Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Blaðsíða 3

Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Blaðsíða 3
G E S T U R 8 EOTHVAÐ FYRIR ALLA ★★★ ★★★ ★★★ ★★★ ★★★ r á glæsilegri skemiíitun Islenzkra tóna Soffía og Moravek. tveim amerískum dægurlögum. Rödd hans hefur tekið stórum framförum, orðið dýpri og fyllri, og hann hefur tvímæla- laust skipað sér í röð okkar ágætustu söngvara. Enn skiptir um svið. „Kín- verska óperan“ heiðrar sam- komuna með nærveru sinni, og skringileg tónlist og dans vekur mikla kátínu. Þar koma nefnilega fram Ó-nei-Karls, A- Ha-Moravek og Er-það-Ólafs- son. Atriðið er reglulega smell- ið. Alfreð Clausen syngur tvö íslenzk lög. Sérstaka athygli vekur sjómannalagið Sigling, sem Alfreð syngur prýðilega. Tónasystur eru fimm yngis- meyjar með viðfelldnar söng- raddir, samstilltar og blæfagr- ar. Sérstaka aðdáun mina vöktu efri raddirnir í Septem- ber Song. Nú er um stund horfið frá söngnum, en þeir Lárus óg Brynjólfur fara með þátt úr „Ævintýri á gönguför". Með- ferð þeirra á þættinum er með slíkum ágætum, að ósjálfrátt Áhorfendasalurinn í Austurbæjarbíó er þéttsetinn fólki, lág-vær klíður mannamáls og sellofan-sælgætispoka blandazt fótataki hinna síðbúnu, sem troðast í sæti sín meðan ljósin slokkna. Það er eftirvæntingarsvipur á hverju andlitL Menn búast við miklu. Hljómplötufyrirtækið íslenzkir tónar hefur um nokkurt skeið haft á að skipa ágætustu skemmtikröft- um, og eftir lestur efnisskrárinnar dylst engum, að mjög er til skemmtiatríðanna vandað. Hér eiga í kvöld að koma fram þaulvanir skemmtikraftar við hlið ungra og óreyndra, og í allra hugum býr sama spurningin: „Hvernig skyldu þeir standa sig?“ Nú slokknar á seinustu ljósunum í salnum og sýningar- tjaldið þokast til hliðar. Um leið og tjaldið er dreg- ið frá, blasir við skrautlegasta svið, búið smekklegustu tjöld- um og baðað marglitum ljós- um. Hægra megin á sviðinu hefur hljómsveit undir stjórn þúsund-þjala-smiðsins Jan Moravek komið sér fyrir, og hefst skemmtunin á kynningu hljómsveitarinnar, þannig, að hljómsveitarstjórinn raular gamanvísur urn hvern meðlim- anna, sem að því loknu lætur heyra í hljóðfæri sínu. Lagið er hið fjörugasta og skemmti- legasta, hljómsveitin skipuð ágætum hljóðfæraleikurum, en söngurinn helzt til ógreinileg- ur. Næstir birtast á sviðinu fjór- ir ungir söngvarar, sem nefna sig Marzbræður. Þeir syngja tvö létt lög í prýðilegri út- setningu. Raddirnar eru sam- stilltar og sönggleðin mikil. Nú skiptir um svið, við er- um skyndilega stödd í París, borg ástanna og næturlífsins, Ingibjörg Þorbergs syngur Par- ís, je t’aime, og léttklæddar can-candansmeyjar stíga sinn skemmtilega og fjöruga dans. Jóhann Möller vakti aðdáun áheyrenda með söng sínum á Marzbrœður. langar mann til þess að sjá allt leikritið í heild með þess- um snillingum. Það er illa far- ið, að Lárus skuli ekki hafa gefið sig meira að „kómik“, jafn skemmtilegur og leikur hans er. Brynjólf er ekki að „tvíla". Honum fatast aldrei. Það atriðið, sem áheyrendur hafa sjálfsagt beðið eftir með mestum spenningi, kynning nýrra dægurlagasöngvara, heppnaðist með ágætum. — Elisa Valdimarsdóttir. Hanna Ragnarsdóttir. Hanna Ragnarsdóttir hlaut að verðleikum mikið lof áheyr- enda fyrir túlkun sina á lag- inu Comes-along-love. Hún er glæsilegt efni. Elísa Valdimars-

x

Vikublaðið Gestur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.