Hús & Búnaður - 01.07.1967, Page 1

Hús & Búnaður - 01.07.1967, Page 1
Hús&ffil Búnaöur Gólfteppi Hús er namnast talið fullbyggt nú orðið, fyrr en teppi hefur verið lagt á gólfið. Okktir íslendingum hættir stundum til að hafa skammt öfganna á milli. Því skal ekki neitað, að gólfteppi hefur marga kosti, sé það heppilega valið. Teppi horn í horn minnkar t.d. liávaða um 20%. Engin ástæða er þó til þess að æðrast vegna þess eins, að teppi sé ekki horn í horn í íbúðinni á sama hátt og í íbúðinni fyrir neðan. Við megum ekki láta það gleymast, að meira virði er að velja hlut eftir gæðum en ráðandi tízku einni saman. Minna teppi og betra eru hyggilegri kaup en lélegt teppi sem þekur stærri flöt. Við val teppa er annars margs að gæta. Ætlazt er til þess, að teppin endist um mörg ókomin ár, og á þeim verður naumast skipt aftur, þó okkur kunni síðar að verða Ijóst að betur hefði mátt vanda valið. Til þess eru jafn- vel ódýrustu teppin of dýr. 1 fyrsta lagi þarf að athuga hvar teppin á að leggja. Fjölsk.- stærð, umgengni, litasamræmi, mynstur og verð þarf að athuga af gaumgæfni og miða val teppisins samkvæmt því. Það er aug- ljóst að á mannmörgu heimili, þar sem börn ganga út og inn jafnvel á óhreinum skóm, þarf miklu sterkara teppi en þar sem einn eða tveir eru í heimili. Mikill munur getur verið á því, live margir koma í heimsókn eða eiga leið um, þar sem teppið hefur verið lagt. Þá þarf einnig að athuga hvernig umferð um húsið er háttað. í stiga og á ganga þarf yfirleitt endingarbetri teppi en t.d. í svefnherbergi eða innri stofu. Hyggilegast er að haga svo til, að öll teppin í íbúðinni slitni nokkurnveginn jafnt. Litur teppisins og mynstur hefur mikla þýðingu. Ekki ein- göngu vegna áferðar á teppinu sjálfu eða hve misjafnt óhrein- indi koma í Ijós, heldur fremur vegna samræmingar í íbúðinni í heild. Litur á veggjum, gluggatjöldum, stólum, borðum og öðru sem í herberginu er verður að vera í samræmi við grunnflötinn. Var vikið að þessu í síðasta blaði, svo það verður ekki rætt nánar hér. Þó skal þess getið, að samskeyti, mislitun og mis- legging slitháranna (sveipir) verða ekki eins áberandi á mynstr- uðum eða yrjóttum teppum og einlitum. Sveipir eru vandamál, sem allir framleiðendur hafa átt við að glíma, en ekki tekizt að yfirstíga. Dökkir litir í teppum sveip- ast meira en meðal-ljósir litir. Teppi með harðsnúnu garni sveip- ast minna en venjulegt flos. JÚLÍ 1967 5 í NÆSTA BLAÐI M. A.: Sjónvörp — Innréttingar — Skákklúbburinn Saumaklúbburinn — Nýtt á markaðnum o.fl. — íslenzkur heimilisiðnaður Laufásvegi 2 hefur stuðlað að eflingu handiðju á heimilum á margan hátt. Hefur verzlunin jafnan til sölu fjölbreytt úrval af vönduðum íslenzkum munum. Margir þeirra teljast til listaverka, sem eru landi og þjóð til sóma. Mikill hluti verzlun- arinnar fer sem minjagripasala til útlendinga, en einn- ig eru munir þaðan ávallt kærkomnar tækifærisgjafir hér innanlands. Teppið, sem myndin er af, er ofið af frú Ernu Ryel. Fagur og ljós vottur um iðni og iðju.

x

Hús & Búnaður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hús & Búnaður
https://timarit.is/publication/1071

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.