Morgunblaðið - 03.11.2011, Side 14

Morgunblaðið - 03.11.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Hlíðarfjall er aldrei fallegra en eft- ir að hvíta lakið er breitt yfir það. Guðmundur og hans fólk drógu lakið fram í vikunni með aðstoð æðri máttarvalda og þegar hefur verið troðin skíðagöngubraut sem opin er daglega. Vonast er til þess að hægt verði að opna svigbraut fljótlega.    Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi færði í vikunni Fjöl- smiðjunni á Akureyri 228.000 krón- ur að gjöf. Uppæðinni söfnuðu þess- ir gjafmildu kokkar á sýningunni MATURINN 2011 sem haldin var í íþróttahöllinni á Akureyri fyrr í haust; seldu þar eftirrétti í þágu hins góða málefnis.    Þengill Valdimarsson, húsgagna- smiður og listamaður á Akureyri, hélt eftirminnilega sýningu í Sjall- anum á sínum tíma en þá komu um 1.000 manns á einum degi og skoð- uðu list hans. Síðan eru liðin 25 ár, hvorki meira né minna, og nú sýnir Þengill loks á ný. Að þessu sinni í heilsumiðstöðinni Orkulundi við Viðjulund, sem rekin er af eiginkonu hans, Sunnu Borg.    Á sýningu Þengils verða ljós- myndir og sprautumyndirnar sem margir muna eftir. Að auki einn skúlptúr. Sýningin verður opin á föstudagskvöldið kl. 20 til 23 og á laugardag og sunnudag kl. 14 til 18.    Mikið verður um að vera í menn- ingarmiðstöðinni Akureyri, sem ég leyfi mér að kalla svo, næstu daga eins og venjulega. Það væri líklega fullt starf að fylgjast með öllu sem er í boði, og það er auðvitað gott vanda- mál. Nú stendur fólki til boða að hafa áhrif á þróun menningarmála í höfuðborg Norðurlands, á fundi sem verður í Ketilhúsinu á morgun kl. 14 til 18.    Hulda Sif Hermannsdóttir, verkefnastjóri hjá Akureyrarstofu, vonast til þess að sem flestir mæti og taki þátt í opnum hugarflugsfundi um gerð nýrrar menningarstefnu. „Það væri gaman að fá sem breið- astan hóp. Þetta er frábært tækifæri fyrir bæjarbúa til að koma hug- myndum sínum í menningarmálum á framfæri og hafa á þann hátt áhrif á nýja menningarstefnu,“ segir Hulda.    Undirbúningur hefur staðið síð- an í byrjun árs. Fimm hópar hófu þá störf og velti hver fyrir sér einni list- grein; sviðslist, sjónlist, ritlist og tónlist og sá síðasti gaf gaum menn- ingararfinum (söfnum og sögu). Á fundinum verður farið yfir afrakstur vinnuhópanna og kallað eftir hug- myndum frá bæjarbúum og vöngum velt yfir því hvernig málum verði háttað í framtíðinni.    Felix Bergsson heldur útgáfu- tónleika á Græna hattinum í kvöld, í tilefni fyrstu sólóplötu sinnar, sem hann kallar Þögul nóttin.    Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur tónleika í Hofi annað kvöld og með í för verður söngvarinn Ei- ríkur Hauksson. Þar verður rokkað af mikilli list og innlifun.    Retro Stefson treður upp á Græna hattinum annað kvöld en þess má geta að sveitin ásamt fleir- um verður með tónleika í Kvosinni í húsnæði MA í kvöld.    Jónas Sig. og Ritvélar framtíð- arinnar verða svo með tónleika á Græna hattinum á laugardags- kvöldið. Meðal meðlima sveitarinnar með langa nafnið eru Kristjana Stef- ánsdóttir, Ómar Guðjónsson og Samúel Jón Samúelsson.    Áhugamenn um heimspeki takið eftir; vikulegar samræður eru hafn- ar á ný á Bláu könnunni, á sunnu- dagsmorgnum milli kl. 11 og 12. Á sunnudaginn kemur ræða Aðalbjörg Steinarsdóttir og Helga María Þór- arinsdótitr um heimspekilegar vangaveltur með leikskólabörnum. Troðfullur menningarpottur Ljósmynd/Kristján Fjölsmiðjan Gestirnir, Kristinn Jakobsson, Snæbjörn Snæbjörnsson, Júlía Skarphéðinsdóttir, Guðmundur Helgason og Fjölsmiðjufólkið, María Berg- vinsdóttir, Erlingur Kristjánsson forstöðumaður og Hannes Pétursson. Morgunblaðið/Skapti List Þengill Valdimarsson með skúlptúr sem verður á sýningunni. Stórsveit Öðlinga Félags íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, er að hefja sitt annað starfsár. Fyrir skömmu lék hún við messu í Seltjarnar- neskirkju og á morgun, föstudag- inn 4. nóvember, verður hún með tónleika í Bókasafni Seltjarnarness á hæðinni fyrir ofan verslunina Hagkaup og á veitingastaðnum Rauða ljóninu í sömu byggingu strax á eftir. Fyrri tónleikarnir hefjast klukkan 16 og þeir seinni klukkan 17. Aðgangur er ókeypis. Þegar félagar FÍH verða 60 ára verða þeir sjálfkrafa Öðlingar FÍH. Stórsveitin er eitt áhugamál þeirra og eru sveitir eldri borgara í Bandaríkjunum, svonefndar Hori- zon Bands, fyrirmyndin. Þorleifur Gíslason saxófónleikari og stjórn- andi sveitarinnar, og Árni Ísleifs- son hafa samið og útsett fyrir sveit- ina en auk tvímenninganna eru fleiri þekktir djassleikarar eins og t.d. Árni Ísleifsson, Þórarinn Ósk- arsson, Sæmundur Haraldsson og Friðrik Theodórsson, formaður Stórsveitar Öðlinga FÍH. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónleikar Öðlingarnir spiluðu á Rauða ljóninu fyrr á árinu og endurtaka nú leikinn. Stórsveit Öðlinga með tónleika á Rauða ljóninu og Bókasafni Seltjarnarness „Er fátækt á Íslandi meiri eða minni en víða annars staðar í Evrópu?“ er efni fundar sem fram fer föstudaginn 4. nóvember kl. 13-15 í sal ÖBÍ á 9. hæð, Hátúni 10, Reykjavík. Fundurinn er haldinn í tilefni af heimsókn frá samtökunum European Anti Poverty Network (EAPN). Þau berjast gegn fátækt í Evrópu og hafa nokkur félaög á Íslandi myndað samtök sem eru aðilar að þessum samtökunum. Á fundinum mun Vilborg Oddsdóttir, formaður EAPN á Íslandi flytja erindið: Er þörf á samtökum gegn fátækt á Íslandi? Tanya Bas- arab flytur erindið: Fátækt í Evrópu og hvernig EAPN berst gegn henni. Loks verður kynning á starfi EAPN í Noregi. „Hrunið og kreppan hafa breytt miklu í samfélagi okkar. Efnalitlu fólki og fátækum hefur fjölgað og það er andstætt þeim hugmyndum og hugsjónum sem velferðarsamfélagið stendur fyrir. Félagasamtök og stofnanir hafa vakið athygli á auknu óréttlæti og mikilvægi þess að berjast gegn fátækt. Í þessum málaflokki gildir það sama og annars staðar að sameinuð erum við sterkari,“ segir í frétt frá fundarboð- endum. Stofnfélagar samtakanna EAPN á Íslandi eru: Félag einstæðra for- eldra, Geðhjálp, Hjálparstarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn, Samhjálp, Sjálfsbjörg og Öryrkjabandalag Íslands. Félög sem berjast gegn fátækt hafa mynd- að samtök – Fundur um fátækt á Íslandi BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Leiðbeiningar sem Vegagerðin hef- ur samþykkt og vinnur eftir gera ekki ráð fyrir veglýsingu á þjóðveg- um utan þéttbýlis nema í undan- tekningartilvikum. Þannig hefur Vegagerðin ekki talið rétt að verja fjármunum til að koma upp lýsingu á Hellisheiði, svo dæmi sé tekið. Mikill þrýstingur var á að gerðar væru endurbætur á Reykjanesbraut fyrir fimmtán til tuttugu árum, vegna tíðra slysa sem þar urðu. Lýs- ing brautarinnar kom inn í þá um- ræðu og var meðal annars flutt þingsályktunartillaga um málið vor- ið 1994. Þingmenn Reykjaneskjör- dæmis gerðu lýsingu brautarinnar að forgangsverkefni í vegamálum á árinu 1996. Vegagerðin andæfði en það var að lokum pólitísk ákvörðun sem réð því að ráðist var í verkið. Þingmenn töldu að lýsingin myndi fækka slysum um 30%. Könnun á slysatíðni sem gerð var fyrir og eftir lýsingu benti ekki til þess að slysatíðni hefði minnkað á nóttunni, ef eitthvað var fjölgaði al- varlegum slysum. Aðstæður eru nú mjög breyttar, því búið er að breikka Reykjanesbrautina. Nú eru vegagerðarmenn að slá út öryggjum þannig að aðeins annar hver staur lýsi. Talið er að það muni spara allt að 10 milljónir kr. á ári. Haft var eftir upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar á mbl.is í fyrradag að þar sem staurarnir skapi hættu hljóti að koma til skoðunar hvort fjarlægja ætti þá staura sem ekki væru nýttir. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það. Slysum fækkar um 10% Óumdeilt er að vegfarendur njóta þæginda upplýsts vegar. Öryggið er meira umdeilt, sérstaklega með til- liti til stofn- og rekstrarkostnaðar. Sérfræðingar telja hagkvæmara að auka öryggi með öðrum aðgerðum. Málið hefur víðar verið til umræðu á undanförnum árum og leiðbeiningar um veglýsingu utan þéttbýlis sem Vegagerðin gaf út 2009 tekur mið af henni. Þess má meðal annars geta að Bretar breyttu um það leyti stöðlum um lýsingu þjóðvega sem eru sam- bærilegir Reykjanesbrautinni. Þar að baki liggur rannsókn á slysum að næturlagi sem sýnir að lýsing er tal- in fækka slysum um 10% en ekki 30% eins og áður var miðað við. Í leiðbeiningum Vegagerðarinnar segir að lýsa skuli vegi í þéttbýli og þá ekki síst með tilliti til fótgangandi eða hjólandi vegfarenda. Ekki er gert ráð fyrir lýsingu þjóðvega. Helstu undantekningarnar eru vegir sem liggja samsíða göngu- og/eða hjólreiðastígum, mislæg gatnamót og hringtorg. Einnig er ætlast til að kaflar með aukinni slysatíðni í myrkri séu lýstir ásamt gangbraut- um og göngu- og hjólreiðastígum sem þvera vegi. Ekki er við því að búast að slökkt verði á lýsingu vegarins milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar sem var mikið baráttumál á sínum tíma. Þar eru mörg hringtorg sem ber að lýsa og kaflarnir á milli það stuttir að þeir falla undir ákvæði um að reynt skuli að hafa lýsingu sam- fellda. Þjóðvegir ekki lýstir utan þéttbýlis Morgunblaðið/RAX Reykjanesbraut Smám saman er verið að slökkva á ljósastaurunum.  Dregið úr lýsingu á Reykjanesbraut  Gildi veglýsingar utan þéttbýlis umdeilt  Vegagerðin vill að- eins veglýsingu við hringtorg, mislæg gatnamót og þar sem von er á gangandi og hjólandi vegfarendum „Mér finnst það muna mestu á hinni akreininni, sem ekki er lýst. Lýsingin var það þétt að hún dugði ágætlega fyrir báðar akreinarnar,“ segir Guðmundur Steindórsson um breytingarnar á lýsingu Reykjanesbraut- arinnar síðustu daga. Hann hef- ur ekið leiðina í 25 ár sem at- vinnubílstjóri og er óhress með að dregið skuli úr lýsingu. Hann telur aðgerð Vegagerð- arinnar benda til að slökkt verði alveg á ljósunum í framtíðinni. Guðmundur mótmælir sér- staklega þeim rökum upplýs- ingafulltrúa Vegagerðarinnar að sumum þyki óþægilegt að hafa lýsinguna í skafrenningi. „Hún getur skipt sköpum, einmitt í skafrenningi. Vegurinn sést og staurarnir vísa veginn.“ Lýsing getur skipt sköpum RÚTUBÍLSTJÓRI ÓHRESS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.