Morgunblaðið - 03.11.2011, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 03.11.2011, Qupperneq 10
ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 56 96 8 10 /1 1 * Innifalið: Flug með Icelandair ásamt flugvallarsköttum, gisting í tvíbýli á Hótel Absalon í 3 nætur með morgunverði, akstur til/frá flugvelli og á hótel ásamt öllum öðrum akstri, skoðunarferð um gamla bæinn með Sigrúnu Gísladóttur, 1 aðgöngumiði í Tívolí , „julefrokost” á Kronborg og sigling um síkin með Jazzbandi Michael Böving. KAUPMANNAHÖFN AÐVENTUFERÐIR FYRIR ELDRI BORGARA VERÐ 99.900 KR.* Á MANN Í TVÍBÝLI (AUKAGJALD FYRIR EINBÝLI: 13.400 KR.) Við ætlum að komast í sannkallaða danska jólastemningu í aðventuferð eldri borgara til Kaupmannahafnar 4.–7. desember. Icelandair skipuleggur ferðina í samstarfi við Landssamband eldri borgara, Emil Guðmunds- son og Hótelbókanir í Kaupmannahöfn. Þetta verða fjórir indælir dagar þar sem við skoðum okkur um í borginni og upplifum eitt og annað skemmtilegt undir fararstjórn Emils Guðmundssonar. + Bókanir á www.icelandair.is/hopar (númer hópsins er 1359) og nánari upplýsingar hjá hópadeild Icelandair í síma 50 50 406 eða með því að senda tölvupóst á hopar@icelandair.is + Athugið að félögum Vildarklúbbs Icelandair stendur til boða að nota 15.000 Vildarpunkta sem 10.000 kr greiðslu upp í pakkaferð. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Skinkur í krísu kallast erindi Önnudís- ar G. Rúdolfsdóttur, námsstjóra hjá Alþjóðlega jafnréttisskólanum, sem hún mun flytja á alþjóðlegri ráðstefnu um menningu, samfélag og umhverfi næstkomandi laugardag. Erindið verður innlegg í hringborðsumræður og tengist rannsóknum Beverley Skeggs, prófessors í félagsfræði við Goldsmiths, London-háskóla. Skeggs er einn lykilfyrirlesara á ráðstefnunni og hefur Annadís verið í vinnuhópi í haust og lesið verk hennar og grein- ingar á stétt í bresku samfélagi. Skeggs hefur skoðað mikið hvaða for- sendur þurfi að vera fyrir hendi til að einstaklingar geti gert tilkall til sjálfs- myndar sem er einhvers virði í sam- félaginu. Hún bendir á að fólk úr mis- munandi stéttum hafi mismunandi aðgang að félagslegum úrræðum sem það geti síðan notað til að fá virðingu frá öðrum. Þykja lágkúrulegar „Í vinnuhópnum höfum við spjall- að um það hvort hægt sé að nota greiningar Skeggs í íslensku sam- félagi. Við getum ekki talað um stétt eins og Bretar tala um stétt en það eru svo sannarlega mismunandi fé- lagslegir hópar hér sem njóta mis- munandi virðingar. Við tölum t.d. stundum um lágmenningu og há- menningu og maður sér að hér í sam- félaginu eru hópar sem vekja hneykslun eða er hlegið að. Þá er það oft út af því að þessir hópar tala ekki nógu góða íslensku. Þetta á t.d. við um skinkurnar, vitnað er beint í þær og gefið í skyn að vitsmununum sé ábótavant. Eins er mikið lagt upp úr því hvernig þær líta út og gert grín að því. Ýjað að því að þær séu ekki nógu eðlilegar og náttúrulegar. Það er eins og við leyfum okkur mjög margt þeg- ar við erum að tala um þær. Ef maður fylgist með umræðu á netinu og í fjöl- miðlum er stundum talað um þær á dálítið hatursfullan hátt. Við leyfum okkur að gera lítið úr þeim þar sem þær þykja lágkúrulegar, mála sig of mikið og klæða sig of lítið. Þetta er eitthvað sem við leyfum okkur að hneykslast á og þráðurinn í gegnum umræðuna um þessar stúlkur má segja að sé sá að við drögum mörkin á milli okkar, sem erum smekkleg, og þeirra, sem eru ósmekklegar,“ segir Annadís. Nútíma My fair lady Annadís segir að tengja megi ís- lenskt samfélag að vissu leyti við rannsóknir Skeggs. Hún hefur skoð- að sérstaklega hvernig lágstéttirnar birtast í samtímamenningu og fjöl- miðlum. Það er mikið til út frá for- Veiðileyfi gefi Fólk á það til að aðgreina sinn hóp frá öðrum með því að telja hann smekklegri en annan og dálítið fág- aðri. Rannsóknir á ímynd lágstéttarkvenna í breskri samtímamenningu má að hluta til bera saman við orðræðu íslensks samfélags um svokallaðar skinkur. Skinka Jordan eða Katie Price hef- ur oftar en ekki komist í sviðsljósið. Um síðustu helgi var opnaður nýr ís- lenskur vefmiðill undir nafninu inni- hald.is en hann er ætlaður fyrir inni- haldsríka umræðu um allt milli himins og jarðar en einnig hugsaður sem afþreyingarvefur. Þrjár íslenskar konur standa að vefmiðlinum, þær Anna Jóna Heimisdóttir stjórnmála- og kynjafræðinemi, Sigrún Jóhanns- dóttir lögfræðingur og Sæunn Ingi- björg Marinósdóttir viðskiptafræð- ingur. Samkvæmt því sem fram kemur á síðunni er markmiðið „að skapa vettvang fyrir vandaða þjóð- félagsumræðu þar sem metnaður, ábyrgð og virðing fyrir fjölbreytileik- anum eru höfð að leiðarljósi. Leitast er við að bakgrunnur, lífsviðhorf og efnistök greinahöfunda séu sem fjöl- breyttust, þannig að sem flestir mál- svarar hafi á síðunni rödd“. Farið er eftir ströngum siðareglum, til dæmis þurfa pistlahöfundar að gera grein fyrir heimildum sínum. All- ir geta sent inn pistla og skrifað um hvað sem þeim hentar, svo lengi sem farið er eftir siðareglunum. Aðalefn- isflokkarnir eru fjórir: þjóðfélagsmál, heimili og fjölskylda, menning og heilsa. Dæmi um efni pistla sem þarna er að finna: Er munur á götulist og annarri list? Verðbólga sjúkdóms- greind. Og ótalmargt fleira. Vefsíðan www.innihald.is Knús Samvera konu og kattar er eitt af því sem sagt er frá í pistli á síðunni. Innihaldsrík umræða um allt Full ástæða er til að minna á kvik- myndadaga Amnesty International sem hófust í gær í Bíó Paradís og standa til 13. nóvember. Yfirskrift kvikmyndadaganna er (Ó)sýnileg og vísar í starf samtakanna síðustu fimmtíu ár. Félagar í samtökunum neita að líta undan og krefjast þess að mannréttindabrot séu gerð sýni- leg en ekki reynt að fela þau. Áhorfendum kvikmyndadaga er boðið í ferðalag til allra heimshorna og veitt innsýn í líf og aðstæður fólks. Heimildarmyndir fela í sér til- raun til að ljá hinum ósýnilegu rödd. Sýndar verða tólf ólíkar myndir sem allar hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna, hver með sína nálgun á viðfangsefnið. Myndirnar segja frá manneskjum og lífi þeirra í Kongó, Níkaragva, Íran, Kamerún, Perú, Ind- landi, Sýrlandi, Grænlandi, Palestínu og Tétsníu. Peter Löfgren, framleið- andi myndarinnar Travel Advice for Syria, verður viðstaddur sýningu myndarinnar 8. nóvember og svarar spurningum að henni lokinni. Sýningar eru alla dagana kl. 20:00. Tólf ólíkar myndir frá ýmsum löndum (Ó)sýnileg – kvikmyndadagar Amnesty International The Jungle Radio Gerist í Níkaragva og segir frá konu sem rekur útvarpsstöð. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Nú þegar hrekkjavakan er nýafstaðin er þó nokkuð um að í verslunum séu enn til grasker í tilefni hátíðarinnar. Að matreiða úr keri þessu getur verið hin besta skemmtun og frábær til- breyting. Kjarnmikil graskerssúpa hentar til dæmis vel á köldum vetr- arkvöldum svo ekki sé talað um að skera út kerin sér til skemmtunar og nýta sem borðskraut. Um að gera að vafra á netinu og finna uppskriftir eða hvað annað sem tengist grasker- um. Gott er að skera grasker í sneið- ar, skella þeim í örbylgjuna í nokkrar mínútur, pensla þær með ólífuolíu, krydda með salti og pipar og kreista sítrónusafa yfir, skella á grillið og glóða (nú eða bara á pönnuna) og nota sem meðlæti eða út í salat. Endilega … … nýtið gras- kerin góðu Skinka Jordan eða Katie Price er heimsþekkt fyrir ýkt útlit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.