíma.
Moslcllsblaðið Q