Morgunblaðið - 03.11.2011, Page 19

Morgunblaðið - 03.11.2011, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 Láta skína í tennurnar » Bráðabirgðastjórnin kaus sér nýjan for- sætisráðherra á mánudag, Abdel Rahim el- Keeb, en hann er verkfræðingur frá Tripoli og var í útlegð í tíð Gaddafis. » Áður höfðu leiðtogar herflokkanna í Mis- rata hótað að ef ekki yrði kjörinn maður að þeirra skapi myndu þeir grípa inn í atburða- rásina með valdi. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Margir af leiðtogum herflokka óbreyttra borgara í Líbíu, sem tóku þátt í að velta Muammar Gaddafi úr sessi, ætla ekki að standa við loforð um að láta vopn sín af hendi. The New York Times segir að sumir þeirra beri því við að fyrst vilji þeir sjá trausta og lögmæta ríkisstjórn í landinu að lokn- um frjálsum kosningum. Komið hefur stöku sinnum til átaka þegar reynt hefur verið að fá herflokkana til að afvopnast og segja heimildarmenn í Libíu að bráðabirgða- stjórnin, sem þegar hafði takmarkaðan myndug- leika, sé í miklum vanda vegna málsins. „Enginn vill láta vopnin af hendi núna og margir ættbálkar og borgir safna nú vopnum, til vonar og vara,“ seg- ir Mahmoud Shammam, talsmaður stjórnarinnar. Í Misrata og höfuðborginni Tripoli tóku her- flokkarnir í reynd við allri stjórn þegar búið var að hrekja herlið Gaddafis þaðan. Fráfarandi for- sætisráðherra bráðabirgðastjórnar uppreisnar- manna, Mahmoud Jibril, stakk upp á því sl. sunnu- dag að stjórnin reyndi ekki að leysa upp herflokkana heldur treysta tengslin við þá með því að láta fulltrúa þeirra fá aðild að stjórninni. Herflokkar neita að afhenda vopnin Reuters Nýr Forsætisráðherra Líbíu, Abdul Raheem al-Keeb (t.v.), ásamt forseta bráðabirgðastjórnarinnar.  Segjast vilja bíða þar til lýðræðislega kjörin stjórn taki við völdum í Líbíu  Tillögur um að fulltrúar herflokkanna fái aðild að bráðabirgðastjórninni FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Forsætisráðherra Grikklands, Georg Papandreou, tókst með naum- indum að fá ríkisstjórnina aðfaranótt þriðjudags til að styðja tillögu sína um þjóðaratkvæði um efnahags- aðgerðir í tengslum við fjárhags- aðstoð evruríkjanna. Leiðtogar Þjóðverja og Frakka tjáðu hins veg- ar Papandreou í gær að ekki yrði samið á ný um skilyrði aðstoð- arinnar. Grikkir yrðu að ákveða ekki síðar en um miðjan desember hvort þeir vildu vera áfram í evrusamstarf- inu. Ráðherrann þarf að komast yfir aðra hindrun á morgun, föstudag, þegar þingið greiðir atkvæði um van- trauststillögu á stjórn hans. Kann- anir sýna að mikill meirihluti Grikkja er andvígur efnahags- aðgerðunum en drjúgur meirihluti vill hins vegar halda í evruna. Sumir vilja þó taka upp gömlu drökmuna. „Raunverulegi vandinn er að við notum útlendan gjaldmiðil,“ segir Vasilis Serafeimakis, yfirmað- ur hjá stóru olíu- og gasdreifing- arfyrirtæki, Avinoil. „Ef við værum með eigin gjaldmiðil gætum við að minnsta kosti prentað peninga.“ Geta ekki keppt við tyrkneska ferðaþjónustu Sumir Grikkir minna á að þeir séu alls ekki færir um að bjóða erlendum ferðamönnum jafn góð kjör og til dæmis grannþjóðin Tyrkir. Gengi evrunnar sé einfaldlega of hátt. En bent er m.a. á að strax og ákvörðun verði tekin um drökmu muni allir flýta sér að taka út evr- urnar sem þeir eigi í bönkum. Þeir muni því hrynja. The New York Times bendir samt á að heims- þekktir hagfræðingar eins og Nour- iel Roubini, Kenneth Rogoff og Martin Feldstein, einnig bandaríski fjárfestirinn George Soros, segi að Grikkir muni aldrei endurheimta samkeppnishæfni sína með evrunni. Drakman heillar enn suma Grikki Reuters Átök Papandreou á leið á spennu- þrunginn stjórnarfund á þriðjudag.  Þjóðverjar og Frakkar setja frest Risastór gengisfelling? » Með miklum niðurskurði er þegar búið að tryggja að af- gangur verði á fjárlögum Grikkja næsta ár ef undan- skildir eru vextir af skuldum. » Freistingin er því mikil að hætta að borga og semja við lánardrottna á ný. Ein leiðin til þess væri að fleygja evrunni og taka upp drökmu með afar lágu gengi. Andstæðingar hnattvæðingar mótmæla á ströndinni í Suðaustur- Frakklandi en leiðtogar G-20 ríkjanna halda fund í Cannes í dag og þar er mikil öryggisgæsla. Á spjaldinu stendur: „G 20 hópurinn passar sig vel og tekur enga áhættu“. Barack Obama Bandaríkjaforseti og Hu Jintao Kína- forseti verða á fundinum en honum stýrir gestgjafinn, Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti. Fremsti maðurinn ber grímu með mynd hans. Reuters Mótmæla fundi G-20 Leiðtogafundur hefst í Cannes í dag Lögmenn Julians Assange, stofn- anda WikiLeaks- vefjarins, hyggj- ast áfrýja dómi yfirréttar í Lond- on í gær um að framselja beri Assange til Sví- þjóðar. Óvíst er þó hvort hæstiréttur Bretlands tekur málið fyrir. Lögmennirnir sögðu að evrópsk handtökuskipun, sem gefin var út á hendur Assange að beiðni Svía, hefði verið andstæð lögum en dóm- ararnir, sem fjölluðu um málið í gær, sögðu engan vafa leika á um lögmætið. Hafnað var líka þeim fullyrðingum lögmanna Assange, að lýsing á þeim afbrotum, sem hann er sakaður um að hafa framið, væri ónákvæm. Assange er sakaður um að hafa nauðgað tveimur kon- um í Svíþjóð í fyrra. Assange hyggst áfrýja framsalsdóm- inum í Bretlandi Julian Assange Bandaríkjamenn og Bretar and- mæltu kröftuglega á alþjóðlegum fundi í London í fyrradag öllum til- lögum Rússa, Kínverja og fleiri þjóða um að setja hömlur á tjáning- arfrelsi á netinu. Síðarnefndu þjóð- irnar vilja samning um að hvert ríki hafi lögregluvald í þessum efnum á heimavelli. „Enginn borgari í nokkru ríki ætti að þurfa að sætta sig við þrúg- andi alþjóðareglur þegar þeir senda tölvuskeyti eða tjá sig um frétt á netinu,“ sagði Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna. Hömlur myndu einnig seinka tækniþróun. Bretar eru hins vegar sakaðir um tvöfeldni. Bent er á að David Came- ron forsætisráðherra hafi í ágúst rætt um að setja skorður við sam- skiptasíðum sem notaðar voru til að skipuleggja óeirðir. kjon@mbl.is Andvígir ríkishöml- um á netfrelsi Vopnaðir norskir lögreglumenn réðust í gær inn í félagsheimili glæpasamtak- anna Hells Ang- els í Tromsdalen í Troms og í Ósló. Átta voru hand- teknir og verða þeir kærðir fyrir gróf fíkniefnabrot. Einn þeirra er 49 ára gamall maður sem talinn er vera æðsti leiðtogi samtakanna í landinu, að sögn Aftenposten. Rannsókn á meintum fíkniefna- hring sem tengist lykilmönnum í Hells Angels hefur staðið yfir um hríð. Einn þeirra hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því um miðjan júlí. kjon@mbl.is Liðsmenn Hells Angels handteknir Umskipti virðast hafa orðið í röðum valdhafa í Búrma, þeir keppast nú við að lofa umbótum og segja að haldnar verði frjálsar kosningar á næsta ári. Fréttaskýrendur segja að Thein Sien, sem tók við forsetaembættinu af hinum geysilega valda- mikla Than Shwe fyrr á árinu, hafi ásamt fleiri herforingjum lengi viljað slaka á alræðisklónum. Breytingin er mikil, nýlega voru um 200 and- ófsmenn látnir lausir úr fangelsi og ritskoðun hef- ur að verulegu leyti verið aflétt. Ráðherra þróun- armála í Noregi, Erik Solheim, heimsótti nýlega Búrma og ræddi þá m.a. við Thein Sein. „Hann var alveg með það á hreinu að haldið yrði áfram á braut lýðræðis,“ segir Solheim. „Þetta er eigin- lega ótrúlegt, enginn hefði trúað þessu fyrir fáein- um mánuðum.“ Blaðamaður Aftenposten spurði Shwe Mann, sem áður var þriðji valdamesti maður herforingjaklíkunnar, hvort friðarverðlauna- hafinn Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnar- andstöðunnar, fengi að taka þátt í lýð- ræðisferlinu. „Það fer eftir því hvað hún gerir. Fyrir okkar leyti er hún velkomin,“ var svarið. kjon@mbl.is Leiðtogar Búrma lofa lýðræði  Segja Suu Kyi geta tekið þátt í umbótaferlinu Sagnfræðingurinn Thant Myint U segir að enginn leiðtoganna í Búrma hafi jafn sterka stöðu og Than Shwe hafði. Því hafi mynd- ast valdatóm sem menn reyni nú að fylla, hreyfing sé komin á margt. Aðrir segja auk þess ljóst að herforingjunum líki vel hrósið sem þeir fái nú erlendis frá. Líkar vel hrósið BREYTT STAÐA OG VALDATÓM Thein Sien

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.