Morgunblaðið - 03.11.2011, Side 21

Morgunblaðið - 03.11.2011, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 Tveir með öllu Þessir piltar áttu það svo sannarlega skilið að fá sér tvær með öllu í Bæjarins beztu pylsum í miðborginni og þeir nutu þess út í ystu æsar, enda geta dugnaðarforkar orðið glorsvangir í erli dagsins og góðgætið rennur þá ljúflega niður. Ómar Allt frá því að Göran Persson, fyrrum forsætisráð- herra Svíþjóðar, fundaði með ís- lenskum jafn- aðarmönnum og lagði þeim línurnar að koma Íslandi inn í ESB og taka upp evru, er engu líkara en heilabú samfylk- ingarmanna hafi frosið fast. Ekkert annað mál kemst að og eru það- ær og kýr jafnaðarstefnunnar á Íslandi að þeim takist með góðu eða illu að máta þjóðina inn í þennan draum sinn. Heilaþvotturinn er algjör. Ríkisstjórnin hefur á örskömm- um tíma náð undraverðum ár- angri í afneitun staðreynda og eyðileggingu málefnalegra for- sendna í nær öllum málum er landsmenn varða. Þannig verða verkefni og röðun þeirra háð stóra draumnum í höndum ráðamanna en veruleiki lands- manna og brýn þjóðarverkefni fá að bíða. Flestir sjá þetta, m.a. hrósa virtir erlendir fræðimenn íslensku þjóðinni fyrir afstöðu hennar í Icesave-málinu. Rík- isstjórn Geirs Haarde fær sinn skerf af hrósinu fyrir rétt við- brögð á ögurstundu með setn- ingu neyðarlaga, sem tók hag þegnanna fram yfir hag óreiðu- manna bankanna. Á daginn er komið með úrskurði Hæsta- réttar, að lögin standast gagn- vart stjórnarskrá Íslands, EES-samningnum og Mann- réttindarsáttmála Evrópu. Sýn- ir þessi niðurstaða að þjóðin hafði hæft fólk í mikilvægustu embættum, sem gátu brugðist svo vel við stærsta efnahags- legu áfalli í sögu þjóðarinnar. Í raun má segja að þorri Íslend- inga og vinir Íslands um heim allan vinni með hag þjóðarinnar fyrir augum og flestir sjá þetta nema ríkisstjórnin, sem eyðir öllum tíma í stríð gegn þjóðinni. Þar sem heilaþvottur ríkir gilda engin rök. Duttlungar ein- ræðisherrans ræður för. Þess vegna skiptir engu máli hvort Evrópa stendur í logum, evran er fallin, framundan eru við- sjárverðustu tímar í sögu mannkyns frá seinni heims- styrjöld; ekkert fær breytt plani íslensku ríkisstjórn- arinnar að afhenda yfirráð landsins til embættismanna í Brussel. Ýmislegt er hægt að kalla barnaskap en þegar kerf- isbundið er unnið eftir reglunni að tilgangurinn helgar meðalið verður myndin önnur. Þjóðinni má fórna til þess eins að draum- ur ríkisstjórnarinnar verði að veruleika. Eitt af þeim verkfærum, sem sköpuð hafa verið í þeim til- gangi, er svokallað „frumvarp“ stjórnlagaráðs. Forsætisráð- herra hefur boðað til forseta- kosninga á næsta ári og til- kynnt að kjósa eigi um „frumvarpið“ í leiðinni. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, eyddi allri setning- arræðu sinni á Alþingi í inni- hald „frumvarpsins“ og boðaði, að verið væri að gjörbreyta grundvelli lýðveldisins bæði með valdaminnkun flokka og flokksforingja og einnig með stórauknu valdi forseta Íslands. Hvatti forsetinn þingmenn til að rækilega taka afstöðu í mál- inu, því enginn gæti vitað til hvaða forsetaembættis væri kosið, ef málin skýrðust ekki í tæka tíð. Undarlega hljótt er enn um þetta mál úr þingsölum en fjölmiðlar ýmsir halda því fram að stóraukið lýðræði sé hér á ferð. Við nánari athugun kemur ýmislegt í ljós sem ekki er svo fallegt eða í anda aukins lýðræðis fyr- ir þjóðina. Í 67. gr. „frum- varpsins“ er hug- takið þjóð- aratkvæðagreiðsla skilgreint með eftirfarandi takmörk- unum: „Á grundvelli þeirra er hvorki hægt að krefjast at- kvæðagreiðslu um fjárlög, fjár- aukalög, lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuld- bindingum né heldur um skattamálefni eða ríkisborg- ararétt.“ Samþykki þjóðin ofan- greinda skilgreiningu í þjóð- aratkvæðagreiðslu er fordæmi fengið um stjórnlagalegan skilning sem gildir um allar þjóðaratkvæðagreiðslur nema annað sé tekið fram. Engin önn- ur skilgreining er gefin sér- staklega um þjóðaratkvæða- greiðslur vegna synjunar forseta á staðfestingu laga frá Alþingi . Hefði þetta gilt í stað núverandi stjórnarskrár hefði þjóðin ekki fengið að kjósa um Icesave. Verði þetta samþykkt mun þjóðin ekki getað kosið um þjóðréttarskuldbindingar við afsal fullveldis Íslands til ESB. Fæ ég ekki betur séð en hér eigi að láta þjóðina binda hend- ur sínar til að auðvelda inn- limun Íslands í ESB. Lands- menn fá heldur ekki að taka afstöðu til einstakra greina, meiningin er að innleiða nýja stjórnarskrá í heild sinni og kollvarpa stjórnarskrá lýðveld- isins frá 17. júní 1944. Ætla al- þingismenn virkilega að láta það viðgangast að grundvöllur Alþingis verði stórskertur, rík- isráð lagt niður og flokksfor- ingjar missi hlutverk sitt við stjórnarmyndanir? Er það raunverulega vilji Alþingis að hendur Íslendinga verði bak- bundnar og neyðarréttur þjóð- arinnar afnuminn fyrir ESB? Það er sorglegt að upplifa sí- felldar árásir ríkisstjórnarinnar á landsmenn og má þjóðin í engu slaka á vörnum sínum. Þótt ekki sé skrifað er það engu að síður andi stjórnarskrár okk- ar að ríkisstjórn sem ekki kem- ur lögum í gegn á að fara frá. Þetta atriði þarf að gera skýr- ara með nýrri málsgrein t.d. „Nú fellir þjóðin lög Alþingis, sem forseti hefur synjað stað- festingar og skal þá forsætis- ráðherra biðjast lausnar fyrir ríkisstjórnina og nýjar alþing- iskosningar boðaðar innan tveggja mánaða.“ Slíkt ákvæði hefði sparað þjóðinni áþján síðustu ár og ráðamenn fengið að fara frjálsir ferða í hugarheimum án þess að fórna þyrfti þjóðinni fyrir það. Eftir Gústaf Adolf Skúlason » Verði þetta sam- þykkt mun þjóð- in ekki getað kosið um þjóðréttarskuld- bindingar við afsal fullveldis Íslands till ESB. Gústaf Adolf Skúlason Höfundur er fv. ritari Smáfyr- irtækjabandalags Evrópu. Eina planið: að binda hendur þjóð- arinnar fyrir ESB Engin von er til þess að efnahagslífið rétti úr kútnum nema að hér verði stórauknar fjár- festingar. Þannig verða til aukin umsvif, ný at- vinnutækifæri og aukin tekjumyndun. Slíkt er forsenda þess að við vinnum á atvinnuleysinu, bætum lífskjör og sköp- um nýjar tekjuforsendur fyrir ríkissjóð. Við erum núna stödd í vítahring samdráttar, eins og við öll þekkjum. Þann víta- hring verðum við að rjúfa til þess að rífa efnahagslífið upp úr þeirri stöðnun sem er að verða viðvarandi. Gott dæmi um þetta er sjávarútveg- urinn. Þar eru miklar forsendur til umtalsverðrar fjárfestingar. Hið lága gengi krónunnar kemur sjávarútveg- inum eins og öðrum útflutnings- og samkeppnisgreinum að gagni. Fisk- verð er tiltölulega gott. Engu að síður er fjárfesting í sjávarútvegi í sögulegu lágmarki. Það er mikið áhyggjuefni og þetta ástand mun skaða okkur mjög mikið til lengri tíma. Hin litla fjárfesting mun eyðileggja það samkeppnislega forskot á sjáv- arútvegssviðinu, sem við höfum gjarn- an notið í samkeppni við aðrar þjóðir. Vitað er að í ýmsum samkeppn- islöndum okkar stuðlar ríkisvaldið beinlínis að fjárfestingum í sjávar- útvegi, jafnvel með beinum fjár- framlögum. Enginn gerir kröfu til slíks hér á landi. En til stjórnvalda verðum við að gera þá kröfu að þau vinni ekki beinlínis gegn fjárfestingum í sjávarútveginum. Það sjá allir hversu háskalegt það er þegar fjárfestingar í sjávarútvegi eru svona litlar sem raun ber vitni um. Vegna hins mikla um- fangs sjávarútvegsins í efnahagslífinu mun lágt fjárfestingarstig í sjávar- útvegi hafa mjög lamandi áhrif á efna- hagslífið; jafnt til lengri og skemmri tíma. Ráðist á skuldavandann Tvennt verðum við að horfa á í þessu sambandi. Annað lýtur að hinum almennu skilyrðum. Bankar og fjár- málastofnanir verða að vinna hratt úr skuldavanda fyrirtækja og heimila. Of- urskuldugt atvinnulíf mun ekki hafa burði til að fjárfesta né ráða til sín fólk. Þetta á við um sjávarútveginn eins og aðrar atvinnugreinar, þó að fyrir liggi að skuldavandi sjáv- arútvegsins í heild sé minni en í mörg- um örðum atvinnugreinum. Alltof lítil fjárfesting í sjávarútveginum Hitt vandamálið er þó ennþá alvarlegra og í raun alveg stórhættulegt. Frá því að ríkisstjórnin var mynduð hefur ríkt full- komin óvissa um rekstr- arumhverfi atvinnugrein- arinnar. Þrátt fyrir að skilyrði til rekstrar séu ágæt í sjávarútveginum al- mennt, hefur óvissan sem umlykur fyrirkomulag fisk- veiðistjórnar haft lamandi áhrif á sjáv- arútveginn og tengdar greinar. Þetta sjáum við birtast í hagtölum um fjárfestingar í sjávarútvegi. Þær hafa verið um 5 milljarðar króna á ári frá og með árinu 2009. Miðað við hag- tölur sem fyrir liggja er ekki óvarlegt að ætla að þessi fjárfesting hefði getað verið fjórum sinnum meiri, eða um 20 milljarðar á ári. Menn halda hins veg- ar að sér höndum. Hreyfa sig sem minnst vegna þeirrar óvissu sem rík- isstjórnin hefur skapað í kringum þessa mikilvægu atvinnugrein. Þetta er stórhættulegt ástand og því verður að linna. Við verðum að koma fjárfestingarstiginu á eðlilegt ról. Ekki einkamál sjávarútvegsins Nú hefur líka safnast upp mikil fjár- festingarþörf í atvinnugreininni. Nýjar vinnsluaðferðir, t.d í uppsjávarveiðum og vinnslu kalla á umtalsverðar fjár- festingar, til þess að við getum nýtt auðlindirnar með sem bestum og hag- kvæmustum hætti. Svipaða sögu er að segja úr öðrum þáttum sjávarútvegs- ins. Miklar framfarir og tækninýj- ungar hafa orðið án þess að okkar sjávarútvegur hafi getað nýtt sér þær. Því veldur að mestu sú óvissa sem stjórnvöld bera alla ábyrgð á. Þetta er ekki einkamál sjáv- arútvegsins. Umsvif hans í þjóð- arbúskapnum valda því að fjárfesting- arstigið í greininni hefur umtalsverð áhrif á hagkerfið í heild og á þær at- vinnugreinar sem starfa í sambýli við hann. Heilu iðngreinarnar standa og falla með fjárfestingarstiginu í sjávarútveg- inum. Þegar það er svo lítið sem núna streyma verkefnin úr landi. Keppi- nautar okkar erlendis sitja ekki hjá á meðan okkar helsta atvinnugrein getur ekki hreyft sig vegna pólitískra ákvarðana hér innanlands. Þeir skapa sér forskot, sem mun hafa neikvæð áhrif á lífskjörin hér á landi í bráð og lengd. Og á meðan dragast umsvif þeirra saman sem framleiða tækni- lausnir fyrir sjávarútveginn hér innan- lands. Þessu verður að linna. Stjórnvöld verða að höggva á þennan hnút. Fjárfestingarnar geta strax fimm- til sexfaldast Í efnahagstillögum þeim sem við í þingflokki Sjálfstæðisflokksins höfum lagt fram er einmitt lögð á þetta mikil áhersla. Við viljum virða þá sátt sem náðist fyrir rúmu ári í endurskoð- unarnefndinni um stjórn fiskveiða. Sú nefnd er gjarnan kölluð sáttanefndin, af því að henni tókst að ná saman um markverðar tillögur í málaflokki þar sem oft hafa staðið deilur um skipan mála. Með því að rjúfa óvissuna, skipa málum með skynsamlegum hætti, er ljóst mál að hér munu hefjast miklar fjárfestingar í sjávarútvegsfyrirtækj- unum. Mat okkar er, eftir samtöl við stjórnendur í sjávarútvegi, að ætla megi að fjárfestingar geti strax fimm- til sexfaldast. Þörfin er orðin upp- söfnuð og staða greinarinnar í heild leyfir að hér geti farið af stað miklar fjárfestingar. Þannig verða strax til ný störf, auknar gjaldeyristekjur, aukin umsvif og fleiri krónur í ríkiskassann. Engin efnahagsleg viðreisn án sjávarútvegsins Það er því mikill ábyrgðarhluti að tefla málum þannig, líkt og gert hefur verið, að það bókstaflega komi í veg fyrir að sjávarútvegurinn geti lagt sitt þunga lóð á vogarskálarnar og stuðlað að hagvexti og betri lífskjörum í land- inu. Hvað sem öllu öðru líður hljótum við að geta sammælst um að rjúfa þessa efnahagslegu kyrrstöðu sem stjórnvaldsathafnir hafa bókstaflega skapað. Og eitt skulum við öll hafa í huga. Það verður engin alvöru viðreisn í efnahagslífinu nema sjávarútvegurinn geti tekið þátt í henni. Það er í hendi stjórnvalda að skapa þær aðstæður og slíkt má gera skjótt og útlátalaust Eftir Einar Kristin Guðfinnsson » Það verður engin al-vöru viðreisn í efna- hagslífinu nema sjávar- útvegurinn geti tekið þátt í henni. Það er í hendi stjórnvalda að skapa þær aðstæður. Einar K. Guðfinnsson Veitum sjávarútveginum tækifæri Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.