Morgunblaðið - 03.11.2011, Page 16

Morgunblaðið - 03.11.2011, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Skilaboð ríkisskattstjóra um áhrif dóms Hæstaréttar vegna fjármögn- unarleigusamnings sem Íslands- banki gerði við kraftvélar voru skýr. Dómurinn breytti vissulega forsend- um en á hinn bóginn tæki því alls ekki að leiðrétta skattskilin. Þetta kom fram á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær- morgun. Á fundinn komu fulltrúar Samtaka fjármálafyrirtækja og Samtaka iðnaðarins en fundinum lauk með því að „fríður flokkur frá ríkisskattstjóra“ eins og Þráinn Bertelsson, varaformaður nefndar- innar, orðaði það. Fulltrúar skatt- stjóra voru fjórir, en SFF og SI sendu hvort um sig tvo fulltrúa. Þjónar engum tilgangi „Eftir að þessi dómur gekk í Hæstarétti Íslands fyrir stuttu hefur embætti ríkisskattstjóra unnið að því að greina dóminn og gera sér grein fyrir því hvaða afleiðingar hann hefur með tilliti til skattlagn- ingar. Það er alveg ljóst að það eru ýmsir sem þurfa að breyta virðis- aukaskattskilum sínum. Lauslega metið gætu þetta verið 100 til 150.000 skýrslur sem þarf að breyta. Nettóniðurstaðan er engu að síður núll, bæði fyrir atvinnulífið og fyrir ríkissjóð. Það er því tillaga okkar, sem við munum kynna fyrir fjár- málaráðuneytinu, að menn láti við það sitja, að það verði ekki farið að fylla út þessar leiðréttingaskýrslur af hálfu fyrirtækjanna, senda síðan til skattayfirvalda sem kallar á skráningu. Þetta er gríðarleg vinna, þetta þjónar engum tilgangi, þetta hefur ekkert að segja, það er engin breyting hjá virðisaukaskattsskyld- um aðilum.“ Með því að sleppa leiðréttingu myndi bæði atvinnulífið og ríkið spara sér fé og fyrirhöfn. Hugsanlega þyrfti að hafa annan hátt á hvað varðar aðila sem stunda ekki virðisaukaskattsskylda starf- semi, s.s. lækna og tannlækna en þau tilfelli væru fá, hugsanlega 2-4% af heildinni. Dómurinn hefði einnig töluverð áhrif á tekjuskatt. Í fyrsta lagi yrði að breyta hvernig þeir hlutir sem keyptir voru með ólögmætum samn- ingum eru færðir til eignar. Þá yrði að eignfæra hjá þeim sem gerðu samningana en ekki hjá fjármögn- unarleigufyrirtækjunum. Skúli lagði til að þetta yrði gert upp í einu lagi árið 2012, þ.e. fyrir þá sem gerðu samninga við Íslandsbanka (Glitni) og ekki væri deilt um. Skúli sagði að embætti ríkisskatt- stjóra teldi sig hafa skýra lagaheim- ild tekjuskattskila. Um virðisauka- skattskilin væri vafi á lagaheimild og því myndi embætti ríkisskattstjóra óska eftir að sett yrði bráðabrigða- ákvæði inn í lög til að gera þetta mögulegt. Með þeim orðum að ritari nefndarinnar hefði lagt að honum að hafa innganginn stuttan lauk hann orðum sínum. „Þetta er bara snilld,“ sagði Þráinn Bertelsson þá. Um 10-15.000 samningar Nefndarfundurinn, sem var í beinni útsendingu á Alþingisrásinni, hófst með því að tveir fulltrúar Sam- taka fjármálafyrirtækja komu fyrir nefndina. Meðal þess sem kom fram hjá Guðmundi Guðbjörnssyni var að fjármögnunarleigusamningar, en um einn slíkan snerist hæstaréttar- dómurinn, væru um 10-15.000 og snertu um 2.500 aðila. Óvíst væri til hversu margra samninga dómurinn tæki. Í dómi Hæstaréttar hefði kom- ið fram að þótt þessi tiltekni samn- ingur og tenging hans við erlendan gjaldmiðil væri ólögmæt, kæmi einn- ig fram í dómnum að slíkir samn- ingar væru ekki allir ólöglegir. Jóna Björk Guðnadóttir minnti á að Landsbankinn og Lýsing hefðu lýst því yfir að þeirra samningar hefðu verið gerðir með öðrum hætti og því teldu þessi fyrirtæki ekki að dómurinn hefði fordæmisgildi fyrir þau. Úr þessu yrði væntanlega skor- ið fyrir dómstólum. Leiðrétting þjónar engum tilgangi  „Þetta hefur ekkert að segja, það er engin breyting hjá virðisaukaskattsskyldum aðilum,“ sagði ríkisskattstjóri  Félagsmenn SI borgi af samningum í samræmi við fordæmið sem Hæstiréttur gaf Morgunblaðið/Golli Fjármögnun Vinnuvélar í Hafnar- firði tilbúnar til útflutnings. Árni Jóhannsson frá Sam- tökum iðnaðarins sagði á nefndarfundinum í gær að SI ráðlegðu félagsmönnum sínum að greiða af samningum í sam- ræmi við dóm Hæstaréttar. Fordæmisgildi dóms Hæsta- réttar væri ótvírætt, hann gilti um alla fjármögnunarleigu- samninga, rekstrar- leigusamninga „og öll þessi leiguform.“ Árni sagði það tiltölulega flókið og mikið nákvæmnisverk að reikna samningana upp á nýtt. Að mati ráðgjafarfyrir- tækis sem SI leitaði til er um tveggja tíma starf að endur- reikna hvern einasta samning. Örugglega yrði hægt að finna einhverja skemmri leið, ein- hverja grófa nálgun. Þarf grófa nálgun ÓTVÍRÆTT FORDÆMI BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is Forsvarsmenn hestamannafélagsins Mána og Landssambands hesta- mannafélaga eru ósáttir við að Grindavíkurbær hafi gert þríhliða samkomulag við hestamannafélagið Brimfaxa í Grindavík og ferðaþjón- ustufyrirtækið Fjórhjólaævintýri um endurskilgreiningu og samnýtingu slóða í nánd við Grindavík. Brimfaxi á a.m.k. enn sem komið er ekki aðild að Landssambandi hestamannafélaga. Halldór H. Halldórsson, formaður samgöngunefndar Landssambands hestamannafélaga, telur Brimfaxa ekki hafa umboð til þess að semja um afnot á þessum slóðum. „Þeir verða að vera aðilar að sameiginlegu reiðvega- nefndinni sem starfar á þessu svæði og bera svona samninga upp þar,“ segir Halldór. Að hans mati er þetta samkomulag sambærilegt því ef hestaleiga gerði samkomulag við hægri bakvörðinn hjá Grindavík um að forsvarsmenn leigunnar mættu ríða inn á knattspyrnuvöll bæjarins og æfa þar. Hafna gagnrýni LH Að sögn Hilmars Knútssonar, for- manns hestamannafélagsins Brim- faxa í Grindavík, gengur umrætt sam- komulag út það að forsvarsmenn Fjórhjólaævintýris fái að fara með ferðamenn á fjórhjólum eftir slóðum sem félagsmenn Brimfaxa hafa í gegnum tíðina notast við. Merktir reiðvegir falli ekki undir samkomu- lagið og fjórhjólamennirnir hafi skuldbundið sig til að virða forgang hestamanna á þessum slóðum. „Við erum búnir að vera að vinna í aðalskipulaginu, við vorum að skil- greina slóðana upp á nýtt, við skil- greindum þá sem frístundavegi og þar sáum við fyrir okkur að byggja á því samkomulagi sem hefur verið á milli hestamanna og Fjórhjólaævin- týris, og svo ætlum við að bæta inn í það Akstursíþróttafélagi Suðurnesja og þeir munu verða í samstarfi um viðhald og rekstur þessara slóða,“ segir Vilhjálmur Árnason, formaður skipulags- og umhverfisnefndar Grindavíkurbæjar. Hann tekur jafn- framt fram að markmiðið með þessu sé það að hestamenn og fjórhjóla- menn geti nýtt slóðana í sameiningu og komið saman að viðhaldi þeirra. Loks tekur Vilhjálmur fram að Grindavíkurbær hafi ekki haft frum- kvæði að gerð samkomulagsins held- ur hafi Brimfaxi og Fjórhjólaævintýri leitað til bæjarins um gerð þess. „Málið er það að ef við ætlum að einskorða aðgengi við einn hóp manna þá er ansi erfitt að opna perlur landsins,“ segir Sigurður Óli Hilm- arsson, einn af eigendum Fjórhjóla- ævintýris. Sigurður telur boð og bönn ekki vera árangursrík hvað þessi mál varðar og spyr jafnframt hvort þessar helstu perlur landsins eigi aðeins að vera aðgengilegar einum hópi manna. Að sögn Sigurðar stuðla nýjar skil- greiningar Grindavíkurbæjar á þeim slóðum sem fólgnir eru í samkomu- laginu að betra viðhaldi á þeim og þar af leiðandi minni slysatíðni. Ósáttur við skipulagsnefnd Björn Viðar Ellertsson, formaður reiðveganefndar hestamannafélags- ins Mána, segir að Máni sé eina viður- kennda hestamannafélagið í Grinda- víkurbæ og því sé lítið að marka samkomulag Fjórhjólaævintýris og Brimfaxa. „Grindavíkurbær hefur verið að leyfa einhverja hluti sem þeir geta kannski ekkert leyft,“ segir Björn sem er ósáttur við skipulags- mál í Grindavíkurbæ. Telur hann skipulagsnefnd bæjarins vera halla undir fjórhjólamenn og furðar sig á því að nefndin hafi ekki fyrst leitað álits forsvarsmanna Mána. Brunað um reiðstígana Morgunblaðið/Alfons Finnsson Samnýting slóða Hér virðist samstarf hests og fjórhjóls um samnýtingu slóða ganga mjög vel þó svo að kring- umstæður myndarinnar séu talsvert frábrugðnar þeim aðstæðum sem greint er frá í fréttinni. Mynd úr safni.  Landssamband hestamannafélaga gagnrýnir hvernig staðið var að gerð sam- komulags um endurskilgreiningu og samnýtingu slóða í nágrenni við Grindavík Hvernig eru reiðstígar skil- greindir í vegalögum? Engin nákvæm skilgreining er á hugtakinu „reiðstígar“ í núgild- andi vegalögum. Í 1. mgr. 10. gr. laganna kemur þó fram að reiðstígar teljast til al- mennra stíga. En slíkir stígar eru ætlaðir almenningi til frjálsrar umferðar og þeim er haldið við af fé ríkis eða sveitarfélaga. Í 26. gr. sömu laga er heimild til þess að veita í samgönguáætlun fé til almennra reiðstíga samkvæmt sérstakri áætlun sem ber að gera í samráði við samtök hesta- manna og sveitarfélög. Spurt&Svarað Málþing um miðborgina sem íbúða- hverfi verður haldið í Tækniskól- anum, áður Iðnskólanum á Skóla- vörðuholti, laugardaginn 5. nóvember kl. 11-15. Þar munu íbúar leitast við að svara ýmsum spurningum, s.s. hvernig er að alast upp í 101, um náttúruleg útivistarsvæði, frum- kvæði íbúa, umferðaröryggi og fleira. Klukkan 11.45 verður þátttak- endum skipt í hópa, þar sem málin verða rædd og kl. 13 hefjast pall- borðsumræður. Hópstjórar munu leggja helstu spurningar sem upp koma í hópastarfinu fyrir þá borgarfulltrúa sem sitja í pallborði en þeir eru: Eva Einarsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson, Karl Sigurðs- son og Óttarr Proppé. Spurningar úr hópastarfi verða í forgangi en einnig verður svarað spurningum úr sal ef tími vinnst til. Málþinginu lýkur kl. 15 með því að Ingvar Örn Ingvarsson fund- arstjóri dregur saman helstu nið- urstöður þess. Morgunblaðið/Árni Sæberg Iðnskólinn Íbúar miðborgarinnar hittast til skrafs og ráðagerða á laugardaginn. Miðborgin sem íbúðahverfi Hulda Guðmundsdóttir guðfræð- ingur og Ásdís Káradóttir hjúkr- unarfræðingur halda fyrirlestra um makamissi hjá Nýrri dögun, samtökum um sorg og sorgar- viðbrögð, fimmtudaginn 3. nóv- ember kl. 20.30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Hulda mun í fyrirlestri sínum fjalla um það þegar makinn deyr í blóma lífsins en Ásdís fjallar um makamissi á efri árum. Fyrirlestrar um sorg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.