Morgunblaðið - 06.12.2011, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2011
Vestfirska forlagið gengst fyrir
bókakynningu og upplestrum í
kvöld, þriðjudag, á Cafe Catal-
ina í Kópavogi. Hefst dag-
skráin klukkan 20.00.
Þeir sem kynna bækur sínar
og lesa upp eru Finnbogi Her-
mannsson en bækur hans nefn-
ast Vestfirskar konur í blíðu og
stríðu og Virkið í vestri. Emil
R. Hjartarson kynnir Frá
Bjargtöngum að Djúpi, bók
Guðlaugs Gíslasonar nefnist Þórður Þ. Grunnvík-
ingur rímnaskáld og Sigurður Pétursson kynnir
Vind í seglum – sögu verkalýðshreyfingar á Vest-
fjörðum 1. bindi 1890-1930.
Allir eru velkomnir.
Bækur
Bókakynning Vest-
firska forlagsins
Finnbogi
Hermannsson
Kór Neskirkju, Stúlknakór
Neskirkju, Bachsveitin í Skál-
holti og einsöngvarar koma
fram á tónleikum í Neskirkju í
kvöld, þriðjudag, og hefjast
þeir klukkan 20.00.
Á tónleikunum verða flutt
tvö verk, Magnificat BWV 243
eftir Johann Sebastian Bach,
og Magnificat eftir Steingrím
Þórhallsson sem verður frum-
flutt. Einsöngvarar á tónleik-
unum eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Jóhanna
Halldórsdóttir alt, Ragnhildur Þórhallsdóttir
sópran, Gissur Páll Gissurarson tenór og Ágúst
Ólafsson bassi.
Stjórnandi er Steingrímur Þórhallsson.
Tónlist
Frumflytja Magnifi-
cat eftir Steingrím
Steingrímur
Þórhallsson
Jólafundur Handarinnar verð-
ur haldinn í neðri sal Áskirkju
annað kvöld, miðvikudag, og
hefst klukkan 20.30.
Meðal dagskráratriða er að
Jón Kalman Stefánsson les úr
nýrri bók sinni, Hjarta manns-
ins, og Sölvi Sveinsson skóla-
stjóri segir frá bók sinni Tákn.
Jóhannes Kristjánsson eft-
irherma fer með gamanmál og
hljómsveitin Upplyfting flytur
nokkur lög. Þá verða veittar viðurkenningar fólki
sem hefur skarað fram úr á sviði mannræktar,
flutt hugvekja og fjöldasöngur.
Aðgangur á fundinn er ókeypis og boðið verður
upp á kaffi og piparkökur.
Jólafundur
Fjölbreytileg dag-
skrá hjá Hendinni
Sölvi
Sveinsson
Jólalögin hér og þar er yfirskrift hádeg-
istónleika sem fram fara í Hafnarborg í dag
milli kl. 12.00-12.30. Þar flytja Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir mezzosópran og Antonía
Hevesi píanóleikari jólalög frá Spáni, Aust-
urríki, Bandaríkjunum og Íslandi, auk
tveggja aría úr óperunni Carmen eftir Bi-
zet.
Aðspurð segir Guðrún jólalögin vera
blanda af þekktum og óþekktum lögum. „Ég
held alla vega að enginn muni þekkja fyrsta
lagið á efnisskránni sem er vöggukvæði sem
María syngur til Jesúbarnsins, eftir spænska
tónskáldið José R. Gomis,“ segir Guðrún og
tekur fram að sér finnist sérlega ánægjulegt
að kynna Íslendingum þetta fallega lag.
Að sögn Guðrúnar er síðasta lagið á efnis-
skránni hins vegar vel þekkt, en það er Ave
María eftir Sigvalda Kaldalóns. „Þetta lag
er mér mjög kært, enda er þetta eitt af okk-
ur bestu íslensku sönglögum. Ég hef sungið
þetta lag mjög mikið í hinum ýmsu löndum
við afar góðar undirtektir,“ segir Guðrún
sem vann m.a. til verðlauna á Ítalíu fyrir
flutning á þessu lagi. „Ég hef yfirleitt flutt
lagið með píanói, en fékk hljómsveitarstjóra
kammersveitar sem ég hef unnið mikið með
í Madríd, þar sem ég er búsett, til að útsetja
lagið fyrir kammersveit og söngrödd. Sú út-
setning hefur slegið í gegn og hljómar nær
undantekningarlaust þegar ég kem fram
með kammersveitinni, en við höfum haldið
tónleika víðs vegar um heiminn.
Af öðrum lögum á tónleikunum má nefna
Maríu í skóginum. Ég söng það í skólakór
Kársnesskóla hjá Þórunni Björnsdóttur í
gamla daga. Ég hef alltaf haldið mjög mikið
upp á þetta lag enda er textinn undurfal-
legur. Ég fann reyndar engar einsöngsnótur
að laginu, þannig að Antonía spinnur píanó-
leikinn,“ segir Guðrún að lokum.
silja@mbl.is
Óþekkt jólalög í bland við þekktari
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Antonía Hevesi
flytja jólalög á hádegistónleikum í Hafnarborg
Morgunblaðið/Ómar
Perlur Antonía og Guðrún flytja jólatónlist í bland við óperuperlur á hádegistónleikum í dag.
Afmælisári Jóns Sigurðssonar lýkur
á dánardegi þjóðhetjunnar á morg-
un. Þá stendur Stofnun Árna Magn-
ússonar fyrir málþingi um fræða-
störf Jóns í Þjóðminjasafninu milli
kl. 10.30-13.00. Í Dómkirkjunni verð-
ur milli kl. 13.30-14.30 flutt tónlist
sem hljómaði í útför Jóns og Ingi-
bjargar Einarsdóttir árið 1880. Dag-
skránni lýkur svo með hátíðarfundi
afmælisnefndar Jóns sem haldinn
verður í hátíðarsal Háskóla Íslands
milli kl. 15-17. Meðal frummælenda
á fundinum verða Páll Björnsson
sagnfræðingur sem nýverið gaf út
bók um Jón sem tilnefnd er til ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna og
Margrét Gunnarsdóttir sagnfræð-
ingur sem ritað hefur bók um Ingi-
björgu konu hans.
„Þessi hátíðardagskrá markar lok
viðburðaríks afmælisárs. Það hefur
verið haldið upp á 200 ára afmæli
frelsishetju okkar Íslendinga með
ýmsum hætti allt þetta ár,“ segir
Sólveig Pétursdóttir, formaður af-
mælisnefndar Jóns Sigurðssonar.
Nefnir hún í því samhengi nýja sýn-
ingu á Hrafnseyri, nýtt leikrit um
Jón, samkeppni um minnismerki og
ritgerðasamkeppni meðal barna í 8.
bekk grunnskólans. Viðburðir af-
mælisársins voru fjölmargir og fjöl-
breytilegir, en hægt er að lesa um þá
á vefnum jonsigurdsson.is. „Okkur í
afmælisnefndinni hefur fundist
ánægjulegt hversu minning Jóns er
enn lifandi í hugum þjóðarinnar.“
Afmælis-
árinu
að ljúka
Hátíðardagskrá
á dánardegi Jóns
Frelsishetja Jón Sigurðsson lést í
Kaupmannahöfn 7. desember 1879.
Þjóðminjasafn Íslands
Þetta er viðurkenn-
ing fyrir góð störf og
mjög gaman að sjá árangur
erfiðis síns. 40
»
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Við fluttum gjörninginn átta sinn-
um og vorum þarna komnar ansi
langt inn í leikhúsið, sem var
skemmtilegt, enda er áhugavert að
fara þangað,“ segir Sigrún Hrólfs-
dóttir, einn meðlima Gjörn-
ingaklúbbsins. Í fjögur kvöld, frá
fimmtudegi til sunnudags, flutti
klúbburinn gjörninginn Think less –
Feel more alls átta sinnum í Lilith
Performance Studio í Málmey.
Stjórnendur listamiðstöðvarinnar
hafa sérhæft sig í að setja upp
gjörninga myndlistarmanna og út-
vega til þess fjármagn, leikara,
smiði, dansara og tæknifólk, allt eft-
ir því hvað verkefnið krefst.
Sigrún segir að þær Jóní Jóns-
dóttir og Eirún Sigurðardóttir hafi
undirbúið gjörninginn nær allt síð-
asta ár og unnu í Málmey síðustu
þrjár vikurnar. „Við fórum út í febr-
úar og skoðuðum aðstæður og höf-
um unnið að undirbúningnum af
fullum krafti síðan í haust. Þetta er
viðamesti gjörningur okkar í langan
tíma,“ segir hún. Auk þeirra þriggja
komu fimmtán manns fram í verk-
inu.
Sokkabuxur eru áberandi í gjörn-
ingnum en Sigrún segir að þær hafi
fengið marga kassa af sokkabuxum
að gjöf, alls 100 kíló, frá sokka-
buxnaframleiðanda í Finnlandi.
„Við spunnum úr sokkabuxunum
þéttan vef um meginrýmið,“ segir
Sigrún. „Áhorfendur þurftu fyrst að
bíða í gámi fyrir utan en svo var
þeim boðið í fremra rými þar sem
mætti þeim ströng kennslukona
sem hafði gleymt að fara í pilsið sitt.
Þar fengu gestir svarta hjálma og
sérstök stemning myndaðist. Þá var
þeim boðið í hitt rýmið þar sem
ýmsir karakterar birtust og
trommuleikari flutti hljóðverk.
Þetta var óræður heimur þar
sem allt gat gerst; reykur, ljós
og spilað á öll skilningarvitin.“
Sigrún segir að þeim í Gjörn-
ingaklúbbnum finnist
mikilvægt að skapa
sterkar myndir í
gjörningum sínum.
„Þarna var enginn
texti heldur áhersla
á hið sjónræna og
myndræna. Þetta
var líka frekar súr-
realískt og abstrakt
en táknin samt
skýr.“
„Þetta er viðamesti gjörningur
okkar í langan tíma“
Gjörninga-
klúbburinn
sýndi átta
sinnum í Málmey
Vefurinn spunninn Sokkabuxur voru áberandi í gjörningi Gjörninga-
klúbbsins, Think less - Feel more, og áhersla lögð á sjónræna upplifun.
Gjörningaklúbburinn sýndi
gjörninginn Think less – Feel
more átta sinnum í Lilith Per-
formance Studio í Málmey dag-
ana fyrsta til fjórða desember.
Gjörningaklúbbinn skipa þær
Jóní Jónsdóttir, Eirún Sigurð-
ardóttir og Sigrún Hrólfsdóttir.
Mikið og vinsamlega hefur verið
fjallað um gjörninginn í sænsk-
um prent- og ljósvakamiðlum
en hann tók rúma klukkustund.
Lilith Performance Studio er
eina sýningarýmið í heiminum í
dag sem er sérhæft í að fram-
leiða og setja upp gjörninga eft-
ir myndlistarmenn.
„Stjórnendur þessarar mið-
stöðvar eru tveir og kemur
annar úr leikhúsinu en hinn úr
myndlistinni, það sameinast í
metnaðarfullri sýning-
arstefnu þeirra,“
segir Sigrún.
Þrjátíu gestir
komust á hverja
sýningu Gjörn-
ingaklúbbsins.
Löngu uppselt
var á þær allar og
biðlisti eftir mið-
um.
Uppselt á
sýningarnar
GJÖRNINGAKLÚBBURINN
Þær Sigrún, Jóní og Eirún
skipa Gjörningaklúbbinn.