Morgunblaðið - 03.11.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Breiðskífa með tónverki Bens Frost og Daní-
els Bjarnasonar, Solaris, kemur út í byrjun
næstu viku. Tónlistina sömdu þeir félagar
innblásnir af þekktri kvikmynd Rússans
Andrei Tarkovskíj, Solaris, frá árinu 1972 en
myndin er byggð á skáldsögu pólska rithöf-
undarins Stanislaw Lem frá árinu 1961. Sol-
aris er sálfræðidrama sem varpar ljósi á tak-
markaðan skilning okkar mannanna á eigin
eðli og alheiminum og fer að miklu leyti fram
í geimstöð á sporbaug um plánetu sem nefn-
ist Solaris. Vísindamenn um borð í geimstöð-
inni hafa fengið það verkefni að rannsaka
plánetu sem reynist vera lífvera og fer að
stjórna heilastarfsemi vísindamannanna sem
upplifa á ný augnablik úr eigin ævi. Sálfræð-
ingur er sendur til geimstöðvarinnar til að
meta ástandið og fer lífveran þá að ráðskast
með hann einnig í þeim tilgangi að gera hann
hamingjusaman.
Tækifæri til samstarfs
Frost er mikill aðdáandi Tarkovskíj heitins
og Solaris er ein af hans uppáhalds-
kvikmyndum. Hann segir tónlistina í mynd-
inni hins vegar barn síns tíma og hann hafi
því ákveðið að semja tónlist undir áhrifum af
kvikmyndinni og bók Lem. Hugmyndin hafi
kviknað í samræðum þeirra Matt Schulz,
skipuleggjanda On Sound-tónlistarhátíð-
arinnar í Póllandi. Þeir hafi farið að ræða um
Solaris og Frost sagt honum frá því að hon-
um þætti tónlistin í myndinni ekki hafa elst
eins vel og myndin sjálf. Schulz hafi nokkru
síðar hringt í hann og spurt hvort hann vildi
semja nýja tónlist við myndina ef hann fengi
tækifæri til að vinna með Krakársinfóníett-
unni í Póllandi, semja fyrir hana og taka upp
með henni. Frost sló til og sá þarna kjörið
tækifæri til þess að vinna með Daníel en
honum hafði hann kynnst árið 2005.
Tónlist sem varð að semja
Í fyrrasumar hlaut Frost Rolex-verðlaunin
í listum og þeim fylgdi mikill heiður fyrir
tónlistarmann, að fá að starfa með goðsögn-
inni Brian Eno. Eno hefur verið Frost til
leiðsagnar í um ár og vann hann myndbands-
verk sem sýnt var samhliða flutningi tón-
verksins Solaris. Verkið var frumflutt á tón-
listarhátíðinni Unsouna í Kraká í október í
fyrra, í Lincoln Center í New York í apríl á
þessu ári og á Listahátíð í Reykjavík 4. júní
sl. „Ég hef verið að vinna með Eno und-
anfarið ár, við höfum verið að vinna saman í
stúdíói ótrúlega mikið, tekið upp fimm, sex
tíma af tónlist,“ segir Frost. Hann segir til-
gang þurfa að vera með tónlistarsköpun, of
mikið sé um tónlist í heiminum sem hafi eng-
an sýnilegan tilgang. „Ég vil ekki semja verk
sem er óþarft. Á tveimur síðustu plötunum
mínum var tónlist sem ég þurfti að heyra,
tónlist sem ekki var til annars staðar,“ út-
skýrir Frost. Þegar tónverkinu Solaris hafi
verið lokið hafi honum þótt það passa
myndinni vel. Það lifi þó sjálfstæðu lífi.
Eno hafi fengið þá hugmynd að búa til
myndbandsverk til að sýna við frum-
flutning verksins og unnið það út frá
kvikmyndinni og þeirri speglun minninga og
upplifana sem þar eigi sér stað. „Allt sem þú
ert að hugsa um er speglað fyrir framan þig
og við tókum svolítið frá þessu í tónlistinni,“
segir Frost, tónlistin hafi verið spegluð með
sérstöku tölvuforriti, forriti sem veiti svar
við svari, eins og hann orðar það. „Við end-
uðum oft á mjög skrítnum stað, tónlistin
snerist við hér og þar,“ segir Frost um út-
komuna. Þeir Daníel gengu frá plötunni hér
heima, í Gróðurhúsinu og Bedroom Comm-
unity gefur út.
Semja fyrir Djúpið
– Ertu enn að vinna með Eno?
„Já. Við höfum unnið saman í um það bil
ár og samstarfinu er opinberlega lokið í dag
en ég get ekki ímyndað mér að það sé búið.
Við vinnum mjög vel saman,“ svarar Frost.
Samstarfi þeirra Daníels sé heldur ekki lokið
því þeir séu að ganga frá tónlist við kvik-
mynd Baltasars Kormáks, Djúpið.
Að lokum berst talið að umslagi plötunnar
Solaris. Á því situr Daníel á rúmkanti og fyr-
ir aftan hann liggur Frost. Undarleg, gam-
aldags maskína sést í bakgrunni. „Þetta er
endurgerð á stillu úr Solaris,“ útskýrir Frost
fyrir blaðamanni sem hefur ekki séð kvik-
myndina. „Mér finnst þetta fallegt augnablik
í myndinni, þoli ekki leiðinleg kóver.“
Spegill Stilla úr kvikmyndinni Solaris að ofan og umslag plötunnar Solaris niðri. Eins og sjá má
hefur heppnast býsna vel að líkja eftir stillunni á ljósmyndinni.
Speglanir í myndum og tónum
Daníel Bjarnason og Ben Frost senda frá sér plötuna Solaris Tónverk innblásið af samnefndri
kvikmynd Andrei Tarkovskíj frá árinu 1972 Frekara samstarf Frosts og Brians Eno framundan
Um flutning Krakársínfóníettunnar,
Daníels og Frost á verki þeirra á Listahá-
tíð í sumar sagði blaðamaður Morg-
unblaðsins, Hallur Már, m.a: „Á köflum
minnir verkið á tónlist síðrokksveita á
borð við Godspeed you black emperor
eða A Silver Mt. Zion en er þó bless-
unarlega laust við yfirkeyrða og fyr-
irsjáanlega dramatík. Ben Frost sem er
þekktur fyrir að skapa ærandi hljóðveggi
myndaði hljóðmynd með gít-
areffektum og drunum
sem urðu á köflum svo
kraftmiklar að mér varð
hugsað til sonar míns
sem fékk að fljóta með
í móðurkviði. Risið var
þó aldrei yfirdrif-
ið og ég er viss
um að unginn
hefur unað
sér vel.“
Ekki yfirkeyrt
Á LISTAHÁTÍÐ
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Steinar Fjeldsted tónlistarmaður er
best þekktur sem einn stofn-
meðlimum Quarashi. Í næstu viku
kemur hins vegar út lagið „Ciga-
rettes“ sem hann stendur einn og
óskiptur að. Lagið er forsmekk-
urinn að sólóplötu sem hann vinnur
nú að á sveitabæ suður á landi en
þangað er hann fluttur með konu,
börn og bú og hefur dvalið þar í tvo
mánuði.
Netdreifing svínvirkar
„Já, ég er að leigja bóndabæ
hérna og setti upp hljóðver til að
geta tekið upp,“ segir Steinar.
„Ég var orðinn leiður á Reykja-
vík og langaði til að prófa eitthvað
nýtt.“ Lagið „Cigarettes“ kemur út
eftir helgi og fer í spilun á útvarps-
stöðvum. Einnig verður hægt að
sækja það á netmiðla.
„Við erum að tala um soundclo-
ud, gogoyoko, youtube, fésbók-
ina … þessar helstu stoppistöðvar
fyrir tónlist á stafrænu formi. Von-
andi kemst ég svo í það að búa til
myndband. Það er svo skemmtilegt.
Svona netdreifing svínvirkar og þú
nærð athygli, efnið er aðgengilegt.
Ég væri auðvitað helst til í að gefa
út tólftommu líka, maður er af
þeirri kynslóð, en slíkt kostar auð-
vitað sitt.“
Steinar hefur verið að búa til eig-
in tónlist frá ellefu ára aldri að eig-
in sögn, en eftir að Quarashi lagði
upp laupana hefur hann mikið til
verið að sýsla í raftónlist.
„En ég myndi flokka þessa plötu
sem ég er að vinna í sem mína
fyrstu opinberu plötu. Nú ætla ég
líka einfaldlega að notast við mitt
eigið nafn, Steinar Fjeldsted“
Kjöraðstæður
Og honum líkar vel í sveitinni,
tónninn í símanum er vonbjartur og
orkuríkur.
„Þetta er frábært. Og ef ég þarf
nauðsynlega að skreppa í stórborg-
ina ógnandi er hún skammt undan.
Reykjavík er stressandi borg þótt
lítil sé. Það er allt í gangi, alls stað-
ar, alltaf. Þú þekkir þetta. Maður
finnur sig allt í einu inni á ein-
hverjum stað og maður veit ekki af
hverju maður er þar. Manni finnst
bara að maður eigi að vera þar! Hér
róast maður allur og smám saman
fer að lengjast í tímanum. Ég hef
meiri tíma fyrir fjölskylduna, tón-
listina og er bara með meiri fókus
svona almennt. Það stöðvar mig
ekkert núna, ég er í kjöraðstæðum
til að vinna að mínum hlutum.“
Steini í Quarashi
vinnur að sólóplötu
Morgunblaðið/Sverrir
Sveitasæla Steinar Fjeldsted, kenndur við Quarashi, býr nú úti á landi þar
sem hann vinnur að sinni fyrstu sólóplötu í friði og spekt.
Fluttur suður á land og hefur aldrei haft það betra