Morgunblaðið - 03.11.2011, Qupperneq 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
5 9 1 2
9 1 2 4 6
4 5
3 8
6 1 8 3 2 9
5 3
6 8 4 9
1
6 2 4
2 5
5 7 8 1 9
7 1 6 9
2 6
9
4 7
8
1 5 8 6
6
1 8 5
2 9
5 2 1
3 8 2 7
8 4
6 1 2 4
4
4 3 7 8 9
2 9 4 5 1 8 3 7 6
1 8 5 6 7 3 9 2 4
7 3 6 9 2 4 1 5 8
3 4 2 1 8 5 7 6 9
8 5 1 7 9 6 2 4 3
9 6 7 4 3 2 8 1 5
6 2 3 8 5 7 4 9 1
5 7 9 3 4 1 6 8 2
4 1 8 2 6 9 5 3 7
9 8 3 7 2 6 1 5 4
2 7 1 4 9 5 3 8 6
5 4 6 3 8 1 9 2 7
4 6 8 1 3 2 7 9 5
1 5 7 8 4 9 6 3 2
3 2 9 5 6 7 8 4 1
6 9 5 2 1 8 4 7 3
7 1 4 9 5 3 2 6 8
8 3 2 6 7 4 5 1 9
8 3 2 7 5 1 6 9 4
6 5 7 4 2 9 1 8 3
1 4 9 8 6 3 7 2 5
4 6 1 2 9 7 3 5 8
3 9 8 5 1 4 2 7 6
7 2 5 3 8 6 9 4 1
9 1 4 6 7 8 5 3 2
5 8 6 9 3 2 4 1 7
2 7 3 1 4 5 8 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 3. nóvember,
307. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Og ég veit að boðorð
hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það
tala ég því eins og faðirinn hefur sagt
mér. (Jh. 12, 50.)
Það vakti athygli Víkverja þegarhann fékk bréf þar sem hann
var beðinn um að taka þátt í könnun
á ferðavenjum að ekki var gefið lof-
orð um nafnleynd, heldur látið nægja
að heita því að trúnaðar yrði gætt.
„Farið verður með öll svör sem trún-
aðarmál og við alla framsetningu nið-
urstaðna er þess vandlega gætt að
ekki sé mögulegt að rekja svör til ein-
stakra svarenda,“ sagði í bréfinu.
x x x
Það kom Víkverja ekki á óvart aðþeir, sem standa að könnuninni,
skyldu ekki geta heitið nafnleynd því
að þátttakendur voru ekki bara beðn-
ir um að skrá ferðir sínar á meðfylgj-
andi eyðublað, heldur einnig skrá
áfangastaði. Því var óhjákvæmilegt
að þeir gæfu upp til dæmis heim-
ilisföng og vinnustað og þar með var
rekjanleikinn orðinn nokkur. Þátt-
takendum var gert að færa síðan
ferðalög sín inn í tölvu.
x x x
Víkverji gerði það af sam-viskusemi, en þar bættust við
spurningar á borð við hverjar heim-
ilistekjurnar væru. Þetta fannst Vík-
verja dálítið mikil forvitni þrátt fyrir
að vandlega eigi að gæta þess að
„ekki sé hægt að rekja svör til ein-
stakra svarenda“. Það er að minnsta
kosti alveg ljóst að þeir, sem vinna úr
gögnum, munu auðveldlega geta rak-
ið svörin, þótt væntanlega verði að
vænta þess að niðurstöðurnar verði
ekki birtar með þeim hætti að það
verði gerlegt.
x x x
Víkverji hefur vitaskuld ekkert ámóti því að leggja sitt af mörk-
um til að bæta samgöngur í höf-
uðborginni. Hann veltir þó fyrir sér
hvers vegna ekki er farið nánar út í
ferðavenjur fyrst verið er að gera
þessa könnun á annað borð. Til dæm-
is hefði mátt spyrja Víkverja hvað
þyrfti að breytast til þess að hann
gæti hugsað sér að taka Strætó í
vinnuna – fyrir utan að sjá markvisst
til þess að það verði svo dýrt að reka
bíl að því verði sjálfhætt. En líkar
vangaveltur eru kannski efni í aðra
könnun. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skóflar, 4 frækinn,
7 veslast upp, 8 ásjóna, 9
vindur, 11 húsaskjól, 13 and-
vari, 14 tæla, 15 óbangin, 17
undur, 20 bókstafur, 22 tréð,
23 duftið, 24 ljúka, 25 híma.
Lóðrétt | 1 fýll, 2 kiðling-
arnir, 3 kyrrir, 4 snjókoma,
5 hefur í hyggju, 6 brúkað,
10 fárviðri, 12 reið, 13 op, 15
ís, 16 kistan, 18 hökur, 19
kona, 20 auk þess, 21 heiti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: |1 hjásvæfan, 8 sýpur, 9 logns, 10 tíu, 11 tjara, 13 nánar,
15 fiska, 18 satan, 21 rek, 22 skott, 23 apans, 24 sannaðist.
Lóðrétt: |2 japla, 3 sorta, 4 ætlun, 5 angan, 6 ósæt, 7 ósar, 12
rak, 14 áma, 15 foss, 16 Skota, 17 artin, 18 skarð, 19 trafs, 20
næst.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ekkert slegið af. N-AV.
Norður
♠D83
♥G
♦DG1086
♣KG43
Vestur Austur
♠954 ♠KG106
♥Á108762 ♥D3
♦932 ♦ÁK754
♣10 ♣95
Suður
♠Á72
♥K954
♦–
♣ÁD8762
Suður spilar 6♣.
Í þriðju lotu úrslitaleiks HM vakti
hinn bandaríski John Hurd á 1♦, Prec-
ision, áslaus með 10 punkta slétta. Gott
og vel, ef sá er stíllinn. Makker hans,
Joel Wooldridge, krafði í geim með
eðlilegu svari á 2♣, sem Hurd lyfti auð-
vitað í 3♣. Nú sýndi Wooldridge
slemmuáhuga með 4♣. Í ljósi fyrri létt-
leika hefði einhver látið duga að hækka
í 5♣, en Hurd taldi sér skylt að láta vita
af fyrirstöðunni í hjarta og sagði 4♥,
hvergi smeykur. Sú sögn hljómaði eins
og fuglasöngur í eyrum Wooldridge og
hann flaug í slemmu. Útspilið var hag-
stætt – hjartaás – og þægileg lega í
tíglinum tryggði sagnhafa léttan leik í
framhaldinu og tólf slagi. Hinum meg-
in spiluðu Hollendingar aðeins bút í
laufi, en þar passaði norður í upphafi
og austur náði frumkvæðinu með opn-
un á veiku grandi.
3. nóvember 1960
Tollgæslan lagði hald á mikið
af smyglvarningi í Lagarfossi,
m.a. 2.160 brjóstahaldara, 720
pör af nælonsokkum og 528
sokkabuxur. Morgunblaðið
spurði: „Smyglhringur að
verki?“
3. nóvember 1968
Alþýðubandalagið var stofnað
sem stjórnmálaflokkur, en það
hafði starfað síðan í apríl
1956. Flokkurinn varð hluti af
Samfylkingunni árið 2000.
3. nóvember 1978
Megas hélt tónleika í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð undir
nafninu Drög að sjálfsmorði.
Tónleikanna var minnst fimm-
tán árum síðar en þá voru þeir
nefndir Drög að upprisu.
3. nóvember 1985
Arnarflug flutti þrjá háhyrn-
inga frá Keflavík til Japans.
Þetta var fyrsta beina flugið
milli Íslands og Japans og tók
tuttugu klukkustundir, með
millilendingu í Kanada.
3. nóvember 2000
Hátíðin Ljósin í norðri var sett
í Reykjavík. Hún var í sam-
vinnu við hinar norrænu
menningarborgirnar, Helsinki
og Bergen. Tilgangurinn var
„að virkja myrkur og kulda
vetrarmánaðanna á norður-
slóðum á jákvæðan hátt til list-
sköpunar og skemmtunar,“
eins og Morgunblaðið orðaði
það.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Birgir Svan Símonarson, rithöfundur og deild-
arstjóri, ætlar heldur betur að taka sextugs-
afmælið með trompi og gefur út ljóðabók í tilefni
dagsins auk þess að halda heilar þrjár afmæl-
isveislur. Hann hyggst mæta með köku í vinnuna í
dag, hélt upp á afmælið með fjölskyldunni í gær-
kveldi og býður vinunum til listahátíðar um
helgina. Nýja ljóðabókin er sú sautjánda í röðinni
og ber heitið „Eftir atvikum“.
„Ég hef gefið út bæði ljóðabækur, smásagna-
safn, skáldsögu, barnabækur og eina bók á disk
með lögum og ljóðum fyrir krakka,“ útskýrir
Birgir, sem rak um fjórtán ára skeið sérkennsluúrræðið Hvammshús
fyrir börn á aldrinum 14-16 ára. Skáldgyðjunni þjónar hann í frí-
stundum en hann segist hafa notið þeirrar náðar að vera fæddur til að
sinna kennslustörfum auk þess sem hann stundaði einnig sjóinn um
nokkurra ára skeið og segist hvergi sofa betur en úti á rúmsjó.
Hann dregur innblástur frá síbreytilegu umhverfi sínu og hefur
verið óhræddur við að gera tilraunir við ljóðasmíðarnar. „Ég hef dá-
lítið litið á mig sem blaðamann í ljóðlistinni,“ segir hann, „litið á ljóð-
listina sem blaðamennsku frá greiningardeild tilfinninganna.“
Birgir Svan Símonarson er sextugur í dag
Stefnir á afmælisþrennu
Flóðogfjara
3. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 6.01 1,4 12.34 3,2 19.01 1,4 9.17 17.07
Ísafjörður 2.06 1,5 8.11 0,8 14.47 1,7 21.23 0,7 9.35 16.58
Siglufjörður 4.36 1,0 10.18 0,6 16.43 1,1 23.09 0,4 9.19 16.41
Djúpivogur 2.48 0,7 9.29 1,7 15.52 0,9 21.52 1,5 8.50 16.33
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er líklegt að yfirmenn þínir setji
fram ákveðnar hugmyndir um miklar breyt-
ingar í dag. Notaðu hugmyndaflugið í at-
vinnuleitinni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Nú er heppilegur tími til að skipta um
húsnæði eða starf. Farðu varlega og það mun
skila þér miklu þegar fram í sækir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sköpunargáfa þín er í hámarki í
dag. Leitaðu ráða ef þú þarft að taka stóra
ákvörðun varðandi fasteignir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er ekki amalegt lífið þessa dag-
ana svo þú skalt njóta þess til hins ýtrasta.
Innst inni veistu hvað þér er fyrir bestu og þá
er bara að sýna kjark og kjósa rétt.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Hugmyndirnar streyma að þér úr öllum
áttum svo þú mátt hafa þig alla/n við að
drukkna ekki í flóðinu. Þú þarft ekki að ör-
vænta, því með þolinmæðinni hefst allt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú skalt nálgast fólk varlega. Bráðlæt-
ið kemur þér ekkert fyrr á leiðarenda, þú get-
ur alveg eins hallað þér aftur og notið útsýn-
isins.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Greiddu úr flækjum í sambandi við eign-
ir, sameiginlega ábyrgð og eignaskipti.
Hægðu á verkefnum og gefðu þér tíma til að
undirbúa framkvæmdir.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ekki er gott að leggja við hlustir
ef maður þagnar aldrei. Gerðu ráð fyrir að
draumar þínir geti orðið að veruleika.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú er komið að því að vinur þinn
verður að endurgjalda þér greiða. Þú skalt
ekki taka það sem sjálfsagðan hlut að vera
heilbrigð/ur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er nóg að breyta einu litlu at-
riði í daglegum háttum til þess að breyta
hlutunum til batnaðar. Lærðu af reynslunni.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ýmsir möguleikar standa þér til
boða. Hvernig væri að sinna fjölskyldunni
betur? Þú veist að hún skiptir meira máli en
vinnan.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Með sama áframhaldi mun vinna þín
skila þér arði og ánægju. Stefndu alltaf að því
að gera þitt besta.
Stjörnuspá
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Bb7 5.
Bg2 c5 6. d5 exd5 7. Rh4 g6 8. Rc3 Bg7
9. O-O O-O 10. Bg5 De8 11. cxd5 d6 12.
Dd2 Rbd7 13. Bh6 Bxh6 14. Dxh6 a6
15. a4 b5 16. axb5 axb5 17. Rxb5 Hxa1
18. Hxa1 Dxe2 19. Rxd6 Dxb2 20. Hd1
c4 21. h3 c3 22. Rhf5 gxf5 23. Rxf5 Re8
24. Be4 Kh8 25. Rg7 f5 26. Rxe8 Hxe8
27. Bxf5 Rf8 28. Df6+ Kg8 29. Hd4
Dc1+ 30. Kh2 He1
Staðan kom upp á öflugu alþjóðlegu
móti sem lauk fyrir skömmu í Saratov í
Rússlandi. Stórmeistarinn Pavel Elj-
anov (2683) frá Úkraínu hafði hvítt
gegn kollega sínum Dmitry Andreikin
(2705) frá Rússlandi. 31. Bxh7+! og
svartur gafst upp enda yrði hann mát
eftir 31…Kxh7 32. Hh4+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is