Morgunblaðið - 06.12.2011, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 06.12.2011, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2011 Strætó Afkoman betri en áætlað var. ● Rekstur Strætó bs. skilaði jákvæðri afkomu upp á 219 milljónir króna fyrstu níu mánuði ársins. Í tilkynningu segir að þessi árangur sé nokkuð umfram áætlanir sem hljóð- uðu upp á 96 milljóna afgang. Helsta skýringin er 63 milljónum meiri tekjur af fargjaldasölu en ráð var gert fyrir sem svo skýrist af mikilli fjölgun far- þega. Einnig voru fjármagnsgjöld á tímabilinu 26 milljónum króna undir áætlun. Strætó með jákvæða af- komu upp á 219 milljónir FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Að lokum voru það hagsmunir Þýska- lands sem vógu þyngra en Frakk- lands. Á fundi Nicolasar Sarkozy Frakklandsforseta og Angelu Merkel Þýskalandskanslara í París í gær náðu leiðtogarnir samkomulagi um að aðildarríki evrusvæðisins innleiði ákvæði í stjórnarskrár sem kveði á um hámarkshalla í ríkisrekstri sem nemur 3% af landsframleiðslu. Við- komandi stjórnvöld sem virða ekki reglur um halla á ríkisfjárlögum verði sjálfkrafa beitt refsiaðgerðum. Á þessari stundu er óljóst hvort hinn nýi sáttmáli nái til allra 27 aðildarríkja Evrópusambandsins. Sameiginleg útgáfa evruskulda- bréfa – nokkuð sem margir fjárfestar hafa bundið miklar vonir við sem lausn á skuldakreppu evrusvæðisins – virðist ekki vera á döfinni ef marka má ummæli Sarkozys og Merkels. „Evruskuldabréf eru engin lausn á kreppunni,“ sagði Sarkozy. Merkel hefur löngum haldið því fram að út- gáfa slíkra skuldabréfa myndi draga úr þrýstingi á stjórnvöld að sýna að- hald í ríkisfjármálum. Merkel féll hins vegar frá fyrri kröfu sinni um að veita Evrópudóm- stólnum virkar valdheimildir til að bregðast við með viðeigandi hætti gerðust aðildarríki brotleg á reglum um fjárlagahalla. Þess í stað mun dómstóllinn aðeins úrskurða um hvort stjórnarskrárákvæði aðildar- ríkjanna um hámarkshalla á ríkis- rekstri sé í samræmi við kröfur hins nýja sáttmála sambandsins. Það vekur sömuleiðis athygli að leiðtogarnir náðu samkomulagi um að í framtíðinni yrði þess ekki krafist, að einkaaðilar tækju að hluta til á sig tap, samhliða endurskipulagningu ríkisskulda líkt og raunin var með Grikkland fyrr á þessu ári. Merkel og Sarkozy munu leggja fram hugmynd- ir sínar á fundi leiðtogaráðs ESB næstkomandi fimmtudag. Bandalag að þýskri forskrift Ljóst er að með tillögunum vonast leiðtogar Frakklands og Þýskalands til, að hægt sé að endurvekja traust fjárfesta á evrusvæðinu og afstýra gjaldþroti Grikklands og hugsanlega Ítalíu. Komi aðrar og umfangsmeiri aðgerðir ekki til, er hins vegar ósenni- legt að stefnusmiðum evrusvæðisins verði að ósk sinni. Það mun taka mánuði að semja hinn nýja sáttmála um ríkisfjármál – og í kjölfarið mörg ár að fá hann sam- þykktan meðal aðildarríkjanna. Ríkisfjármálabandalag að þýskri forskrift – þar sem öll aðildarríki myntbandalagsins skuldbinda sig samtímis til að sýna strangt aðhald í ríkisfjármálum og draga úr skuldum ríkisins – samfara sífellt versnandi hagvaxtarhorfum í álfunni mun óum- flýjanlega leiða til samdráttar í heild- areftirspurn og þar með auka líkur á viðvarandi efnahagslægð næstu árin. Rétt eins og Wolfgang Münchau, pistlahöfundur Financial Times, bendir á, þá er með öðrum orðum ver- ið að koma á fót stöðugleikasáttmála á sterum. Á þessari stundu er mikil- vægast fyrir evrusvæðið að kynna til sögunnar aðgerðir sem eru líklegar til að stemma stigu við þeim bráðavanda sem myntbandalagið glímir við. Þörf á umfangsmeiri aðgerðum Slíkar aðgerðir þurfa að vera af tvennum toga: annars vegar að heim- ila Evrópska seðlabankanum að ger- ast lánveitandi til þrautavara og kaupa ríkisskuldabréf verst stöddu evruríkjanna og hins vegar að hefja undirbúningsvinnu að útgáfu evru- skuldabréfa. Þjóðverjar standa eftir sem áður fast gegn öllum slíkum hug- myndum. Það er mikilvægt að hafa í huga að hin djúpstæða skuldakreppa evru- svæðisins á ekki rætur sínar að rekja til lausataka í ríkisfjármálum – slíkt átti aðeins við í tilfelli Grikklands. Spánn var með afgang á fjárlögum upp á 2% af landsframleiðslu árið 2006 og braut aldrei stöðugleika- og vaxtarsáttmála myntbandalagsins – ólíkt Þjóðverjum og Frökkum – og Ítalía hefur löngum haft frumjöfnuð á ríkissjóði. Það má leiða að því líkur að ein helsta ástæða þess að allar björgun- araðgerðir ráðamanna evrusvæðisins hafa mistekist fram til þessa sé ein- mitt rangur skilningur á rót þeirra vandræða sem evrusvæðið glímir við um þessar mundir. Verði ekki við- horfsbreyting í þeim efnum á næst- unni er hætt við því að illa fari. Stöðugleikasáttmáli á sterum Reuters Samstíga? Merkel og Sarkozy hafa ólíka sýn á það hvaða leið skuli fara til að leysa skuldakreppu evrusvæðisins.  Aðildarríki beitt sjálfkrafa refsiaðgerðum nemi halli á ríkisrekstri meira en 3% af landsframleiðslu  Þörf talin á umfangsmeiri aðgerðum eigi að takast að leysa bráðavanda evrusvæðisins Ríkisfjármálabandalag » Aðildarrríkjum evrusvæð- isins gert að innleiða ákvæði í stjórnarskrá um hámarkshalla á ríkisrekstri. » Leiðtogar Frakklands og Þýskalands útiloka útgáfu sameiginlegs evruskuldabréfs. » Tillögurnar gagnrýndar fyrir að taka ekki á bráðavanda evrusvæðisins. » Kreppan á ekki rætur sínar að rekja til lausataka í ríkisfjár- málum. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Ar- ion banka, greinir frá því í samtali við Bloomberg-fréttaveituna í gær að bankinn stefni að alþjóðlegu skuldabréfaútboði á næstu 12 mán- uðum. Fyrirsögn og aðalumfjöllun- arefni greinarinnar var að bankinn færi í skuldabréfaútboð á næstu 12 mánuðum. Í viðtali við Bloomberg segir Höskuldur meðal annars að aðstæð- ur fyrir skuldabréfaútboð teljist nokkuð góðar á næstu tólf mánuð- um. Þegar Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi hjá Arion banka, var spurður út í þessi ummæli bankastjórans í gær sagði hann að vaxtakjör lægju ekki fyrir. „Enda er þetta ekki komið á það stig. Und- irbúningur er í gangi innan bankans og áhugi erlendra aðila er til staðar. Þessi mál eru í markvissri vinnslu innan bankans og verða það áfram. Við gerum ráð fyrir jákvæðri niður- stöðu á næstu tólf mánuðum,“ segir Haraldur Guðni. Með 21,4% eigið fé Höskuldur segir margt jákvætt í gangi á markaðnum á Íslandi í dag í samanburði við ástandið á mörkuð- um í Evrópu. En Arion banki var með 21,4% eiginfjárhlutfall við hálfs árs uppgjörið í sumar. Það var þrátt fyrir að lögbundið lágmarkið sé ekki nema 8% og FME geri kröfu um 16%. Ríkið á13% í Arion banka en 87% er í eigu Kaupskila. Í umfjöllun Bloomberg kemur fram að Arion banki skuldi erlendum lánardrottn- um 1,2 milljarða evra og segir Hösk- uldur að ekki sé þörf á endurfjár- mögnun á næstunni. Engu að síður sé mikilvægt fyrir bankann að fjölga fjármögnunarvalkostum. Höskuldur segir einnig að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hversu stórt skuldabréfaútboðið verði. Skuldabréfaút- boð framundan hjá Arion banka Morgunblaðið/Kristinn Arionbanki Góð eiginfjárstaða.  Útboð áætlað á næstu 12 mánuðum ● Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt samruna Byrs hf. og Íslandsbanka hf. með fyrirvara um að samrunaferlið verði í samræmi við lög um hlutafélög. Samruninn var samþykktur á fundi stjórnar Íslandsbanka og á hluthafa- fundi Byrs þann 29. nóvember 2011. Réttindum og skyldum Byrs telst reikn- ingslega lokið þann 30. júní 2011, en frá þeim degi tók Íslandsbanki við öllum réttindum og skyldum vegna Byrs. Samþykkir samruna ● Velta með innlend hlutabréf í nóvember var um 8,4 milljarðar króna. Á sama tíma á síðasta ári var veltan rúmlega 1,5 milljarðar. Veltan í nóvember hefur því rúmlega fimmfaldast milli ára. Þess ber þó að geta að samanlögð velta á tveimur viðskiptadögum í mánuðinum nam rúmlega 6,5 milljörðum króna eða næstum 80% af veltu hans, að því er fram kemur í greiningu IFS í gær. Þar kemur einnig fram að færeyska olíuleitarfyrirtækið Atlantic Petroleum hækkaði um tæp 33% í nóvembermánuði. Margföld velta með hlutabréf í nóvember ● Skilanefnd Landsbankans hefur látið að því liggja að hætt verði við söluna á verslunarkeðjunni Iceland Food ef nefndin er ekki ásátt með til- boðin sem berast. Eins og áður hefur komið fram vill Landsbankinn fá 1,5 milljarða punda, jafnvirði um 280 milljarða íslenskra króna, fyrir 67% hlut sinn í keðjunni. Á vefnum This is Money kemur fram að Morrisons og Asda geri til- boð í 67% hlut bankans í keðjunni. Þar kemur jafnframt fram að brátt verði byrjað að greiða út forgangs- kröfur í þrotabú bankans. Hættir kannski við sölu STUTTAR FRÉTTIR Þónokkur fjöldi starfsmanna mun missa vinn- una á næstu mánuðum í kjöl- far hópupp- sagna. Fram kemur í tilkynn- ingu Vinnu- málastofnunar að í nóvember voru tvær hóp- uppsagnir, þar sem sagt var upp 72 manns. Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í fjármálastarfsemi og iðnaði, sem flestar koma til fram- kvæmda í mars á næsta ári. Stað- an á vinnumarkaði hér á landi er enn erfið þrátt fyrir að atvinnu- leysið sé tekið að minnka og störf- um sé farið að fjölga. Eru þeir starfsmenn sem misst hafa vinn- una í hópuppsögnum á fyrstu ell- efu mánuðum ársins jafnframt að- eins fleiri en þeir voru í fyrra. Þannig hafa alls 752 manns misst vinnuna í hópuppsögnum á árinu samanber 742 á sama tímabili í fyrra. Flestir þeir sem misst hafa vinn- una nú í ár í hópuppsögnum störf- uðu í mannvirkjagerð, eða 248 manns, en næstfjölmennasta at- vinnugreinin í þessum efnum er upplýsingastarfsemi þar sem 102 manns hafa misst vinnuna og þriðja fjölmennasta atvinnugreinin er fjármálastarfsemi þar sem 100 manns hafa misst vinnuna í slíkum uppsögnum. 752 misst vinnuna  Flestir unnu við mannvirkjagerð                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +,0-12 ++3-4+ /+-.53 /1-0.0 +2-033 +/,-0, +-0+3. +,4-// +05-+/ ++,-3 +,0-0/ ++3-20 /+-405 /1-050 +2-3+2 +/,-54 +-0/12 +,4-22 +05-02 /+0-,42. ++,-,, +,0-52 ++2-15 /+-0// /1-300 +2-33, +/5-. +-0/0+ +,0-./ +31-1/ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.