Morgunblaðið - 03.11.2011, Síða 40

Morgunblaðið - 03.11.2011, Síða 40
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Harka hlaupin í innheimtu 2. Andlát: Ólafur H. Óskarsson 3. Pilssídd leiddi til áfloga 4. Skaða sig vísvitandi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tom Six, leikstjóri The Human Centipede 2, er væntanlegur til landsins í næstu viku og mun sitja sérstaka „spurt og svarað“-sýningu 10. nóvember. Myndirnar atarna þykja með ógeðfelldustu myndum sem sýndar hafa verið. Leikstjóri Human Centipede til landsins  Á laugardag kl. 14 verður opnuð myndlistarsýning í 002 Galleríi á Þúfubarði 17, sýn- ingarrými Birgis Sigurðssonar sem einnig er heimili hans. Sýnendur eru pörin Hulda Vilhjálmsdóttir og Valgarður Braga- son og Ragnhildur Jóhannsdóttir og Jóhann Ludwig Torfason. Sýningin stendur í tvo daga. Tvö pör sýna mynd- list heima hjá Birgi  Færeyska söngkonan Guðríð Hans- dóttir vakti mikla athygli á nýliðinni Airwaves-hátíð. Hún er búsett á landinu um þessar mundir og heldur tónleika á Gauknum í kvöld. Einnig leika Elevator og Myrra Rós en hún vinnur nú um stundir að fyrstu plötu sinni, Kveld- úlfi. Guðríð Hansdóttir á Gauknum í kvöld Á föstudag Suðaustlæg átt, 5-13 m/s en norðaustlægari norð- vestantil, hvassast sunnantil um kvöldið. Rigning um landið sunn- an- og vestanvert en úrkomulítið nyrðra. Hiti 2 til 9 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austanátt, 4-15 m/s. Styttir upp um landið norðaustanvert en talsverð rigning norðvestantil fram eftir degi og skúrir annars staðar. Hægt hlýnandi veður, hiti 1 til 10 stig. VEÐUR Evrópumeistararnir í hópfim- leikum úr Gerplu hafa orðið fyrir talsverðum skakkaföllum að undanförnu og liðið fer vængbrotið á Norðurlanda- mótið sem haldið verður í Nor- egi um aðra helgi. Íris Mist Magnúsdóttir er úr leik og fjór- ar aðrar í meistaralið- inu eiga við meiðsli að stríða. Það breytir því ekki að Gerplurnar stefna að því að vinna gullið. »4 Mikil meiðsli í herbúðum Gerplu „Mér líkar rosalega vel í Danmörku. Það fer vel um mig og ég er ánægður með að geta loks farið að stíga fyrstu skrefin sem atvinnumaður í hand- bolta,“ sagði Ólafur Andrés Guð- mundsson, landsliðsmaður í hand- knattleik, sem í vetur leikur með danska úrvals- deildarliðinu Nordsjælland. »3 Mikil viðbrigði að spila í Danmörku Real Madrid með Cristiano Ronaldo í broddi fylkingar tryggði sér í gær- kvöld sæti í 16-liða úrslitum Meist- aradeildarinnar með 2:0-sigri gegn Lyon. Ronaldo skoraði bæði mörk liðsins sem hefur fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Manchester City hélt sigurgöngu sinni áfram og grannar þeirra í Manchester United fögnuðu sigri. »2 Cristiano Ronaldo skaut Real Madrid áfram ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Gyrðir Elíasson rithöfundur tók í gærkvöldi við Bókmenntaverðlaun- um Norðurlandaráðs, við hátíðlega athöfn í Konunglega tónlistarskól- anum í Kaupmannahöfn. Á sama tíma voru afhent kvikmynda-, tón- listar- og umhverfisverðlaun Norð- urlandaráðs. Gyrðir hlaut verðlaunin fyrir sagnasafnið Milli trjánna. Bókin hef- ur komið út á Norðurlöndum á síð- ustu mánuðum og alls staðar hlotið afar lofsamlega dóma. Verðlaunaféð er rúmar sjö milljónir króna. Í þakkarávarpi sínu sagði Gyrðir að þegar hann var unglingur að lesa Klakahöllina eftir Tarjei Vesaas og Vonin blíð eftir William Heinesen hefði hann aldrei grunað að hann ætti eftir að standa í sömu sporum og þeir og aðrir ágætir höfundar sem hafa hlotið þessi verðlaun. Gyrðir minntist á áhrif sem fleiri norrænir höfundar höfðu á hann, og sagðist geta sagt með nokkurri vissu að í bernsku sinni hefðu það verið nokkrar skandinavískar skáldkonur sem vöktu með honum hálfdulda löngun til að skrifa, þær Selma Lag- erlöf, Tove Jansson, Anne Cath. Vestly, Maria Gripe, Astrid Lind- gren og Sigrid Undset. „Mögulega ásamt hinum óþekktu höfundum Ís- lendingasagna, og þá sérstaklega Grettissögu, sem varð mér hug- leiknari en aðrar sögur vegna þess að ég ólst upp í Skaga- firði … þar sem Grettissaga ger- ist að stórum hluta. Það voru þó kannski íslenskar þjóðsögur umfram allt sem kveiktu í mér. Nokkru síðar kom Knut Hamsun til skjal- anna og kynni mín af honum hafa líklega ráð- ið úrslitaáhrifum um þá stefnu sem ég tók.“ Í lok ávarpsins sagði Gyrðir að allt lífið verkaði á þann sem hefði óljósan grun um að hann ætti eftir að feta svokallaða „listabraut“. Hann sagði að „samlíf við land og náttúru, fólk og dýr er jafnmikilvægt og sú menntun sem borgarsamfélög nú- tímans bjóða upp á, og reyndar byggist öll sönn menntun á þessu, þegar grannt er skoðað, enn þann dag í dag. Þegar sú stund rennur upp að borgarsamfélögin hafa að fullu gleymt uppruna sínum er voð- inn vís. Undir allri steinsteypunni er ennþá mold. Ég vona að heimur tækni og svokallaðra framfara muni aldrei yfirskyggja til fulls það lífs- magn sem skáldskapurinn býr yfir, lífsmagn sem er skylt sjálfri jörð- inni.“ Þjóðsögurnar kveiktu í Gyrði  Gyrðir Elíasson veitti verðlaun- unum móttöku Morgunblaðið/Einar Falur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs Gyrðir Elíasson tók við verðlaununum úr hendi Bertels Haarders, forseta þings Norðurlandaráðs, í sal Konunglega tónlistarskólans í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Gyrðir Elíasson er sjöundi ís- lenski rithöfundurinn sem hlýtur Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs en 50 ár eru nú síðan verðlaunin voru fyrst veitt. Auk Gyrðis hafa hlot- ið verðlaunin þau Ólafur Jóhann Sigurðsson, Snorri Hjartarson, Thor Vilhjálmsson, Fríða Á. Sigurðardóttir, Einar Már Guðmundsson og Sjón. Í gær tók sænski leikstjórinn og leikarinn Pernille August við Kvik- myndaverðlaunum Norðurlanda- ráðs fyrir Svínastíuna (Svinaläng- orna), sænski saxófónleikarinn og tónskáldið Mats Gustafsson, sem er kunnur fyrir spunatónlist, hlaut tónlistarverðlaunin að þessu sinni og Scandic-hótelin umhverfis- verðlaunin fyrir að hafa í tvo ára- tugi verið í fararbroddi í sjálfbærri ferðaþjónustu. FERN VERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS AFHENT Í GÆR Gyrðir með verðlaunaskjalið. Sjöundi íslenski höfundurinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.