Morgunblaðið - 03.11.2011, Page 34

Morgunblaðið - 03.11.2011, Page 34
Þór Harðarson, desember 2008. Undanfarin ár hefur ljósmynd- arinn Jónas Hallgrímsson myndað íslenskt fitness-fólk á skipulegan hátt til þess að skrásetja með skipulegum hætti þá sem stunda íþróttina. Frá föstudegi til sunnu- dags verður hægt að sjá myndir úr verkefninu á Expo-vörusýningunni í Hörpu, en á henni verða kynntar helstu nýjungar í fæðubótarefnum og heilsuvörum, þjálfun og tækj- um. Fyrsta myndatakan í verkefninu var í október 2008 og þær eru orðn- ar 125, en fyrirsæturnar eru 90. Myndirnar hafa verið teknar í stúdíói í Reykjavík, í íþróttahöllinni á Akureyri (í tengslum Íslands- mótin 2009 og 2010) og víða í ná- grenni Reykjavíkur. Frá upphafi var Jónas með það í huga að halda sýn- ingu á myndunum og eins að gefa þær út á bók. Í kynningu á sýningunni segir Jónas að sér hafi þótt þessi hópur áhuga- verður. „Íslendingar flykkjast í ræktina og drekka próteindrykki. Það hefði aldrei verið hægt að mynda alla sem stunda líkamsrækt en það er hægt að mynda þá sem taka ræktina lengra en flestir og keppa í þessu og þannig má skapa heimild um fitness-fólk á Íslandi.“ arnim@mbl.is Myndir af íslensku fitness-fólki  Íslenskt fitness-fólk myndað á skipulegan hátt í þrjú ár  125 myndatökur af 90 fyrirsætum Ljósmyndir/Jónas Hallgrímsson Arnar Grant, nóvember 2008. Hrönn Sigurðardóttir, apríl 2009. Mark Bargamento, nóvember 2010 Einhildur Ýr Gunnarsdóttir, apríl 2011. 34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011 Fjórða skáldverk AraTrausta Guðmundssonarer lipurlega rituð röðfimm sagna sem eru á mörkum þess að vera smásögur og nóvellur að lengd, hver um sig. Fljótt á litið virðist ekki margt tengja þær saman enda fleyta sög- urnar kerlingar á árhundruðunum frá tólftu öld til dagsins í dag. Þó eiga þær það sameiginlegt að fjalla hver um sig um ákveðna umbrota- tíma í sögu Íslands og þjóðarinnar sem það byggir; nútíminn er í þann mund að víkja fyrir nýjum tíma, með því sem fylgir. Sögulegar persónur koma við sögu í bland við skáldaðar, raunverulegum atburðum fléttað saman við skáldskap svo úr verður býsna forvitnilegur aldaspegill sem varpar ljósleiftri á liðinn tíma. Frásögnin hefst á tólftu öld og hverfist sá kafli um Sæmund Sigfús- son fróða, goðorðsmann og prest í Odda á Rangárvöllum. Þegar les- andi kemur að er degi tekið að halla í lífi hins lærða manns og mein tekin að grafa um sig. Ýmsar blikur eru þá á lofti; bæði hillir undir lok goð- orðaskipanarinnar á Íslandi og óvíst hvaða umrót og róstur það kann að hafa í för með sér. Einnig eru synir Sæmundar að hugsa sér til hreyf- ings frá heimahögunum og horfa í því sambandi til fjarlægra landa. Ís- land, sem er ekki nema á þriðja ár- hundraði sem þjóðríki, er sumsé að vaxa úr grasi, rétt eins og höfð- ingjasynirnir í Odda, hvort sem Sæ- mundi er það leitt eða ljúft. Af svip- uðum toga er annar hluti, en þá er hinn kaþólski siður við það að fara halloka hér á landi fyrir siðbót Lúth- ers og kirkjunnar menn á báðum áttum hvert halda skuli. Hversu langt má ganga fyrir hinn geistlega málstað, og hvar liggur réttlætið í þeim efnum? Má brjóta boðorð himnaherrans ef það er meint í þágu hans sjálfs? Þriðji kaflinn er einna bestur, að mati undirritaðs. Þar segir frá kven- skörungi, Sigríði að nafni, sem rær til fiskjar frá hinum viðsjárverðu ströndum Suðurlands á fyrri hluta 19. aldar. Ekki er hún einasta dug- andi til sjós heldur formaður á bát sínum. Þessi vaska persóna er sér- lega heilsteypt og um leið áhuga- verð, og birtist lesandanum ljóslif- andi án þess að Ari Trausti þurfi að spandera mörgum orðum í lýsingu á henni. Hér slær hann hárréttan tón og skapar svo magnaðan karakter að mann blóðlangar að vita meira; bæði um fortíðina sem brýndi Sig- ríði til svo mikils dugnaðs og ákveðni og eins hvert leið hennar og líf lá í kjölfarið, þegar þilskipaútgerðin er á næsta leiti. Ekki er laust við að maður óski þess að höfundur hefði gert henni skil með bók út af fyrir sig. Síðustu tvær sögurnar eru frá ná- lægari tíma. Annars vegar segir frá ferjumanni norður í landi á þriðja áratug 20. aldar, í þann mund er brúarsmíði er að tengja sveitir lands svo um munar. Um leið og brýr eru ótvíræð samgöngubót, lands- mönnum til heilla, hlýtur sá ávinn- ingur um leið að vera á kostnað ferjumannsins, sem síst má við áföll- um enda burðast hann þá þegar með ýmsa djöfla úr fortíðinni. Ari Trausti lýkur svo Sálumessu á sögu úr sam- tímanum þar sem misbrotið fólk reynir að fóta sig á sviðinni jörð góð- ærisins svokallaða. Um leið og áhugafólk um íslenska sagnfræði fær talsvert fyrir sinn snúð rísa kaflarnir fimm mishátt til að fanga huga annarra lesenda. Siðaskiptahlutinn úr Þingeyra- klaustri hreyfði þannig heldur minna við þessum lesanda en hlut- arnir um formanninn og svo ferju- manninn. Eftir stendur ágæt- isskáldverk þar sem höfundur syngur sálumessu yfir liðnum tíma, og minnir hæglátlega á þá staðreynd að framfarir heildarinnar og um- skipti til nýrra tíma eru alltaf á ein- hvern hátt, einhvers staðar, á kostn- að einstaklinga; í samfélagslegum framförum mun líkast til felast per- sónulegur fórnarkostnaður, ef ekki harmleikur. Ari Trausti bindur svo heildina saman í fíngerðan, klass- ískan þráð með því að gefa köflunum latnesk heiti. Þegar allt kemur til alls er það aðlögunarhæfnin sem tengir kynslóðirnar – og stöku kon- ur með valbrá í fuglsmynd. Sálumessa bbbmn Eftir Ara Trausta Guðmundsson. Uppheimar gefa út. 321 bls. JÓN AGNAR ÓLASON BÆKUR Morgunblaðið/Árni Sæberg Sálumessa Í Sálumessu fléttar Ari Trausti Guðmundsson raunverulega at- burði saman við skáldskap svo úr verður aldarspegill. Að kveðja gamlan tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.