Morgunblaðið - 06.12.2011, Qupperneq 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2011
Stilla Meðal leikara í myndinni Á annan veg eru Þorsteinn Bachmann (til hægri á myndinni) og Hilmar Guðjónsson.
verðlaun í Tórínó
geti haft góð áhrif
á almenna dreif-
ingu á myndinni á
Ítalíu þar sem
þessi hátíð og
verðlaunin fá allt-
af mikla athygli.“
Að sögn Haf-
steins er hátíðin í
Tórínó ein sú
virtasta í heimi.
„Þetta þykir ansi flott hátíð, en hún
er meira tileinkuð óháðri kvik-
myndagerð og upprennandi leik-
stjórum, enda leggja skipuleggj-
endur sig fram um að uppgötva nýtt
hæfileikafólk,“ segir Hafsteinn.
Aðspurður um mynd sína segir
Hafsteinn Á annan veg vera mjög ís-
lenska þar sem hún gerist í sérstöku
íslensku samhengi. „En ég hugsa þó
að sagan sé alþjóðleg eða sammann-
leg, þ.e. eitthvað sem margir geta
tengt við,“ segir Hafsteinn.
Á annan veg var heimsfrumsýnd á
kvikmyndahátíðinni í San Sebastian
undir lok september sl. „Í kjölfarið
höfum við verið töluvert á flakki.
Þetta er nokkurs konar snjóbolti
sem fer að rúlla,“ segir Hafsteinn og
tekur fram að hann hafi reynt að elta
mynd sína síðustu vikurnar til að
fylgja henni úr hlaði, en í nóvember
var myndin á fimm hátíðum og held-
ur svo til Þýskalands í næstu viku.
„Það er margt í pípunum, en ekkert
sem er staðfest,“ segir Hafsteinn og
tekur fram að oft komi boð með
skömmum fyrirvara.
Spurður hvort hann sé farinn að
leggja drög að næstu mynd svarar
Hafsteinn því játandi. „Ég hef verið
að þróa mynd með Huldari Breið-
fjörð sem skrifar handritið og ég
mun leikstýra. Við erum að reyna að
fjármagna myndina núna til þess að
geta farið í tökur næsta vor. Myndin
gerist í Flatey og fjallar á grát-
broslegan hátt um samband feðga.“
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta var þrususterk hátíð og
keppni og því mjög gaman að fá
þessi verðlaun,“ segir Hafsteinn
Gunnar Sigurðsson kvikmyndaleik-
stjóri, en mynd hans Á annan veg
vann til fyrstu verðlauna á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tór-
ínó á Ítalíu sl. laugardag. Á annan
veg, sem er fyrsta kvikmynd Haf-
steins í fullri lengd, keppti í að-
alkeppni hátíðarinnar ásamt 15 öðr-
um myndum en myndirnar máttu
vera fyrsta, önnur eða þriðja mynd
leikstjóra. Myndin var auk þess
verðlaunuð fyrir besta handritið,
sem Hafsteinn er höfundur að. Þá
fékk myndin einnig Baltic-
verðlaunin á 53. kvikmyndahátíðinni
í Lübeck fyrr í mánuðinum.
„Þetta er viðurkenning fyrir góð
störf og mjög gaman að sjá árangur
erfiðis síns. Svo er mér sagt að þessi
Á annan veg með tvenn alþjóðleg verðlaun Næsta
mynd leikstjórans verður unnin með Huldari Breiðfjörð
„Viðurkenning
fyrir góð störf“
Hafsteinn G.
Sigurðsson
Sálverjar, þ.e. Sálin hans Jóns
míns, ætla að taka fram hljóðfærin
á næstunni og leika á nokkrum
tónleikum í desember og á milli
hátíða. Sveitin var lítt áberandi
þetta árið, hefur aðeins komið
einu sinni fram það sem af er ári.
Fyrsta desembergiggið verður á
heimavelli sveitarinnar, í höf-
uðvígi djammsins, gamla Sjálf-
stæðishúsinu, NASA við Aust-
urvöll, 10. des. Að sjálfsögðu
verða allir helstu smellirnir viðr-
aðir og gera má ráð fyrir óvænt-
um uppákomum. Hæstráðandi á
staðnum, Inga von Nasa, lofar
flugeldasýningu og fádæma
stemmningu. 17. des. troða Sál-
verjar upp í Stapanum í Njarðvík.
26. des. er það Selfoss og á nýárs-
dag verður Sálin á Spot í Kópa-
vogi.
Sálverjar leika sér af krafti á næstunni
Poppkóngar Sálin hans Jóns míns er konungborin og alíslensk poppsveit.
Seiðkonan bbbnn
Eftir Michael Scott. Guðni Kolbeinsson þýddi,
JPV gefur út. 419 síður með aukaefni.
Seiðkonan er þriðja bók-
in af sex sem segja sögu
tvíburanna Sophie og Josh
og samskipta þeirra við
gullgerðarmanninn ódauð-
lega Nicholas Flamel og
Perenelle eiginkonu hans.
Áður eru komnar á ís-
lensku Töframaðurinn og
Gullgerðarmaðurinn. Það
er freistandi að dæma bækur í slíkri röð sem
„meira af því sama“, ekki síst ef ekki er í þeim
þroska- og þróunarmerki. Mér leið líka þann-
ig þegar ég las bók númer tvö í röðinni, fannst
hún vera endurtekning fyrstu bókarinnar,
bara með meiri sprengingum og ægilegri
skrímslum.
Að því sögðu þá er ánægjulegt að lesa Seið-
konuna, því þó framvindan sé jafnhröð og áð-
ur og skrímslin jafnyfirgengileg þá er meira
undir núna, meira kveður að Perenelle og tví-
burarnir fá bein í nefið. Framhaldið lofar því
góðu.
Bölvun Faraós bbbmn
Eftir Kim M. Kimselius. Urður gefur út. 206 bls.
Bölvun Faraós er þriðja
bókin um ævintýri Ramónu
og Theós á ferðalagi þeirra
um tímann. Málið er að Ra-
móna hefur lag á að detta
aftur í aldir og þar fann
hún Theó í fyrstu bókinni
þegar hún birtist í Pompei
rétt áður en Etna lagði
borgina í rúst. Í síðustu
bók fóru þau aftur á miðaldir og lentu í
galdraofsóknum, en nú alla leið aftur til daga
Tútankamons. Kimselius notar tímaflakkið til
að kynna fyrir börnum atburði fyrri tíma og
ferst það vel úr hendi enda má lesa bækurnar
sem hreinar spennu- og ævintýrabækur og fá
fróðleikinn í kaupbæti. Það er kostur við bæk-
urnar að Kimselius dregur upp mynd af dag-
legu lífi og sýnir vel að við erum öll eins, hvort
sem við sitjum á Nílarbökkum eða í frosti
uppi á Fróni.
Það eina sem er út á bækurnar að setja er
hve samskipti þeirra Ramónu og Theós eru
stirð, en það lagast kannski þegar fram líður,
þau eru náttúrlega ekki búin að þekkjast
nema þrjár bækur; sjáum til hvað gerist í
þeim fjórtán sem enn eru óútgefnar á ís-
lensku.
Úkk og Glúkk bbbbn
Eftir Dave Pilkey. JPV gefur út.
175 bls. með aukaefni.
Dave Pilkey er höfundur
bókanna óborganlegu um
kaftein Ofurbrók, en notar
listamannsnöfnin Georg
Skeggjason og Haraldur
Hugason (George Beard og
Harold Hutchins) á þessari
bók, sem er einskonar út-
skot af Ofurbrókar-röðinni,
enda koma fyrir í henni
persónur úr þeirri eðlu ser-
íu. Nú eru í aðalhlutverki hellisbúarnir Úkk
og Glúkk sem ferðast fram í tímann og læra
þar kúng-fú til að berjast við illan iðnjöfur
sem búinn er að rústa jörðinni í sínum tíma og
snýr því aftur á steinöld að arðræna þá sem
þar lifa. Mjög frjálslega er farið með stað-
reyndir í bókinni, svo vægt sé til orða tekið,
enda er hún ætluð meðal annars til að sanna
það að steinaldarmenn og risaeðlur hafi lifað á
jörðinni á sama tíma.
Framvindan er einkar geggjuð, en þó sam-
hengi í geggjuninni. teikningar eru bráðvel
heppnaðar og ekki skemmta flettibíó í bók-
inni, þar sem lesandinn getur gætt frásöguna
lífi með því að fletta hratt fram og aftur á til-
teknum stöðum. Sagan af fóstbræðrunum
Úkk og Glúkk er hin besta skemmtun.
Græni atlasinn bbbmn
Eftir John Stephens. JPV gefur út. 411 bls.
Græni atlasinn hefst á
aðfangadagskvöld þegar
Kötu, Mikael og Emmu er
forðað á síðustu stundu
undan dularfullum verum
sem hyggjast hreppa þau.
Fyrir tilstilli töfra komast
þau undan í bíl með vel-
gjörðarmanni sínum og
næstu árin alast þau upp á
flakki á milli munaðarleys-
ingjahæla þar til þau komast í örugga höfn í
gömlu hefðarsetri á afskekktum stað. Börnin
muna lítið eftir foreldrum sínum, voru svo ung
þegar þau voru hrifin frá þeim, en Kata man
nóg til að vera þess fullviss að foreldrar þeirra
séu á lífi. Á vafri um hefðarsetrið rekast börn-
in síðan á græna atlasinn sem gerir þeim
kleift að ferðast fram og aftur í tíma og fljót-
lega kemur í ljós að það eru ill öfl á kreiki.
Bókin er skemmtileg aflestrar og gefur
góða raun að börnin séu þrjú, hvert þeirra
leggur sitt til sögunnar og líklegt að bera
muni meira á því þegar líður á sagnaröðina,
en þetta mun fyrsta bókin af þremur. Tíma-
flakkið er eilítið ruglingslegt, en framvindan í
bókinni er hröð og ekkert dregið undan með
skelfilega atburði og uppákomur. Fín æv-
intýrabók og ég bíð spenntur eftir framhald-
inu.
Unglingabækur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Yfirlit yfir nýútkomnar
þýddar unglingabækur
NÝIR MATREIÐSLUÞÆTTIR
Í MBL SJÓNVARPI!
UNDIR 2.000 KR.
MATUR FYRIR FJÓRA