Morgunblaðið - 06.12.2011, Page 36
36 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2011
Aflagrandi 40 | Vinnust. kl. 9, tölvuf. og
postulín kl. 13, lestur kl. 13.30, jóga kl. 18.
Sigríður Víðis Jónsd. les úr bókinni Rík-
isfang: ekkert kl. 14. Arnþrúður og Sunna
Ingólfsd. spila kl. 14.30.
Árskógar 4 | Smíði og útsk. kl. 9, botsía kl.
9.30, handav. og spilað kl. 13, stólad. kl.
13.30.
Boðinn | Handav. kl. 9. Vatnsleikfimi kl.
9.15. Ganga frá anddyri Hrafnistu kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndv. og línud. kl.
13.30, börn 3-4 ára syngja og dansa kl.
15.20.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8. Bæna-
stund kl. 9.30. Jólakúlur mánaðarins.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11, helgi-
stund. Laura Sch. Thorsteinsson hjúkr-
unarfr. flytur erindi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Bók-
menntakynning FEBK í Gullsmára kl. 20.
Vilborg Davíðsd. ljóðskáld og kennari les úr
ævisögu sinni, Úr þagnarhyl.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Æfing
hjá Snúð og Snældu kl. 9, skák kl. 13, fé-
lagsv. kl. 20.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikf. kl. 9.15,
gler- og postulín kl. 9.30, jóga kl. 10.50. al-
kort kl. 13.30, línud, kl. 18 og samkv.d. kl.
19.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Jóga kl.
9.30. Afmælis og aðventuh. kl. 14, börn
syngja jólalög, Baldur Þór Baldvinsson flyt-
ur jólas. og Leikhóp. Snúður og Snælda
skemmta. Lesh. FEBK kl. 20, Vilborg Dag-
bjartsdóttir.
Félagsmiðstöðin Vesturgötu 7 | Setu-
stofa, handav. kl. 9.15, spurt og spjallað og
leshópur kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Qi
Gong kl. 8.10, trésmíði kl. 9, vatnsleikf. kl.
12, opið hús í kirkjunni, bútas./karlaleikf.
kl. 13, botsía kl. 14, Bónus kl. 14.45, línu-
dans kl. 15, spilað kl. 20.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Vatnsleikf. kl. 7.15, gler kl. 9, spjall
í krók kl. 10.30, helgist. kl. 11. Opið á
Skólabr. Mál./teiknun í Valhúsask. kl. 17.
Karlak. í kirkju kl. 14. Prjónak. og lestur í
Bókasafni kl. 19.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnust. kl. 9,
gler og perlus., ganga kl. 10.30, Félag
heyrnarlausra kl. 11, postulín. kl. 13. Fagra-
bergs samvera á morgun kl. 15.
Glóðin | Fræðsluf. um kínversku QI GONG í
Gjábakka 7. des. k. 20. Björn Bjarnason, fv.
ráðherra kynnir íþróttina.
Grafarvogskirkja | Opið hús kl. 13.30.
Helgistund, handavinna, spil og spjall.
Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Hraunbær 105 | Handav. kl. 9, boccia kl.
10.30, Bónus kl. 12.15, keramik kl. 13.
Hraunsel | Qi Gong kl. 10, myndmennt kl.
10, leikf. kl. 11.30 í Bjarkarh., boltaleikf. kl.
14.15 í Haukah. brids kl. 13, vatnsleikf. í Ás-
vallalaug kl. 14.40.
Hæðargarður 31 | Við hringb. kl. 8.50,
gler kl. 9, Tai chi kl. 9, leikf. kl. 10, Bónus
12.40, brids kl. 13, bókab. kl. 14.15, gáf-
um.kaffi kl. 15, fjölmennt/perlufestin kl. 16.
Jólaf. bókmenntah. kl. 20, Svavar Knútur
syngur jólalög.
Íþróttafélagið Glóð | Línud. hópur I kl.
14.40, hópur II kl. 16.10, Zumba kl. 17.30. í
Kópavogssk..
Korpúlfar Grafarvogi | Aðventuf. í Hlöð-
unni á morgun kl. 13.30, með jólaívafi. Veit-
ingar, þátttökugjald 700.
Norðurbrún 1 | Myndlist, vefnaður, út-
skurður o.fl. kl. 9. Upplestur kl. 11. Frí-
stundarstarf fyrir íbúa e. hád.
Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll, Garðabæ
| Opið hús, spilað, prjónað og saumað.
Kyrrðarst. í hádeginu.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja/
bókband/postulín kl. 9, boccia kl. 10, lestur
kl. 12.30, handav, spil og stóladans kl. 13.
Kvengleraugu
töpuðust
Kvengleraugu töp-
uðust nýlega í verslun í
Garðabæ, Hafnarfirði
eða í Reykjavík. Á
spönginni er hvítur
miði sem á stendur
891.
Finnandi vinsam-
lega hafið samband í
síma 891 6550.
Góð þjónusta í
Rafkaup
Ég er hjartanlega
sammála Ásu Láru
Þórisdóttur sem skrifaði í Velvak-
anda laugardaginn 3. desember síð-
astliðinn, um lélega þjónustu í Glóey
og frábæra þjónustu í Rafkaup.
Rúna Sigtryggsdóttir.
Fyrirhuguð ferðaþjónusta
Kínverja
Á sama tíma og Bandaríkin, Ástralía
og Indland mynda bandalag til að
hamla á móti ásælni Kínverja um
heim allan, dekstra stjórnvöld hér
Kínverja til að koma hingað og ná hér
fótfestu í ferðaþjónustu. Ef sú starf-
semi verður eins stórkostleg eins og
búið er að lýs, mun hún
þá ekki skerða mögu-
leika þeirra sem þegar
hafa fjárfest í ferða-
þjónustunni?
Sigríður Jónsdóttir.
Gamla „Gufan“
Mig langar til að taka
undir orð „Eldri borg-
ara“ sem sendi Velvak-
anda bréf á laugardag-
inn var. Ég man þá tíð
að enginn var ráðinn
hjá RÚV og ég hygg
að það hafi verið svo
hjá öðrum fjölmiðlum,
nema að hafa skíra rödd, sem flytja
átti fólki fréttir og annað talað orð,
fréttir eða annað sem fólk átti að
skilja og nema. Það eru auðvitað und-
antekningar á þessu en þá skemmir
flissið sem margir virðast vera haldn-
ir af og er það ekki síður óþolandi,
getur algerlega eyðilagt það sem ver-
ið er að segja manni. Sjónvarpið
mætti alveg gera meira af því að end-
ursýna þætti sem sýndir voru á
fyrstu árum þess. Gamla „Gufan“
stendur enn fyrir sínu.
H.H.K.
Velvakandi
Ást er…
… þegar þú málar þig
áður en þú ferð í háttinn.
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
SKEMMTIRÐU ÞÉR
MEÐ FLUGDREKANN? HANNSKEMMTI
SÉR BETUR
EN ÉG
ÉG SKAL FARA ÚT AÐ GANGA MEÐ ÞIG UM
LEIÐ OG ÉG ER BÚINN MEÐ BJÓRINN MINN
SLAKAÐU
BARA Á!
SLAKA Á
HVERNIG STENDUR Á
ÞVÍ AÐ M&M GAURARNIR
ERU Í ÞESSUM SJÁLFS-
HJÁLPARHÓPI, ÞAÐ VIRÐIST
VERA ALLT Í LAGI MEÐ ÞÁ
ÉG VEIT
ÞAÐ EKKI
GOTT OG VEL, VIÐ
SKULUM HALDA
ÁFRAM AÐ VINNA Í
ÞVÍ AÐ FÁ YKKUR TIL
AÐ KOMA ÚT ÚR
SKELINNI YKKAR
OG HAFIÐ Í HUGA AÐ
ÉG MEINA EKKI ALLT SEM
ÉG SEGI BÓKSTAFLEGA
ÉG ER KOMIN MEÐ
NÓG AF VINNUNNI
MINNI
KANNSKI
ÞARFTU BARA
SMÁ FRÍ
ÉG HELD
AÐ ÉG GÆTI
ÞURFT AÐ
SKIPTA UM
STARFS-
GREIN
HVAÐ ANNAÐ
MYNDIR ÞÚ
VILJA GERA?
VERÐA
KVIK-
MYNDA-
STJARNA
ÞÁ ÞAÐ,
GOTT OG VEL
HJÁLP! TONY
STARK ER GENGINN
AF GÖFLUNUM!
HVAÐ
SAGÐI HANN?
ÉG VEIT ÞAÐ EKKI EN ÉG
ÆTLA AÐ ATHUGA MÁLIÐ
FARÐU FRÁ!IRON MAN!
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Pétur Stefánsson, sem nýveriðsendi frá sér bók með heil-
ræðavísum til barna, orti á laug-
ardaginn var:
Frost er á Fróni.
Fennt hefur drjúgum.
Sólgeislar sindra
á sælygnum flóa.
Glerhált á götum
og göngustígum.
Bifreiðar bruna
um borgarstræti.
Friðsæla fann ég
fjarri erli
gönguslóð góða
hjá greniskógi.
Rölti ég rólyndur
Rauðavatnshringinn,
hélt síðan hvatur
heim á leið.
Líður að lokum
lognkyrra dagsins.
Í hlýjunni heima
ég held mig í kvöld.
Meðan dömur og drengir
drekka í nótt
á börum og böllum,
blunda ég rótt.
Ingólfur Ómar Ármannsson er
kominn í jólaskap og yrkir:
Fönn þó hylji foldarsvið
finn ég gleði í hjarta,
blessuð jólin boða frið
bjartri dásemd skarta.
Þegar gerði vitlaust veður um
daginn orti hann:
Fellur mjöll á freðna grund
frostið bítur vanga,
vekur drunga, veikir lund,
vetrartíðin stranga.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af frosti og Fróni