Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Síða 7

Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Síða 7
G E S T U R 7 Annað er gæfa en gjörfileiki..: Það er árið 1808. Hópur manna er á ferð vestur Hrútafjarðarháls. I miðjum hópnum er miðaldra maður, torkennilegur á svip og æsilegur. Beggja vega við hann, fast upp við hest hans ríða sterklegir bændur með rammar taugar bundnar um hann og halda fast í endana. Bundni maðurinn er sóknarpresturinn á Stað í Hrúta- firði. Hann hafði verið á ferð frá setri sínu til Höfðakaupstað- ar og þaðan til Þingeyra. Lenti hann þar í þjarki við menn, tók hest sinn og reið á braut í fússi. Lá leið hans til Víðidals og Miðfjarðar. Á þeirri leið greip hann slíkt æði, að sóknar- börn hans töldu hann eigi einfæran til ferðalags heim. Tóku því nokkrir sterkir karlmenn sig saman, færðu prest vitlausan í bönd og lögðu af stað með hann í eftirdragi. Er þeir höfðu farið um stund, virtist svo sem æðið rynni af presti. Bað hann þá leysa böndin af sér, og urðu þeir við bæn- um hans, þar eð þeim virtist hann með fullu ráði. En heim á prestsetur fylgdu þeir honum. Ástarógæfa. Jónatan Sigurðsson var fæddur árið 1764, þótti harla ófyrirleitinn í æsku, en lauk brottfararprófi úr Hólaskóla tvítugur að aldri. Eftir það' var hann um skeið skrifari hjá Magnúsi sýslu- manni Gíslasyni. Um þær mundir fékk hann ástir á stúlku einni, Þuríði að nafni. Unnust þau mjög heitt, og er tekið til marks, að eitt kvöld hafi þau dvalið saman, og brann kertaljós á skrifborði. En í ástarbríma sínum gættu þau eigi að fyrr en gat var brunnið á borðið. Þetta borð átti Jóna- tan alla ævi síðan og vildi aldrei, að við það yrði gert. Sagði hann, að þessi galli á því skyldi vera til marks um ást hans á Þuríði. En ástarsælan vill ýmsum verða skammvinn. Jónatan gat barn við Þuríði, og lá við, að hann missti æruna fyrir. En eftir nokkurt stapp fékk hann uppreisn og jafnframt leyfi til að kvænast Þuríði. En áður en svo yrði, tók hún sótt þunga og andaðist. Listfengur hagyrðingur. Jónatan er svo lýst, að hann hafi verið með hærri mönnum, grannvax- inn, sléttur á kinn, toginleitur, snar- eygur og fagureygur, en svipuninn jafnan nokkuð kviklegur. Allt fas hans var mjög fljótlegt, hann var fimur og leikinn, manna fóthvatastur, svo liðugt skáld, að hann orti jafn hratt og aðrir töluðu í óbundnu máli. Hann skrifaði ágæta rithönd og smíðisgripir hans þóttu afbragðsfagrir. Ein gleraugnahús, er hann smíðaði, þóttu völundarsmíði. Þau átti Oddur nótaríus á Þingeyrum, og þurfti kunn- áttu til að ljúka þeim upp. Voru á þeim gylltir stafirnir 0. S. Eitt sinn var Jónatan staddur í brúð- kaupi á Þingeyrum. Voru þar einnig Páll Bjarnason, síðar prestur að Und- irfelli, Gísli Magnússon, síðar prestur að Tjörn á Vatnsnesi, og Jón Oddsson, djákni að Þingeyrum. Gísli átti silfur- búna tönn, haglega gerða. Sagði hann, að þar sem svo margir hagyrðingar Framhald á bls. 14. Presti fylgt heim á leið. i

x

Vikublaðið Gestur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.