Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Side 14

Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Side 14
14 G E S T U R SKYGGNST AÐ BAKI TÍMANS TJALDA: Frh. af bls. 7. væru saman komnir, skyldu þeir kveða um tönnina. Jónatan kvað fyrstur: Þinn við munn ég minnist greitt mitt í nunnusafni, þér ég unni af þeli heitt, þú ert sunnujafni. Jón kvað: Sú ber ljóma geddu geims gleður fróma drengi, fríar dróma angurs eins, eg það róma lengi. Og loks kvað Páll: Ó, hvað þú ert yndisleg, orma- búin dýnu, líkt og frúin faðmi mig, fati rúin sínu. Harmaævi. En snúum okkur aftur að ævisögu þessa listfenga, ógæfusama manns. Eftir dauða Þuríðar gerðist hann verzl- unarmaður í Spákonufellshöfða hjá Sören kaupmanni Stiesen, en fyrir verzluninni var Hannibal nokkur Bolt. Hannibal var afar bókhneigður, en sinnti lítt um hag húsbónda síns. Fór því svo, að Sören rak Hannibal, en setti Jónatan fyrir verzlunina. Við þessa at- burði tók Hannibal fásinnu mikla, en Sören var brjóstgóður maður og mátti ekkert aumt sjá. Tók hann Hannibal til sín og lét hann búa hjá sér, þar til að því kom, að Hannibal skar sig á háls í fásinnukasti. Féll Sören þetta afar þungt, en fékk eigi aftur tekið. Annaðist Jónatan verzlun hans um hríð. Mjög var þá í tízku að rita nöfn manna á danskan hátt. Tók Jónatan þennan sið upp og ritaði sig Sívertsen. Um þessar mundir tekur Jónatan sig upp, fer norður í Skagafjörð og ber upp bónorð við Ingigerði nokkra Hall- dórsdóttur, myndarstúlku af góðu fólki, og bjó í föðurgarði í Hofsstaða- seli. Dvaldi Jónatan í vikutíma á heimili foreldra hennar áður en hann hefur sig upp í að biðja um hönd hennar. En það skiptir engum togum, að hon- um er synjað kvonfangsins. Er talið, að Ingigerður hafi gjaman viljað taka honum, en ekki þorað að ganga í ber- högg við vilja foreldra sinna, sem töldu Jónatan fátækan og hálfgerðan auðnu- leysingja. Þykkjuþungur hverfur Jónatan á braut. Ingigerði kveður hann þeim orðum, að sér komi ekki á óvart, þótt hjónaband hennar yrði henni til lítils yndis. Þótti það rætast, er hún var nokkru síðar gefin auðmanni nokkr- um. Jónatan tekur fásinnu. Engan skyldi undra, þótt veiklundað geð brysti við minni raunir en borið hafði fyrir Jónatan. Enda fór svo, að á heimleið rann á hann æði. Greip hann slíkur tryllingur, að bóndanum að Auðólfsstöðum í Langadal, þar sem hann bar fyrst að' garði, heilsar hann með kjaftshöggi. Voru þeir þó miklir vinir áður. Var allt háttalag Jónatans með slíkum ósköpum, að fjóra sterka menn þurfti til þess að flytja hann til Höfðakaupstaðar. Leið þó ekki á löngu áður en æðið rann af honum, og tók hann upp sína fyrri háttu í um- gengni við annað fólk. Kvonfang Jónatans. Nokkru eftii’ brúðarleitina fékk Jónatan Margrétar, sem verið hafði ráðskona hjá Magnúsi presti Magnús- syni, presti að Hvammi í Laxárdal. Lét Jónatan nú af verzlunarstörfum og bjó um hríð að Höfðahólum. Var oft skortur í búi hans, en Jónatan möglaði ekki. Kvað hann guð ætíð senda sér óvænta björg, er kostur hans væri hvað þrengstur. Eitt vorið var Jónatan algerlega bjargarlaus. Heppn- aðist honum að skjóta sel, sem á voru 20 fjórðungar spiks. í annað sinn, eft- ir að hann var orðinn prestur, og bjó við mikla fátækt, rak hval á fjörur hans, og varð honum bezta búsílag. Var það almælt, að honum yrði jafn- an að trú sinni. Óhöpp steðja enn að Jónatan. Jónatan þótti nokkuð drykkfelldur, þótt yfirleitt þætti ekki sérstakt orð á gerandi. Þó bar eitt sinn svo til, er Jónatan var við skál, að hann skaðaði sig á ketkrók. Vildi það til með þeim hætti, að hann rak sig á ketkrókinn, festi augnalokið hægra megin á krókn- um, svo að það rifnaði af. Eftir það bar Jónatan ætíð sútaða leðurreim um höfuðið, og var hún spennt saman á hnakkanum. Úr reim- inni hékk silkiræma O'g slútti fyrir skaddaða augað. Ekki háði þetta sjón hans, en illa þoldi hann að taka ram- una frá auganu. Prestsskapur Jónatans, Nokkru eftir aldamótin vantar prest að Stað í Hrútafirði. öllum til mestu furðu, sótti Jónatan um brauðið, fékk það og tók vígslu. Fluttist hann að Stað árið 1806. Þótti hann þegar góð- ur kennimaður, því að hvorki skorti hann viturleik né mælsku. En all þröngt þótti oftast í búi hjá honum sem endra- nær. Ekki var honum jafnsýnt um öll prestsverk, og þótti hann oft óþægi- lega skjótráður. Sagðist honum svo frá við kunningja sína, að eitt sinn hefði hann verið beðinn að smíða lík- kistu utan um mann. Var honum sent mál af líkinu og skyldi hann koma með kistuna, er kistulagt yrði. En er til kom, reyndist kistan of stutt. Voru þeir tveir saman við kistulagninguna, og lét Jónatan sem honum yrði skyndi- lega illt. Bað hann hinn manninn að sælíja sér vatn í lind skammt frá bænum. í fjarveru mannsins hjó prest- ur fætunia af líkinu um mjóaleggi og lagði þá til fóta í kistunni. Hafði hann lokið við að búa um kistuna og negla lokið á, er hinn kom aftur. Aldurtili Jónatans. Þau urðu ævilok Jónatans, sem sagt var frá í upphafi þessarar frásagnar. Er heim að Stað kom, krafðist hann þess að fá sér afhentan lykil að kirkj- unni. Fór hann síðan út í kirkju og gekk upp í prédikunarstólinn. Greip hann þar æðið að nýju, og hugðist hann brjóta allt og bramla. Bitnaði æði hans á prédikunarstól og altari, sem hann kvað hina mestu handarskömm, sem þyrfti að smíða að nýju. Fyrir orð konu hans var hann aftur færður í bönd. Barðist hann um og vildi losa sig, bað menn eigi gjöra slíkt, og kvað líf sitt liggja við. Dró brátt mjög af honum, og hafði honum reynzt þetta ofraun. Gekk blóð' upp úr honum, unz hann andaðist. Hafði hann iðulega beðið þess að vera grafinn hjá einhverjum ráðvönd-. um manni, er heimurinn hefði virt lít- ils. Var honum valinn legstaður í kirkjugarðinum hjá konu einni, fremur lítilsigldri, sem lifað hafði grandvöru lífi. Þannig lauk ævi hins ógæfusama

x

Vikublaðið Gestur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.