Morgunblaðið - 03.11.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.11.2011, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Félag nýrnasjúklinga hélt upp á 25 ára af- mæli félagsins um liðna helgi og mættu þar um 200 manns. Við það tækifæri var nýrna- gjöfum veitt viðurkenning fyrir framlagið. Þar á meðal voru sjö einstaklingar sem höfðu gefið maka sínum nýra. Jórunn Sörensen, formaður Félags nýrna- sjúkra, segir að sl. sumar hafi félagið látið hanna kort og barmmerki, sem það hafi fært ígræðsluteymi Landspítalans að gjöf, en þeg- ar nýrnagjafi útskrifast sé honum veitt þessi viðurkenning. Fyrstu gjafarnir fengu við- urkenningarnar í september sem leið og á af- mælishátíðinni voru heiðraðir þeir sem hafa gefið nýra síðan aðgerðirnar hófust á Land- spítalanum 2003. „Við stóðum öll með tárin í augunum og kökkinn í hálsinum og horfðum á þennan hóp af hetjum, þennan stóra hóp, þar sem allir höfðu fílhraustir lagst á skurð- arborðið, látið fjarlægja alheilbrigt líffæri til þess að hjálpa annarri manneskju,“ segir Jór- unn. „Það er annað og meira en að segja það.“ Jórunn segir að gjafarar séu nokkur hundruð og félagið vilji veita þeim öllum við- urkenningu en það geti ekki beðið um upplýs- ingarnar vegna persónuverndar. Nýtt líf – nýr aldur „Við eigum heimsmet í gjafmildi á nýrum sem lifandi gjafar,“ segir Jórunn, sem fékk nýra frá Þorsteini Magnússyni, eiginmanni sínum, fyrir um fimm árum. Hún segir að margir undrist að makar geti passað saman að þessu leyti, en hafa beri í huga að á lista Scandiatransplant, samtaka sem skipuleggja líffæraígræðslur á Norðurlöndum, séu mót- takendur líffæra og gjafarar yfirleitt óskyldir. Hins vegar þurfi auðvitað ýmislegt að passa saman. Þar beri fyrst að nefna blóðflokka en auk þess séu margar aðrar prufur gerðar áð- ur en að ígræðslu kemur. „En sá sem þiggur líffæri þarf að vera á ónæmisbælandi lyfjum það sem hann á eftir ólifað svo hann hafni ekki líffærinu,“ segir hún. „Ég segi nú reynd- ar stundum í gríni: „Eins og mér dytti í hug að hafna nýranu hans Þorsteins míns sem hann gaf mér af góðum hug.“ En þetta er svona og ég er orðin fimm ára, því þegar við höfum þegið líffæri endurreiknum við ald- urinn. Kona sem er miklu eldri en ég er til dæmis bara eins árs. En þegar við fáum nýtt líf byrjum við að telja upp á nýtt.“ Blæðandi krabbameinsæxli Jórunn, sem er 68 ára, segir að það sé skemmtilegt og mögnuð tilhugsun að þau hjónin skulu deila nýra sem Þorsteinn hafi fæðst með fyrir um 72 árum. Hún segir að hún hafi veikst þegar hún var 54 ára, hafi þá fengið streptókokka í blóði, en hafi þurft að bíða í átta ár eftir nýju nýra. „Það gekk ekki upp hjá mér að fá nýra og því var ég á bið- lista í átta ár,“ segir Jórunn og áréttar að ekki geti allir fengið nýra vegna ýmissa þátta. „Nýrun hurfu eins og dögg fyrir sólu,“ heldur Jórunn áfram. „Öll líffærin mín dóu en öll lifnuðu aftur við nema nýrun. Ég var í blóðskilun í átta ár og margir hafa spurt af hverju maðurinn minn hafi ekki gefið mér nýra strax. Hann vildi það en þá kom í ljós að hann var með blæðandi krabbameinsæxli í ristli. Það uppgötvaðist þá og þetta var mikil tilviljun, en við erum bæði eldhress og lifandi og förum í langar gönguferðir með hundana okkar.“ Hún bætir við að Þorsteinn hafi þeg- ar verið skorinn upp 1998. Æxlið hafi ekki dreift sér og eftir að fylgst hafi verið með honum í sjö ár hafi hann sagt að hann væri álitinn heilbrigður og því tími kominn til þess að láta reyna á skiptin. „Það gekk en þetta er mögnuð reynsla og afskaplega lærsdómsrík.“ Nútímalífsstílssjúkdómur Markmið Félags nýrnasjúkra er að styðja alla þá sem veikjast af langvinnum nýrna- sjúkdómum og aðstandendur þeirra. Jórunn segir að nýrnabilun sé ýmist arfgeng, vegna sjálfsofnæmis eða aldurstengd. „Því eldri, feitari og meiri sykursýki sem þú færð því meiri líkur eru á að nýrun bili. Þetta er eins og hver annar nútímalífsstílssjúkdómur.“ Með nýra makans Á 25 ára afmælishátíð Félags nýrnasjúkra á Grand Hótel Reykjavík sl. sunnudag komu meðal annars saman sjö hjón sem eiga það sameiginlegt að annar makinn er með nýra hins. Frá vinstri eru hjónin Örn S. Eiríksson og Guðlaug Hulda Halldórsdóttir, Kjartan Þ. Kjartansson og Ásta Björk Friðbertsdóttir, Björn Magnússon og Aðalbjörg J Reynisdóttir, Ögmundur Einarsson og Magda- lena Jónsdóttir, Jórunn Sörensen og Þorsteinn Magnússon, Rósa Jónsdóttir og Jóhann Jónsson, og Ursula Irena Karlsdóttir og Bragi Ingólfsson. Í góðum gír á gjafanýra  „Eins og mér dytti í hug að hafna nýranu hans Þorsteins míns sem hann gaf mér af góðum hug“  Félag nýrnasjúkra á Íslandi 25 ára og stefnir að því að heiðra alla Íslendinga sem gefa nýra Síðan 2003 hafa verið fram- kvæmdar 57 nýrnaaðgerðir á Landspítalanum. Jóhann Jónsson, ígræðsluskurð- læknir í Washington í Banda- ríkjunum, kemur þrisvar á ári og gerir aðgerðirnar með sérfræðingum á Landspít- alanum. Til að byrja með voru aðgerðirnar tvær til þrjár í hvert skipti en nú eru gerðar fjórar aðgerðir í hverri komu Jóhanns, síðast í september og næst í desember. Áður voru nýrnaígræðslur úr lif- andi gjöfum framkvæmdar erlendis, einkum í Danmörku eða Svíþjóð. Líffæraígræðslur úr látnum einstaklingum hafa alla tíð farið fram erlendis. Hlutfall lifandi gjafa sem gefa nýra er mjög hátt hérlendis og undanfarna tvo áratugi hafa þeir verið um 70% allra nýrnagjafa. Alls hafa verið gefin 224 nýru (lifandi/látnir gjafar) og þar af 139 nýru frá lifandi gjafa, að sögn Hildigunnar Frið- jónsdóttur á Landspít- alanum, eina sérhæfða hjúkrunarfræðings landsins í ígræðslu. Samkvæmt upplýsingum frá Félagi nýrnasjúkra er skortur á líffærum til ígræðslu. Kannanir hafi sýnt að um 80% einstaklinga hafi sagt að þeir myndu sam- þykkja að líffæri þeirra yrðu notuð til ígræðslu, kæmi sú staða upp, en fæstir hafi fyrir því að skrá þann vilja sinn og ræða hann við nána ættingja. Allt að 40% aðstandenda látins ættingja hafni brottnámi líffæra til ígræðslu, en þeir sem samþykkja líffæragjöf „upplifa að þeir eru að gefa um leið og þeir eru að missa“. Hafa framkvæmt 57 aðgerðir NÝRNAAÐGERÐIR Á LANDSPÍTALANUM FRÁ 2003 Til hvers þurfum við nýru? Að öllu jöfnu fæðist maðurinn með tvö nýru í kviðarholi, sitt hvorum megin hryggj- ar. Mikilvægasta verkefni nýrnanna er að hreinsa úrgangsefni úr blóðinu sem síðar skiljast út með þvagi. Nýrun stjórna einnig vatns- og saltjafnvægi líkamans og fram- leiða mikilvæg hormón sem stjórna blóð- þrýstingi og blóðmagni. Ef annað nýrað er fjarlægt, t.d. vegna þess að það er gefið öðrum, eykur nýrað sem eftir er virkni sína. Hverjir eru í mestri hættu á að fá langvinnan nýrnasjúkdóm? Þeir sem eru sykursjúkir, með háan blóð- þrýsting eða eiga nána ættingja með nýrnasjúkdóm. Einnig geta nýrun bilað snögglega vegna annarra sjúkdóma eða slysa en oft ná þau sér og starfa eðlilega að nýju. Hver eru helstu einkenni nýrnasjúkdóma? Þau eru lítil sem engin í upphafi en þegar sjúkdómurinn er kominn á alvarlegra stig finnur fólk fyrir þreytu, almennum slapp- leika, minni matarlyst, kláða, getur átt erf- itt með svefn og jafnvel að hugsa skýrt. Einnig bólgna fætur og ökklar. Blóðprufa og þvagprufa skera úr um hvort um skerta starfsemi nýrnanna er að ræða. Hvernig má hægja á sjúkdómnum? Lækka blóðþrýstinginn með aukinni hreyf- ingu, breyttu mataræði og lyfjum, halda blóðsykri eðlilegum ef um sykursýki er að ræða, ekki reykja og draga úr neyslu fæðu sem er rík af eggjahvítuefnum. Spurt&svarað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.