Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Síða 18

Vikublaðið Gestur - 27.11.1955, Síða 18
18 G E S T U R Leggjmn áherzlu á fljóta og vandaða vinnu Handgylling Vélgylling Upplagavinna Einkabókband Framleiðum alls konar pappaumbúðir Seljum bókbandsefni gegn póstkröfu um land allt ég útskýrt hana í hverju smáatriði fyrir honum, svoleiðis að honum gæti lærzt, hvernig við vinnum. Auk þess, sem ég hef getað kennt honum, hefur hann les- ið og numið eins og óður. Seinustu árin hefur hann jafnvel farið að föndra við ýmislegt, sem ég þekki ákaflega lítið til, svo sem fingraför, meðul og lyf og fleira. En hann er mjög vel að sér hvað allt þetta snertir. Við þetta bætist, að hann er einar þrjár ■ álnir á hæð og einhver harðasti léttvigt- arboxari, sem ég veit um. Ég vona að vísu, að hann þurfi ekki að grípa til annara íþrótta sinna, en komi það fyrir, kemur það honum vafalaust mjög að gagni, hvað hann hefur verið iðinn við að æfa sig í skotfimi heima í garði. Er það nokkuð fleira, sem ykkur langar til að vita, herrar mínir?“ „Já, hvers vegna gengur hann ekki í þjónustu lögreglunnar, úr jþví að hann er búinn öllum þessum kostum?" spurði Sir Wynnard. „Vegna þess, að ég hef sagt honum, að raunveruleg menntun hafi meira að segja núna en þegar ég hóf starf mitt. Ég hef eytt fleiri hundruðúm punda í að mennta drenginn, og þegar hann tók ágætt inn- tökupróf í Oxford-háskólann, vildi ég ekki með nokkru móti aftra honum frá að mennta sig. Ég býst við, að eftir páska gefi hann kost á sér“. „Hann myndi aldrei geta sannfært glæpalýð Maddicks um, að hann væri einn úr þeirra hópi“, sagði lögregluforinginn, „nema því aðeins að hann standi þeim jafnfætis í afbrotum, og ég geri naumast ráð fyrir, að þér hafið menntað hann í þeim efnum, Cardby?" „Það hefur hann gert með sjálfsnámi. Hann hefur alltaf verið þeirrar skoðun- ar, að auðveldast sé að fást við glæpa- menn, ef maður þekkir aðferðir þeirra. Þess vegna kynnti hann sér þetta. Hann er prýðilegur bifreiðarstjóri, hann getur talað af þekkingu um peningaskápabrot, þó að hann hafi aldrei sjálfur sprengt upp lás, hann lærði fyrir mörgum árum hin ýmsu fantabrögð, hann hefur kynnt sér allar hugsanlegar aðferðir við fjárkúgun, og ruddamálýzkur talar hann eins og hann hafi setið fjölda ára í fangelsi. Auk þess hefur hann tamið sér sjálfstjórn undir erfiðustu kringumstæðum". „Það lítur helzt út fyrir, að hann sé fæddur til að taka sér þetta hlutverk á hendur", sagði Hall. „Ég skil bara ekki, hvernig þér ætlið að koma drengnum inn f glæpaflokk Mad- dicks. Það verður erfiðast alls“. „Sjálfur var ég sömu skoðunar", svar- aði Cardby, „en drengurinn hefur sjálfur komið með uppástungu, sem mér finnst prýðileg. Og yfirmaður okkar er sá eini, sem séð getur um, að hún komist í fram- kvæmd". „Ég skal gera allt, sem í mínu valdi V— stendur", svaraði Sir Wynnard. „Þetta er þá uppástungan, sir. Hún er djörf og áræðin. Um ellefuleytið í fyrra- málið ætlar sonur minn að reika um á Cavendish-horni, þangað til hann kernur auga á bifreið, sem hann getur rænt. Við verðum að byrja á því að gera strákinn að afbrotamanni. Bifreiðinni ekur hann eftir Harley-stræti og beygir út að Ytri- Circle. Hall sér um, að lögregluþjónn standi á Cavendish-torgi. Lögregluþjónn- inn tilkynnir þjófnaðinn, útlit bifreiðar- innar, númer og tegund. Tilkynningin gengur rétta leið til Hall, sem lætur eina bifreið ökusveitarinnar bíða fyrir utan Regent-garð. Framhald i nœsta blaði.

x

Vikublaðið Gestur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.