Mosfellsblaðið - 01.09.1998, Blaðsíða 7
Með Kiwaiiis lil
Kiwanisklúbburinn Geysir efndi til haustferðar til Evr-
ópu þriðja haustið, nú til Ungverjalands eins og í fyrra.
Farið var 23. ágúst með Junibo breiðþotu Atlanta frá
Keflavík til Miinchen, þar sem Grétar Hansson á Blika-
stöðum beið með rútu frá Kynnisferðum. Þar kom um
borð Ungverjinn Ferenc Utassy, íslenskumælandi, en
hann var fararstjóri ásamt Gylfa Guðjónssyni í þessari
ferð.
Gist var á sveitahóteli í Austurríki fyrsta kvöldið og
morguninn eftir ekið gegn um ungversku landamærin til
Balaton vatnsins þar sem gist var á friðsælu hóteli í fimrn
nætur. Þaðan var farið í ýmsar ferðir, eða dvalið í róleg-
heitum við vatnið eða þá rölt um göngugötuna. Verðlag
á öllu er vægast sagt afar hagstætt og kunnu íslendingar
vel að meta góða vöru við lágu verði.
Hæst bar skógarferð, sem farin var í boði Debreceni
Istvan, en hann er framkvæmdastjóri fyrir miklu fyrir-
tæki sem veltir um 2 milijörðum ísl. kr. á ári, stundar
skógrækt og skógarhögg, trjáiðnað upp í húsgagnafram-
leiðslu, selur viliidýraveiðar og tekur á móti veiðimönn-
um í mat og gistingu. Landssvæði fyrirtækisins er um 56
þús. hektarar. Istvan hafði verið á ferð hér á landi í júní
með Ferenc og furðað sig á hve skammt skógrækt er hér
komin á veg, langar hann að fá hér land til skógræktar og
er því vísað til Skógræktarfélagsins hér.
Ungverjalands
Istvan t.h. ásaml aðstoðarmönnum sínum, semgerðu allt
Þetta var í fyrsta sinn sem Istvan
prófar að taka á móti svo stórum hópi
fólks, yfir 50 manns. Þetta tókst afar
vel, fyrst var boðið í vínkjallara, síðan í
fallegt skógarhús í gúllassúpu, sem
reyndar var þessi fína kjötsúpa, elduð í
stórum potti úti á túni yfir hlóðum. Þá
var skoðuð skógrækt og sýnt skógar-
til að hafa gesti sína áncegða.
Skógarhúsið, sem
kvöldverðurinn var
Hljómsveitin lék undurþyð lög
við kvöldverðiim.
högg, sem var mjög
tilkomumikið atriði.
Einnig var farið í
hestakerrur um
skógarsvæði, skotið
af alvörurifflum á
skotbökkum, sunvar konurnar voru að skjóta úr riffli í
fyrsta sinn. Síðan var tilkomumikill kvöldverður rneð
liljómsveit og tilheyrandi í afar fallegu húsi í skóginum,
stór arineldur í miðju húsi.
Þessari skemmtiiegu ferð lauk með gistmgu á hóteli
viðVín og síðan var haldið heirn á leið meðAtlanta breið-
þotunni frá Miinchen 30. ágúst.
Ferðalangaritir við stóra giíUaspottinn yfir eldstónni.
FRAMKÖLLUN
MOSFELLSBÆ
Þverholti 9 Sími: 5668283
Framköllum bœði lit og
svarthvítar filmur.
Tökum eftir slidesmyndum og nú
getum við líka tekið passamyndir
Vönduð vinna - Lipur þjónusta • Opið mánudaga - föstudaga frá kl. 10-18
jSÆk
566-8555
Fjölskyldutilboð
16" með tveimur áleggs-
tegundum, hvítlauksolía,
2 Icoke og
lítið hvítlauks- eða kryddbrauð.
1.690,-
Ásamtfleiritilboðum
Þverholti 2, Kjarna
VloslvllsliUiöiö o