Morgunblaðið - 03.11.2011, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 03.11.2011, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 Elva er mikilli kímnigáfu gædd og gerir miskunnarlaust grín að sjálfri sér 35 » Sönglög Sigursveins D. Krist- inssonar verða flutt á tónleikum í sal Tónskólans á Engjateigi 1 á laug- ardaginn kl. 14.00. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni þess að komin er út heildarútgáfa laganna. Tónskáldið og tónlistarfrömuður- inn Sigursveinn Davíð Kristinsson hefði orðið 100 ára á síðasta ári, en hann fæddist 24. apríl 1911 og lést 2. maí 1990. Í tilefni af 100 ára afmæl- inu hafði Sigrún Valgerður Gests- dóttir sópransöngkona, sem var samstarfsmaður Sigursveins um árabil, forgöngu um að tekin yrði saman og tekin upp heildarútgáfa á sönglögum Sigursveins. Sú útgáfa, sem heitir einfaldlega Sönglög, kom út á tvöföldum geisladisk nú fyrir stuttu, en það er Smekkleysa sem gefur diskinn út. Alls eru þrjátíu lög á diskunum tveim. Flytjendur laganna eru Sig- rún Valgerður, Einar Jóhannesson klarínettuleikari og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari. Á tónleik- unum á laugardag flytja Sigrún, Einar og Kristinn valin lög. Sungin sönglög Sigursveins  Heildarútgáfa sönglaga Sigursveins D. Kristinssonar kynnt Sönglög Einar Jóhannesson, Sigrún Valgerður Gestsdóttir og Kristinn Örn Kristinsson flytja sönglög Sigursveins D. Kristinssonar á laugardag. Glíman, óháð tímarit um guðfræði og samfélag, Reykjavíkurakademían og Skálholtsskóli standa fyrir mál- þingi um sjálfskilning og tilvist- arvanda mannsins frá ýmsum sjón- arhornum guðfræði, bókmennta- fræði og heimspeki á föstudag og laugardag. Málþingið verður haldið í Reykjavíkurakademíunni, Hring- braut 121, á föstudag kl. 15.00 til 18.00 og laugardag kl. 10.00 til 16.00. Á föstudag ræðir Kristinn Ólason um kreppur sjálfsins og brotna guðsmynd í Jobsbók, Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um kreppur sjálfsins í bókum Þórbergs Þórð- arsonar, og Clarence E. Glad ræðir um orð úr Rómverjabréfi: „Það sem ég vil, það gjöri ég ekki, en það sem ég hata, það gjöri ég.“ Sr. Gunnar Kristjánsson bregst við erindum. Á laugardag fjallar Gunnbjörg Óladóttir um stríðlynt samband trú- ar og trausts, Jón Viðar Jónsson ræðir ólíkan mannskilning í leik- ritum Christopher Marlowes og William Shakespeares, Sigurjón Árni Eyjólfsson um sjálfin og synd- ina, Bjarni Bjarnason veltir upp spurningunni hvað óflekkað mann- orð kosti, Arnhildur Lilý Karlsdóttir rýnir í atman, Kristín Guðrún Jóns- dóttir segir frá stigamönnum í helgra manna tölu með tveim dæm- um frá Mexíkó og Egill Arnarson ræðir krísur sjálfsins í verkum Wi- told Gombrowicz. Gauti Krist- mannsson bregst við erindum. Mannskilningur Leikskáldið Chri- stopher Marlowe, mynd frá 1585. Sjálfskiln- ingur og til- vistarvandi  Málþing í Reykja- víkurakademíunni Menningarhátíðin Safnahelgi á Suðurlandi verður sett í Sögu- setri á Hvolsvelli í dag og stendur fram á sunnudag. Al- menn dagskrá hefst á föstudag og nær um allt Suðurland. Í Listasafni Árnesinga verð- ur boðið upp á listamannsspjall á sunnudag kl. 14.00 með JBK Ransu um verk hans á sýning- unni Almynstur. Á föstudag kl. 17.00 verður síðan opnuð sýning á verkum indverska papp- írslistamannsins Baniprosonno og einnig verður sýndur afrakstur úr listasmiðjum með Davíð Erni Halldórssyni. Myndlist Safnahelgi í Listasafninu JBK Ransu Vinjettuhátíð verður haldin í Kaffi Kró í Vestmannaeyjum á sunnudag og hefst kl. 16.00. Lesið verður upp úr verkum Ármanns Reynissonar. Upp- lesarar auk hans eru Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir og Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, fé- lagar úr Kvenfélaginu Líkn, Viktor Rittmuller og Berglind Karlsdóttir nemendur úr Framhaldsskóla Vestmannaeyja og Gísli Halldór Jónasson og Hermann Einarsson heldriborgarar. Hljóðfæraleik og söng annast Unnar Gísli Sig- urmundsson. Aðgangur ókeypis. Bókmenntir Vinjettuhátíð í Kaffi Kró Ármann Reynisson Næstkomandi sunnudag lýkur sýningu Ingu Þóreyjar Jó- hannsdóttur í Listasafni ASÍ. Þórey er menntuð við Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Hochschule fur Angewandte Kunst í Vínarborg. Hún hefur haldið einkasýningar m.a. í Ný- listasafninu og Listasafni ASÍ og tekið þátt í samsýningum í Listasafni Reykjavíkur, Lista- safni Reykjanesbæjar og Listasafni Kópavogs auk annarra sýninga hér heima og erlendis. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13 til 17 og aðgangur er ókeypis. Myndlist Sýningarlok Ingu Þóreyjar Inga Þórey Jóhannsdóttir Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég lít fyrst og fremst á þetta sem gamanleikrit þó að vissulega sé ver- ið að spyrja erfiðra spurninga,“ seg- ir Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri og annar tveggja höfunda Endaloka alheimsins sem grindvíska atvinnu- leikhúsið (GRAL) frumsýnir annað kvöld kl. 20 í Kvikunni, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur. Líkt og titill verksins gefur til kynna fjallar verkið um síðustu fjórar mannver- urnar á jarðríki sem reyna að kom- ast að því hvernig og hvort hægt sé að halda áfram eftir endalokin. „Þær hafa tækifæri til að byrja upp- bygginguna frá grunni en virðast vera ófærar um það vegna slæmrar skilyrðingar og vondra siða. Við höfundarnir leyfum okkur að beita barnslegri einfeldni í skoðun okkar á heiminum. Við sjáum fólk í útlöndum mótmæla ranglætinu í heiminum sem birtist m.a. í mis- skiptingu auðs. Fólkið sér að það er eitthvað rangt og krefst breytinga þó að það sé sjálft ekki með svarið á reiðum höndum. Með sama hætti leyfum við okkur að setja spurning- armerki við hluti á borð við efna- hagskerfið, pólitíkina og orðræðuna sem einkennir samtíma okkar,“ seg- ir Bergur og vísar því á bug að verk- ið einkennist af svartsýni. „Við spyrjum glaðlega hvort það sé rétt skilið hjá okkur að heimurinn sé eins og hann kemur okkur fyrir sjónir um þessar mundir,“ segir Bergur og tekur fram að hann forð- ist það að svara beint í uppsetning- unni. „Ég er bara eins og fólkið sem er mótmæla fyrir framan Wall Street. Ég er ekki með svarið en ég er samt ekki sáttur. Mér finnst við hljóta að geta gert betur.“ Húmor og stórt hjarta Endalok alheimsins er þriðja upp- setningin hjá GRAL sem áður hefur sýnt 21 manns saknað og Horn á höfði. Báðar sýningarnar voru til- nefndar til Grímuverðlauna og hlaut Horn á höfði Grímuna árið 2010 sem barnasýning ársins. „Það er rétt að taka fram að Endalok alheimsins er ekki barnasýning, enda er hún bönnuð börnum yngri en 12 ára. Við leyfum okkur það frelsi að gera alls konar sýningar, jafnt barnasýningar sem fullorðinssýningar,“ segir Berg- ur og tekur fram að á teikniborðinu sé að gera framhald af Horn á höfði. Spurður hvort sérstakur stíll ein- kenni sýningar GRALs svarar Bergur því játandi. „Leiksýningar okkar einkennast af húmor og stóru hjarta,“ segir Bergur og tekur fram að markmið hópsins sé að efla Grindavík sem menningarbæ. Spurður hvernig gangi að fá fólk af höfuðborgarsvæðinu til að keyra til Grindavíkur í leikhús segir Bergur það ganga vonum framar og bendir á að um sex þúsund manns hafi séð sýningar leikhópsins frá upphafi. „Við spyrjum glaðlega“  Endalok alheimsins nýtt íslenskt leikrit hjá GRAL Hvað er í matinn? Hver á að elda síðustu ýsuna? Eru kartöflur nauðsynlegar með ýsunni eftir að heimurinn hefur farist? Þetta eru meðal þeirra spurninga sem persónur leiksins Endalok alheimsins þurfa að spyrja sig. Endalok alheimsins er eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund Brynjólfsson. Leikstjóri er Berg- ur Þór Ingólfsson. Eva Vala Guð- jónsdóttir hannar leikmynd- og búninga, en Magnús Arnar Sig- urðsson lýsingu. Leikarar eru Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sól- veig Guðmundsdóttir, Víðir Guð- mundsson og Benedikt Gröndal. Endalokin LISTRÆNIR STJÓRNENDUR Á laugardag kl. 13.30 til 16.00 verður haldið rit- þing helgað Vig- dísi Grímsdóttur í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi. Jór- unn Sigurð- ardóttir stjórnar ritþinginu og spyrlar verða Hrafn Jökulsson og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir. Vigdís les úr verkum sínum á ritþinginu og Ellen Krist- jánsdóttir syngur. Á ritþinginu verð- ur leitast við að veita innsýn í líf og feril Vigdísar sem sendi frá sér smá- sagnasafnið Tíu myndir úr lífi þínu 1983. Fyrir stuttu sendi Vigdís frá sér skáldsöguna Trúir þú á töfra?, en aðalpersóna sögunnar er stelpa sem málar rauða ketti. Í kaffihúsi Gerðubergs stendur nú sýning á myndum sem Vigdís málaði sam- hliða skrifunum. Stefnumót við Vigdísi Vigdís Grímsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.